Hópsblaðið - 01.02.1937, Síða 2
2
HÓPSBLAÐIÐ
Baden Powell
80 ára.
I dag, þ. 22. febrú-
ar, er Baden Powell,
alheimsforingi skáta,
80 ára. Þessi maður,
sem án efa, er mest
virtur allra manna,
meðal unglinga. B. P.
hefir unnið mest gagn
allra manna i uppeld-
ismálum drengja, þvi
hann stofnaði árið
1907 skátafélagsskap-
inn, sem er nú sá
allra fjölmennasti
hópur æskumanna,
sem til er í heiminum.
Upphaf skátahreyfingarinnar var það, eins
og flestir munu vita, að B. P. stjórnaði enskri
hersveit í Búastríðinu um siðustu aldamót.
Hann varð strax heimsfrægur í þessu stríði
fyrir það, að verjast fámennur ofurefli liðs
í þorpinu „Mafekiang“. I þessu stríði notaði
hann drengi til að koma orðsendingum til
manna sinna.
Er skátakerfið að nokkru reist á viðkynn-
ingu hans við þessa drengi.
Eftir að stríðinu slotaði, starfaði B. P. við
nýlendur Breta í Afriku, og kynntist liann
þar lífi og háttum innfæddra náttúruharna,
sem hjargast urðu á eigin spýtur við skamt
þann, sem náttúran hefir að bjóða. Árið 1903
kom hann heim til Englands. Sá hann þá
fljótt ýmsar þjóðfélagsmeinsemdir, er nútíð-
armenningunni fylgja, en náttúruhörnin liöfðu
lítið af að segja. Yann hann nú um nokkurra
ára skeið að undirhúningi æskulýðshreyfing-
arinnar, og árið 1907 safnaði hann saman
nokkrum drengjum úr Lundúnaborg, lét þá
hafast við um skeið í tjöldum úti á víðavangi
og lét þá sjá sér sjálfum farborða að öllu leyti.
Árið 1908 gaf B. P. út handhók skáta, sem
er sniðin eftir lundarfari drengja. A reglum
þeim, sem hann gefur í þessari bók, er skáta-
félagsskapurinn reistur.
Skátafélagsskapinn ætlar B. P. drengjum á
aldrinum 12—18 ára, en til að gera ekki upp
á milli, bjó liann einnig' til reglur fyrir yngri
drengi, sem hann nefndi „Wolfs“ (Ylt'inga),
og eru þeir á aldrinum 8—12 ára. Beglur
ylfinga eru að flestu likar hinum, nema hve
þær eru léttari og svo meira af leikjum. „Bo-
vers“ eru skátar ,sem eru orðnir 18 ára, en
vilja starfa áfram. Þeir starfa eftir frjáls-
ari reglum, og' hjálpa svo hinum yngri við
kennslu.
Áður en eg' lýk þessum linum mínum, sem
eru teknar upp úr ýmsum bókum um B. P.,
vil eg láta þess getið, að vilji minn er mik-
ill til að skrifa miklu meira um þennan mæta
öldung, en sökum rúmleysis varður það ekki
meira að þessu sinni.
Að endingu óska eg' þess, af heilum hug,
að við skátar mættum njóta góðs af hinum
aldraða unglingi enn í nokkur ár.
Lengi lifi alheimsforinginn Baden 1‘owell!
Flestir drengir í Beykjavik kannast við Ylf-
ingahókina, eftir Baden Powell, höfund skáta-
reg'lunnar. Sumargjöfin hefir gefið út tvö hefti
af henni, undir nafninu Sólskin. Síðasta heft-
ið er enn ókomið, en í ráði er að það komi
út nú í vor. Steingr. Arason er að þýða það.
Þessi hók liefir verið þýdd á flestöll tungu-
mál lieimsins, og drengir lesa hana i öllum
löndum, sér til gagns og gleði.
Hér fara á eftir nokkrar setningar úr hók-
inni, teknar víða að og af handahófi:
„Þið munið eftir þvi úr sögunni af húálf-
unum, að litlu g'óðu drengirnir fóru á fætur
á undan öllum öðrum, og voru búnir að gera
margt og' mikið til gagns, áður en aðrir komu
á fætur. Svo munið þið líka, að þar voru trass-
ar og sóðar, sem ekkert gerðu annað en a5