Konungurinn kemur - 08.06.1936, Blaðsíða 3

Konungurinn kemur - 08.06.1936, Blaðsíða 3
KONUNGURINN K E M U Rj 3 Konungurinn og fólkið Undanfarnar vikur hefir Rík- isútvarpið og dagblöðin hér, verið að skýra frá væntanlegri hingað komu konungs íslands og Danmerkur, Kristjáns Frið- rikssonar og einhvers hluta af hans fyrirferðarmiklu fjöl- skyldu. Viðburður þessi mun eiga að ske 18. júní. Ritari konungs, Jón Svein- björnsson, hefir verið á ferð hér undanfarið til þess að und- irbúa móttökurnar hér heima, og hefir hann fenið í lið með sér nokkrar toppfígúrur úrbur- geysastétt höfuðstaðarins, sem vænta mátti, því alltaf er nóg til af þeim andlegu fáráðling- um sem lifa og hrærast í mun- aðarsjúkri fýsn til þess, að vera stöðugt á verði, með hundslegri undirgefni, þar sem einhverrar hollustu eða náðar drottnarans er að vænta. Slíkt er alger regla meðal æðri stétta, sem kalla sig, í hverju sið- spillandi þjóðfélagi, eins og því sem við nú höfum við að búa. Það er nú hægt að segja sem svo, að ekki sé neitt við það að athuga, þó að konung- ur íslands skreppi hingað stöku sinnum, þó aldrei væri nema til að þakka fyrir þessar 60—70 þúg. krónur sem að honum er launað, ekki fyrir neitt, úr hálftómum ríkiskass- anum ár hvert. Það er auðvit- að ekki nema tilhlýðanleg kurteysi, en reynsla undan- genginna heimsókna hans, hef- ir sýnt, að þessi kurteysisvott- ur vill verða nokkuð dýrkeypt- ur okkar litlu getu og fyrir liggju í því efni ótal neikvæð- ar staðreyndir, sem ekki verð- ur á móti mælt. Það er ekki vitanlegt, að á fjárlögum ríkisins þetta ár, sé nokkurri upphæð varið til konungsmóttöku. Þeir, sem með völdin fara telja þess sjálfsagt enga þörf, því það er orðin siðvenja að hnupla pen- ingnm úr ríkisfjárhirslunni und- ir þeim og öðrum álíka kring- umstæðum. Alþýðan, fólkið í landinu, er ekki spurt ráða í því efni frekar en oft endra- nær, því er ætlað að liggja hundflatt fyrir vilja valdhaf- anna og hverri þeirri svívirð- ingu, sem þeim dettur í hug að framkvæma. — En þegar kemur að skuldadögunum þá er alþýðan skattlögð og pínd til þess að „borga brúsann“, þetta er reynsla liðinna tíma og við hana verðum við að miða hið komandi á miðan að þjóðfélagshættirnir eru í eins miklu ósamræmi við lífsafstöðu fjöldans eins og þeir eru nú. Þeir erfiðu tímar, fjárhags- og atvinnulegu tilliti, eru nú yfir- vofandi, að fyllsta ástæða er til að bera kvíðboga fyrir íram- tíðinni. Er þá nokkuð undar- legt þó í slíkum neyðartímum heyrist háværar raddir um það, að fyllstu varúðar sé gætt um meðferð þess fjár, sem press- að er út úr þrautpíndri og blá- snauðri alþýðu. Nei, sú krafa er í fyllsta máta réttmæt og sjálfsögð. Nú er svo komið að verklegar framkvæmdir hafa verið skorn- ar niður. Hinni sjálfsögðu kröfu íslenzks verkalýðs, um að fá þræla fyrir brýnustu þörfum til framdráttar lífinu hefir ver- ið byggt út í myrkvið úr úr- ræðaleysins. Á sama tíma, sem þetta allt er gert og hin- ar hjátóma raddir valdhafana bergmáía hæðst um peninga- vandræði og tómarfjárhirzlur, er einum manni út í Kaup- mannahöfn gefnar árlega 60— 70 þús. krónur í vasapeninga til þess að leika sér með eftir eigin geðþótta. Á sama tíma og bláfátækir og atvinnulausar verkamannafjölskyldur, sem búa í óþrifalegum kjallarahol- um hér í Reykjavík eiga ekki fyrir næstu máltíð, kvað þá forsvaranleg föt til að klæðast í og börnin þeirra verða verða drekka vatn í stað mjólkur, þá er verið að undirbúa dýrlegar átveizlur ásamt skemmtiferða- lögum og öllu tilheyrandi fyrir þennann eina mann, sem hlot- ið hefir titilinn, konungur af guðs náð. Og þó einhver hluti af fjölskyldu hans fylgi með er vitanlega ekkert meiragert fyrir því. En ekki nóg með það, heldur hefir nú verið sett á laggirnar launuð möttöku- nefnd og í hana valdir menn, sem hvor fyrir sig, hefir óefað sjöfaldar tekjur á við hvern óbreyttan verkamann. Þó nú vel geti verið, að þessir menn séu heppilega