Hópsblaðið - 01.02.1937, Blaðsíða 3

Hópsblaðið - 01.02.1937, Blaðsíða 3
HÓPSBLAÐIÐ 3 ólmast með hávaðalátum og óþrifnaði, og skildu allt eftir óhreint og í óreiðu. Ylfingar vilja ekki vera trassar og' sóðar. Þeir líkjast góðu drengjunum, sem hjálpa til að gera allt fínt og fallegt á heimilinu, og vinna allt sem þeir geta til gagns fyrir pabba og mömmu og aðra. -—- Sá maður er nefndur prúðmenni, sem hef- ir stað fyrir hvern hlut, og hvern hlut á sín- um stað. Þessi reglusemi og' snyrtimennska gerir bæði okkur sjálfum og öðrum lífið miklu þægilegra og skemmtilegra. — Mér þykir gam- an að húa sjálfur um rúmið mitt og g'anga sjálfur fallega frá fötunum mínum, og þá ekki sízt að hreinsa skóna mína. Það er reglu- lega indællt að liorfa á glóandi fagra skó á fótunum á sér, og' vita, að maður sjálfur hefir gert þá svona fallega. Þegar skátar og ylfingar vaxa upp, vonum við, að ekki verði til fólk, sem hendir sorpi frá sér í allar áttir. Út yfir tekur, að kasta frá sér rusli á stræt- um í borgum. Það er ekki aðeins óverjandi sóðaskapur, heldur getur það verið stórhættu- legt. — Fátt er meiri iiæjarprýði en fagur skrúð- garður. Skrúðgarður ætti að vera til á hverj- um bæ, í hverju þorpi og margir í Reykjavik. Yið liliðið á skrúðgarði einum i Skotlandi liangir spjald, og á það er letrað erindi, sem að efni til er líkt því, sem liér fer á eftir: „Gerðu svo vel að muna þetta: Eplahýði og alls kyns drasl, úldið slor og spýtnahrasl, flöskubrot og hlaðasneplar, brotnir kassar, dósageplar, matarleyfar, mjólkurslettur, morknar druslur, sígarettur. Víst er að þessu skömm og skaði, er skemmir alla fagra staði. Skilaðu góðri götu þinni Guði, mönnum, veröldiimi.“ Ylfingar verða að gæta sín, að vera hér til fyrirmyndar, eins og annars staðar.“ Þessar tilvitnanir sýna, hvað hókin er gagn- leg. Allir ylfingar hlakka til að geta fengið hana. HÓPS6LAÐIÐ Útgefið af Ylfingum. líitstjóri: Geir Hallgrímsson. Auglýsingastjóri: Gunnl. K. Eiríksson. Utanáskrift: Fjólugötu 1, lteykjavík. Sími 3284. Úp sjómannsins. Einu sinni kom sjómaður til úrsmiðs með úr og' spurði, live mikið það mundi kosta, að láta gera við það. Þegar úrsmiðurinn liafði athugað úrið, sagði hann: „Úrið yðar er mjög mikið skemmt, og viðgerðin mun kannske kosta yður helmingi meira, en þér gáfuð fyrir úrið.“ „Það gerir ekkert til,“ svaraði sjómað- urinn, „ eg' hefi aðeins horgað úrið með einu kjaftsliög'gi, og' eg vil gjarnan horga yður tvö fyrir að gera við það.“ Ylfingalögiri. Ylfingur lilýðir gamla úlfinum. Ylfingur gefst aldrei upp. Ylfingaheitið. Eg lofa að reyna eftir megni: -að halda ylf- ingalögin og' að gera á hverjum degi eitt- livað öðrum til gleði og lijálpar. Vertu viðbúinn. Vertu viðhúinn, til að láta eftir megni öðr- um i té, það sem þeir þarfnast. Berðu böggla, stattu upp úr sæti þínu, svo að þeir, sem eru eldri og þreyttari, geti fengið að sitja. Vís- aðu ókunnugum vegi, gakktu með þeim, ef þess þarf með. Skglclan fgrst, hjá glfingum. Hvað er skylda? — Skylda ylfinga er að hlýða ylfingalögunum og heitinu. Þess vegna verður þú að kunna livort tveggja, ef þú vilt verða ylfingur. Og það er ekki nóg. Þú verð- ur lika að skilja það og breyta eftir því, á- valt og' alls staðar.

x

Hópsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hópsblaðið
https://timarit.is/publication/1624

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.