Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K - 01.12.1936, Page 4

Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K - 01.12.1936, Page 4
Þ E 0 T T U E Sundlaufi í Keflavík. Sumaríð 1,934 vur sundlaugarmálinu fyrst hreyft með nokkrum árangri innan U. M. F. K. Þá var kosín nefnd til að athuga möguleika á framkvæmd þessa mikla og nauðsynlega menn- ingarmáls Kefiavíkur. Enda þótt svona langt sé um liðið írá því að þetta var fyrst tekið til athuganar, þé hefir árangurinn ekki orð- ið jafn mikill, f><5 hafa verið gerðar hér nokkrar athuganir á kostnaði, hvar hentugasti staðurinn væri o.fl. Sumarið 1935 kom hingað á vegum Sund- laugarnefndarinnar Jóhann Kristjánsson, verk- -fræðingur, sem á fyrir hönd ríkisstjórnar- imar að veita ókeypis aðstoð og teikningar við byggingu sundlauga, lofaði hann að senda tillögu teikningar þá um haustið, en ein- hverra orsaka vegna hefir hún ekki fengist ennþá. Eefndin afiaði ser þá ýmsra upplýs- inga frá þeim stöðum, þar sen heitar sjó- sundlaugar eru starfræktar (Vcstm.eyjum og Eol.vík) og fékk til athuguncr teikningu af Bolungavíkurlauginni, sú sunclaug er 8 x 13 rnetrar að stærð , og mun hafa kostað um 13 þris. krónur, nokkurn hluta byggingarkostnaðar á ríkissjóöur að leggja fram svo hann verður ekki eins tilfinnanlegur og í fljótu bragði virðist. Að margra áliti, sem um þessi mál eru fróðir, þykir róttara að hafa laugina stærri, t.d. 10 x 25 metra, reksturs og byggingarkostnaður er ekki þeim mun meiri, en þá er laugin líka bygð fjcrir framtíðina, og þess ber að gæta í þorpi, sem er í eins örum vesti og Keflavík. Annars er á þessu stigi málsins ekki gott að segja mikið um einstök atriöi, til þass þurfa að vera fyrir hendi bæði teikningar, kostnaðaráætlun og áætlun U3 rekstrarkostnað, en af þeim upplýs- ingum, sem þegar eru fengnar og reynslu ann- ara héraða þá er sundlaugarbyggingin hór ekki nein ský’jaborg, sem ókleyft er að framk\7æma, aðeins ef tekst að skapa áhuga almennings fyrir málinu. Um nauðsyn sundlaugar hér þarf ekki að fjölyrða, allir eru sammála um, að sund- íþróttin er ein af þeim heilbrigðustu og nauðsynlegustu íþróttum, sem iðkaðar eru, og sérstaklega hér í Keflavík er sundkunn- é.tta mikils virði, þar sem mest :r hluti íhua stundar atvinnu við og á sjó. Spurningin er ekki sú, hvort skuli byggja sundlaug eða ekki, heldur hvernig skuli afla fjár til framkvæmda. Það er okkur fullkomlega ljóst, að fjár- söfnun þarf þegar að hef jast med miklum krafti. Sundlaugamefnd U. M. F. K. er búin að afla um 300 kr. í.sjjóð, en það nægir skammt. Almenningur og allir áhugamenn fyrir íþrótt- um þurfa að sameinast um sundlaugarbygging- una. íg te1 engan vafa á því, að margir vildu gefa 1-2 dagsverk, og vænti ég þess að nefndin láti fara út með lista til að leita áskrifta, og sjá hvernig undirtektir verða. Einnig væri ef til vill ráð að stofna til , ’'Krónuveltu,, eða einhverra annara aðferða, sem vænlegar eru til að bera góðan á~angur. Þrátt fyrir alla örðugleika, sem kunna að verða á ve.gi þessa máls, þá er það svo mikilsvert, að það œá ekki gleymast. Okkur vantar nauðsynlega hitaða sundlaug, því það er ekki vansalaust fyrir svo stórt pláss sem Keflavík er, að geta ekki kennt sund, en að vera með unglinga í ískölaum sjó og miður vel hreinum getur beint verið hættulegt heilsu þeirra auk þess sem það fælir alla daufgerðari unglinga frá sund- náini, einmitt þá, sem þurfa þess mest með. Hefjumst nú handa, allir sem einn, þá verður ef til vill hægt að byrja að byggja sundlaugina í vor. Og þið, sem eigið eftir að rétta þessu máli hjálpar hönd, verið vissir um, að ykkur iðrar þess ekki, þegar við eig-am stóra og góða sundlaug á góðum stað í þorpinu. H. S. þr(5ttup. innanfélagshlað U. M. F. K. Gefið út 1. des. 1936. Ritstjórar: Ingibjörg ólafsdóttir og Bergþóra Porbjarnardóttir.

x

Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þróttur : innanfélagsblað U.M.F.K
https://timarit.is/publication/1620

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.