Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K - 01.12.1936, Síða 3

Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K - 01.12.1936, Síða 3
Barna1eikvö1lur. Frá starfsemi U. M. F. K. Eitt af því, sem allir bæir leggja nú áherzlu á að koma ser upp eru barnaleikvellir enda er það vafalaust eitt af stærstu nauð- synjamálum vaxandi bæja eins og her í Kefla- vík. Svo vel vill til að hreppsnefndin hef- -ir til umráða stórt og gott land, einmitt í þessu augnamiði, aðeins vantar framtak til að taka það í notkun. Að vísu yrði nokkur stofnkostnaður í fyrstu, því nauðsynlega þarf að girða landið vel, og svo að setja upp rdlur, sandkassa og því um líkt, sem börnin gætu leikið sér við. Yafalaust væri ægt að láta unglinga og börn prýða og fegra staðinn með ræktun og með því að gróðursetja tráplöntur og blóm, sem svo síðar bæru þegj- andi vitni um vilja og orku ungu kynslóðar- innar. Uauðsynlegt er líka að fá börnin burt af götunum, þar eru pau í stöðugri hættu og umferðinni til trafala, og þar læra þau ekkert nema prakkaraskap og-illt eitt, en undir því fyrir hvaða áhrifum börnin verða í æsku, er framtíð þeirra kominn, það er svo margsannað að ekki er hægt að hrekja það. Þetta mál, barnaleikvöllurinn, er því mál allra þeirra, sem vilja framtíð Keflavíkur vel, og allra þeirra, sem mí verða að gera sér að góðu að senda börn sín út á götuna tii leikja. Ungmennafélag Keflavíkur mun beita sér fyrir því að þetta mál verði tek- -ið til rækilegrar meðferðar þegar á næsta ori, og enginn vafi er á því að margar hend- ar verða boðnar til starfa bæði af félags- mönnum og utan félags. Það verður að gera ráð fyrir því að hreppsnefnd leggi þessu eitthvert lið, vegna þess að það er með öllu ótækt, að enginn staður skuli vera til þar sem börn mega njóta leikja sinna án þess að vera í hættu eða til ama. Ungmennafélagið hefir fyrir löngu séð nauðsyn þessa umbótamáls og nú má ekki láta staðar numið fyr en leikvöllurinn er kominn upp, þótt hann verði ekki fullkominn í fyrstu þá er mikið búið þegar verkið er hafið, og það er skylda Ungmennafélagsins sem er máls- vari æskulýðsins að láta þetta mál til sín taka, eins og önnur menningar og umbótamál Keflavíkur. Leikfimiskennslan er nú fyrir skömmu byrjuð í húsi U.M.F.K., kennari er eins og undanfarna vetur Rögnvaldur Sveinbjörnsson, þátttaka hefur aldrei verið eins góð og nú enda eru nú öll skilyrði betri en áður, bæði er pláss gott og heitt og kalt bað. Þátt- takendur í leikfiminni eru nú alls um 190 og enn munu nokkrir þátttakendur ókomnir. Kennt er 7 tíma á dag. Félagið annast leik— fimiskennslu fyrir barnaskólann 0g unglinga- skóla séra Eiríks Brynjólfssonar. Leikflokkur U. M. F. K. hefur nú sýnt sjón- leikinn Æfintýri á gönguför 3« sinnum við ágæta aðsókn. Nýlega eru byrjaðar æfingar á gamanleiknum Hnefaleikameistarinn, en það er afar fjörugur og bráðfyndinn leikur. Aðalhlutverkið leikur Arinbjörn Þorvarðarson. Saumanámskeið fyrir félagskonur hefir nú starfað undanfarið, þátttakendur þar eru um 35, kennari er frú Jódís Runólfsdóttir úr Keflavík. Námskeiðið er ókeypis fyrir með- limi félagsins. Til að standa straum af kostnaði ætla þátttakendur að halda skemmtun á næstunni, vonanai verður hún vel sótt, svo að sem minnst af útgjöldunum komi á félags- sjóð. Alþýðufræðsla ' U. M. F. K. er nú tekin til starfa, þegar hafa verið flutt 2 erindi, af þeim próf. Guðbrandi Jónssyni og árna Friðrikssyni fiskifræðing. Erir.din hafa verið vel sótt og fólk sýnt lofsverðan áhuga fyrir þessari nýbreytni. H1jómsveit er nýstofnuð hér £ Keflavík, eru það 4 menn með 2 harmonikur, trommu og fiðlu, þykir þeim takast furðu vel með svo lítilli æfingu. Á harmonikuna spila þeir Ingólfur Magnúss. og Ol.R.Guðm., á trommuna Jóh.Kr. Guðmundss. og á fiðluna Bjarni Ossurarson, eiga þeir allir þakkir skilið.

x

Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K
https://timarit.is/publication/1620

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.