valdir til starf- ans og t. d. Ragnar E. Kvar- an, sé smekkmaður á fleira en skáldsögur og ástir, þá er nú samt ekki Joku fyrir það skot- ið, að í atvinnuleysingjahópn- unj mætti fmna eitthvað af slíkum mönnum og þyrfti sjálf- sagt ekki lengi að leita. Ólíkt hefði það nú verið mannúð- legra að veita einhverjum slík- um þessa atvinnu, fyrst hún á annað borð, að áliti valdhaf- anna, þurfti að framkvæmast, hún hefði þá getað orðið nokk- urskonar atvinnubótavinna fyr- ir þá, sem hennar nutu. En að Ragnar E. Kvaran, Haraldur Árnason og þeirra líkar séu þurfnir fyrir atvinnubótavinnu, er meir en í meðallagi ósenni- legt. „Konungurinn kemur 18. júní. Verið viðbúin!" hljómar frá gjallarhornum útvarpsins og og dagblöðin taka undir. En kvað hugsar fólkið um þessa væntalegu viðburði? Yfirstétt- inn, hinir háttséttu borgarar búa sig af kappi undir kon- ungskomuna. Hús eru þvegin og gluggar fægðir. Tískuföt eru keypt til að skapa nýjann og ásjálegri líkama. Áfeng sæluvíma gegntekur hugi þessa fólks, -það lætur sig dreyma um dýrðlegar átveizlur og skemmtiferðalög í konungs- fylgd á ríkiskostnað auðvitað, og fingurnir kreppast um eig- in pyngjur túlkandi ást og lotn- ingu fyrir verðmætum þeim sem þær geyma og í þeim 17. júní - Tvær stórhátíðar eru skammt framaudan: 17. júní, afmælis- hátíð Jóns Sigurðssonar sjálf- stæðishetju íslenzku þjóðarinn- ar, framasta baráttumanns al- þýðunnar á sínum tíma. 18. juní, móttökuhátíð Kristjáns Friðrikssonar kóngs, sem lít- ur eftir sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar fyrir (smá) þókn- un, en kostar áreiðanlega töluvert auka smá-fé þegar hann lítur hingað af náð, sem lof sé — sjaldan er. Þessvegna er hér í borg- inni oft mikið frelsi árum sam- an. fátæk og vanhirt börn, hafa frelsi til að vera fátæk og vanhirt sjálfstætt úti og inni, — nema á svona hátíðum tæp- ast úti. ákvaðna tilgangi að láta þær ekki léttast að mun við þetta tækifæri. — Ríkið borgar, það er takmarkið. En alþýðan, fátæklingarnir eiga enga slíka drauma, þeir gera sér það ljóst, að þeim verður aldrei ætlað sæti við konungsborð með dýrumjkrás- um. Og þeir vita það líka, að þeim verður heldur ekki boðið í skemmtiferðir til fegurstu staða landsins. Nei, ekkert slíkt mun fátæklingunum hlotn- ast. Það eina, sem þeir verða aðnjótandi í þessu sambandi er, að fá að borga viðtökurnar að sínum hluta og það ríflega. Hver er þá krafa alþýðunn ar í þessu efni? Krafa hennar er að engu f sé eytt úr ríkissjóði til hinn? væntanlegu konungsheimsókn- ar — þeim konunghollu mönn- um, sem tilbiðja slík skurðgoð, er vitanlega heimilt að hafa þú viðhöfn, sem þeim sjálfum finnst viðeigandi og á sinn eigin kostnað, við því er ekk- ert að segja, en að til þess sé eytt af almannafé, er í and- stöðu við alla skynsamlega og siðlega breytni, eins og nú er högum háttað í atvinnu- og fjármalalífi þjóðarinnar. — Þetta er hin skýlausa og rökstudda krafa íslenzkrar al- þýðu, og þó að alþýðan hafi ef til vill ekki mátt til að bera þá kröfu fram, sem samræmd heild, þá er það víst, að þessi hugsun á djúpan og þrótt- mikinn hljómgrunn í hugum fólksins í dag. Valdimar H61m HaÚstað. -18. júrtí 17. júní er frelsisbarátta ís- lenzku þjóðarinnar lofsungin. Þá er þjóðin frjáls þjóð. — 18. júní eru fjötrar hennar hert- ir í konungshollustu þá er ís- lenzka ríkið frjálst og fullvalda konungsbundið lýðríki undir Dönum við sama kong. Konungum er fagnað. Hús borgarinnar eru þvegin og máluð, port hreinsuð, fyrir konginn, — því hann er stór maður, sem kemur af náð. 17. júní er stór hátíð, hátíð mannsins, sem barðist fyrir þjóð sína móti konginum. 18. júní er stór hátíð, hátíð kongsins, sem sigraði þjóð mannsins, sem barðist fyrir frjálsri þjóð. Hvor er stærri?

x

Konungurinn kemur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Konungurinn kemur
https://timarit.is/publication/1622

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.