Fjarðarfréttir - 06.07.2017, Blaðsíða 3
www.fjardarfrettir.is 3FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Flatahrauni 5a Hfj. Sími: 555 7030
Opið alla daga frá kl. 11:00 til 22:00
Kíktu á matseðilinn á
www.burgerinn.is
Hafnarfjarðarbær hefur auglýst eftir
tilboðum lögaðila í 26 tvíbýlishúsalóðir,
6 raðhúsalóðir og 6 fjölskylduhúsa
lóðir.
LÓÐUM UNDIR 54 HÚS
ÚTHLUTAÐ
Þrettán einbýlishúsalóðum og 18
parhúsalóðum (36 hús) verður úthlutað,
en einungis til einstaklinga. Dregið
verður í númeraröð úr gildum um
sóknum og markar númer jafnframt
röðun í vali á lóðum í hverfinu. Stefnt
er að því að draga úr umsóknum 7.
september. Tveir einstaklingar þurfa að
sækja um parhúsalóð og standast 40
milljón kr. greiðslumat per hús.
Lágmarksverð á einbýlishúsalóð
miðað við 220 m² hús er rúmar 12
milljónir kr. og tæpar 9,8 milljónir kr.
fyrir parhúsalóð þar sem miðað er við
200 m² hús.
Þeir lögaðilar sem bjóða í lóðir þurfa
að greiða a.m.k. lágmarksverð.
ALMENNAR ÍBÚÐIR
Unnið er að deiliskipulagsbreytingu á
lóðum nr. 3, 7, 11 og 15 við Drangsskarð
og nr. 12, 16, 20 og 24 við Hádegisskarð
þar sem gert er ráð fyrir að íbúðum
verði fjölgað úr 2 íbúðum í 34 íbúðir á
lóð. Gert er ráð fyrir að á lóðunum verði
byggðar almennar íbúðir skv. lögum nr.
52/2016 en það eru leiguíbúðir sem eiga
að bæta húsnæðisöryggi fjöl skyldna og
einstaklinga, sem eru undir tekju og
eignamörkum. Þær lóðir eru ólitaðar á
yfirlitsteikningunni hér að neðan.
Fjölskylduhúsin eru hugsuð sem þrjár
einingar, tvær til þrjár íbúðir.Tvíbýlishús
sem tengjast saman með bílskúr eða
vinnustofu, eða þrjár íbúðir. Gert er ráð
fyrir 8 fjölskyldulóðum í 2. áfanga
Skarðs hlíðar.
13 einbýlishúsalóðir til úthlutunar
Óskað eftir tilboðum frá lögaðilum í 26 einbýlishúsalóðir
Búið er að setja út 79
hæla sem mark lóðirnar