Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 13

Fiskifréttir - 02.05.2003, Page 13
FISKIFRETTIR 2. maí 2003 13 FRÉTTIR Ný Jóna Eðvalds SF kemur til heimahafnar á Hornafirði uin síðustu helgi. (Mynd: Herinann Stefánsson). Nýtt skip til Skinneyjar-Þinganess: Karalausnir frá 3X-Stál eru sterkar og áreiðanlegar J Betri meðferð hráefnis & Betri nýting starfsfólks og lyftara ^Jafnari innmötun og meiri afköst & Sterkur og endingargóður vélbúnaður Karamagasín og karalyfta Miðstýrt eftirlit með fiskveið- um í aðildarríkjum Evrópusam- bandsins verður eflt til muna á næstunni með sérstakri stofnun sem komið verður á laggirnar í Brússel. Henni er ætlað það hlut- verk að fylgjast með því hvernig eftirlit er framkvæmt í einstök- um aðildarríkjum og stuðla að samræmingu og samhæfingu milli landa. Meðal annars á að fylgjast betur með því en hingað til að sá afli, sem veiddur er á fiskimiðum eins ríkis en landað í öðru ríki, skili sér til bókar. Þetta á t.d. við um lýsing (northern hake), en meira en helm- ingur hans er veiddur við strendur Irlands og yfir helmingi hans er landað á Spáni. í því sambandi þarf að bera saman tölur írskra veiðieft- irlitsskipa og löndunarskýrslur á Spáni. í breska blaðinu Fishing News er nýju stofnuninni líkt við „Stóra bróður“ sem fylgjast eigi með hverri hreyfingu þegnanna. Fram kemur að breskir sjómenn hafi blendnar tilfinningar gagnvart þessu nýja framtaki. Annars vegar þykir þeim nóg um ofstjórn fisk- veiðimála frá Briissel, en hins veg- ar telja þeir sig vera meira undir smásjá eftirlitsmanna við veiðar sínar en fiskimenn í aðildarríkjum sunnar í álfunni og því sé rétt að láta eitt yfir alla ganga. Leiðara- höfundur Fishing News er hins vegar vantrúaður á að hin nýja stofnun hafi mannafla til þess að hreinsa ærlega til þar sem þess sé þörf. Menn muni setja upp spari- svipinn meðan herrarnir frá ESB séu í heimsókn en síðan hrökkvi allt í sama farið aftur. Eflir landvinnslu í loðnu og síld — segir Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformaöur Karamagasín, karalyfta og innmötunarband með sjálfvirkri hráefnisstýringu er einföld og ódýr leið til að auka hagræðingu í móttökunni. 3X-Stál Sindragata 5, 400 ísafirði Sími.: 456 5079 www.3x.is Fax: 456 5479 e-mail: info@3x.is Sérstök eftirlitstofn- un með fiskveiðum Skinney-Þinganes hf. hefur gengið frá kaupum á nóta- og togskipinu Adeniu II frá Leirvík á Hjaltlandi. Skipið hefur þegar verið afhent og kom það til heiinahafnar á laugardaginn. Skipið mun heita Jóna Eðvalds SU og kemur í stað eldra skips með sama nafni. Gamla skipið mun ganga upp í kaupin. Skipið er búið kælitönkum og ber um 1.200 tonn. Það er 57,6 m langt og 12,5 m breitt og í því er 3.000 hestafla aðalvél. „Nýja skipið mun taka við þeim verkefnum sem Jóna Eðvalds SU hafði og nær væntanlega að sinna þeim betur því það er nýrra, stærra og hefur auk þess togbúnað fyrir flottrollsveiðar sem var ekki í eldra skipinu," sagði Gunnar Asgeirs- son, stjómarformaður Skinneyjar- Þinganess hf„ í samtali við Fiski- fréttir. Gunnar sagði að flottrollið gæfi meiri möguleika á því að veiða bæði síld og loðnu. „Þetta leggst nijög vel í mig. Við höfum unnið síld og loðnu mikið til manneldis og nýja skipið mun styrkja land- vinnsluna hjá okkur enda er það hugsunin með kaupum á því.“ Ekki hefur verið ákveðið hvert fyrsta verkefni nýja skipsins verður en búist er við því að það muni fara á veiðar á norsk- íslensku síldinni. Adenia II er ekki alls kostar óþekkt skip hér á landi því það hét upphaflega Pétur Jónsson RE. Það var forveri samnefnds skips sem síðar fékk nafnið Húsvíkingur ÞH. Adenia II er smíðuð eftir sömu teikningu og skipin sem nú heita Askell EA og Þorsteinn EA. Óskum útgerð og áhöfn innilega ...........u með nýjan brunnbát o o FRETTIR Auglýsingar 511 6623

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.