Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Blaðsíða 12

Fiskifréttir - 02.05.2003, Blaðsíða 12
12 FISKIFRETTIR 2. maí 2003 FRETTIR Mæling á hörpudiskstofninum í Breiöafiröi í apríl: Stofninn mjög lítill eins og viö var aö búast „Leiðangrinum er nýlokið og við eigum eftir að vinna úr þeim gögnum sem safnað var. Hins vegar get ég sagt að það er Ijóst að stofninn er mjög lítill eins og við var að búast. Ástandið á hörpudisk- inum virðist vera mjög svipað því sem það var í mælingunni í októ- ber sl. sem sýndi mjög slæma útkomu," sagði Hrafnkell Eiríksson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnuninni en rannsóknaleiðangri sem farinn var á Dröfn RE til að kanna ástand hörpudiskstofnsins í Breiðafirði Iauk í síðustu viku. Hrafnkell tók fram að þrátt fyrir að ástand veiðistofnsins virtist vera mjög slæmt væri ánægjulegt að ný- liðunin í hörpudiskinum virtist vera mjög góð. Það hefði komið fram í mælingunni í október og leiðangurinn nú í apríl gefur lfk- lega sömu niðurstöðu. Sýni tekin fyrir fisksjúk- dómarannsóknir Ástand hörpudiskstofnsins í Breiðafirði er kannað reglulega í apríl ár hvert. Að þessu sinni voru tekin ríflega 100 tog á helstu veiðisvæðum í firðinum. Upphaf- lega voru tekin 120 tog í þessum mælingum en Hrafnkell sagði að ekki væri þörf á því að kanna dauð svæði með reglubundnum hætti en eitt og eitt tog væri tekið þar til að kanna hvort þar væri einhver nýliðun á ferðinni. Það tók um 4 daga að kanna svæðið en auk þess voru tekin sýni fyrir fisksjúkdómarannsóknir sem ver- ið er að vinna að á Keldum. Sem kunnugt er hefur orðið mikill náttúrulegur dauði á hörpudiskin- um, einkum á stórri skel í veiði- stofninum. Verið er að kanna or- sök þess en dauði hennar var m.a. talinn tengjast hærra hitastigi sjávar. „Við tókum sýni í haust og Hrafnkell. þau gáfu til kynna að stóra skelin hefði drepist úr frumdýrasýkingu. Þetta voru að vísu fá sýni en við tókum nægilegan fjölda sýna nú til að fá tölfræðilega marktæka niðurstöðu," sagði Hrafnkell. Nokkrir árgangar yfir meðallagi í nýliðun Fram kom hjá Hrafnkeli að nokkr- ir árgangar af ungskel virtust vera í meðallagi stórir eða þar yfir. Sú skel kemur til með að skila sér inn í veið- ina á næstu árum að því gefnu að hún fái eðlileg vaxtarskilyrði en um það er auðvitað ekkert hægt að fullyrða. Skelin skilar sér yfirleitt í veiðina 5-6 ára að aldri en það er þó misjafnt eft- ir svæðum. Sum staðar er hún eldri þegar hún fer að veiðast. „Við sjáum ekki árangurinn af nýliðuninni fyrr en eftir nokkur ár. Hugsanlega gæti fyrsti góði árgangurinn skilað sér inn í veiðina í fyrsta lagi haustið 2004 ef allt fer að óskum." Ákvörðun um áfram- haldandi veiðar líklega tekin í haust Fram kom hjá Hrafnkeli að lítil sem engin nýliðun væri á þeim svæðum sem skilgreind hafa verið sem dauð svæði. Það rétt vottaði fyr- ir nýliðun á einum og einum stað. Hins vegar er nýliðunin mest á þeim svæðum þar sem veiðin hefur verið mest og jöfnust í gegnum tíðina. Hrafnkell var spurður hvort beðið yrði með veiðiráðgjöf Hafró fram á SNÆFUGL SU-20 J ! : i' Jf 1020 tunu v. Við óskum útgerð og óhöfn til hamingju með nýjan og glæsilegan brunnbát Smiðjuvegi 5 - Kópavogi - S. 5 3 5 1 2 0 0 - H j a 11 e y r a r g a t a 4 ÍSKRAFT Hörpudiski landað. haustið í ljósi þessara mælinga og þess að ástand stofnsins hrakaði mjög í fyrra frá því rannsóknir voru gerðar í aprfl og þar til veiðar hófust um haustið. „Við munum gera grein fyrir stöðu hörpudisksins og mati okkar á stærð veiðistofnsins og ný- liðun í ástandsskýrslu Hafrann- sóknastofnunar nú í maí. Eg geri ráð fyrir að annar leiðangur verði farinn næsta haust til að kanna ástandið þá. Eg get ekkert sagt til um hvemig veiðiráðgjöf okkur mun líta út að öðru leyti en því að öllum er Ijóst að hún verður ekki upplífgandi. Það er einnig vel hugsanlegt að endanleg ákvörðun stjómvalda um veiðamar verði ekki tekin fyrr en einhvem tím- ann í byrjun næsta fiskveiðiárs, eftir haustrannsóknir," sagði Hrafnkell. Sníkjudýr greint í hörpudiski úr Breiöafiröi — of snemmt að fullyröa um hvort þaö tengist orsökum affalla í hörpu- diskstofninum, segir Siguröur Helga- son fisksjúkdómafræöingur Rannsóknir fara nú fram hjá Rannsóknadeild fisksjúkdóma að Keldum á því hvort frumdýrasýking hafi valdið dauða hörpudisks í miklum mæli í Breiðafirði. Mikil afföll hafa orðið í hörpu- diskstofninum á Breiðafirði undan- farin misseri. Getum hefur verið að því leitt að þau tengdust hækkandi sjávarhita. Ástæða þótti þó til að at- huga hvort aðrar orsakir kynnu að valda þessum afföllum. Sérfræð- ingar Hafrannsóknarstofnunarinnar sendu því sýni á Rannsóknadeild fisksjúkdóma að Keldum til sjúk- dómarannsókna í lok síðasta árs. Frumniðurstöður rannsókna á Keldum staðfesta umtalsverða frumdýrasýkingu samfara vissum vefjabreytingum í skelfiskinum. „Á þessu stigi er óvarlegt að fullyrða um tengsl þessa smits við hin miklu afföll," sagði Sigurður Helgason fisksjúkdómafræðingur í samtali við Fiskifréttir. Hann tók fram að full ástæða væri til að kanna þetta nánar og um þessar mundir er að fara af stað umfangs- mikil sjúkdómarannsókn í sam- vinnu við sérfræðinga Hafrann- sóknarstofnunarinnar. Markmiðið er meðal annars að sýna fram á hvort tengsl séu á milli þessarar frumdýrasýkingar og affalla á veiðistofni hörpudisks á Breiða- firði. Meðal annars verður horft til fleiri veiðisvæða. Einnig verða mismunandi skelfisksárgangar bomir saman, en afföll hafa ekki náð til yngstu árganganna. Sigurður tók skýrt fram að þessi frumdýrasýking heíði engin áhrif á heilsu manna sem neyttu hörpudisks.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.