Fjarðarfréttir


Fjarðarfréttir - 06.07.2017, Qupperneq 4

Fjarðarfréttir - 06.07.2017, Qupperneq 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Í sumar mun Siglingaklúbburinn Þytur bjóða upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga 10 ára og eldri, fædd 2007 og fyrr. Innritun á www.sailing.is Siglinganámskeið Verð: 15.500 kr. fyrir tveggja vikna námskeið og félagsaðild. Siglingaklúbburinn Þytur, kt.: 680978-0189 Sími 555 3422 Bankareikningur: 0545-26-987 Kennt er eftir nýrri námsskrá sem Siglingasamband Íslands hefur látið þýða og staðfæra. Þátttakendum er kennt að bregðast við síbreytilegum aðstæðum, siglingar á kayak og seglbátum, siglingareglur og umgengni um báta og búnað þeirra. Í lok námskeiða gerum við okkur dagamun, hoppum í sjóinn, buslum og endum á grillveislu. Hvert námskeið er í tvær vikur hálfan daginn kl. 9-12 eða kl. 13-16. Kennt er í aðstöðu Þyts, Strandgötu 88 og við Hafnarfjarðarhöfn. 10. júlí - 21. júlí (fyrir hádegi) 10. júlí - 21. júlí (eftir hádegi) Síðustu námskeiðin hefjast 10. júlí! Samkvæmt árlegri könnun Velferðar­ ráðuneytisins fjölgaði félagslegum íbúðum á landinu um 2% milli áranna 2015 og 2016. Langstærstur hluti fjölgunar innar átti sér stað í Reykjavík en biðtími eftir félagslegu hús næði er lengstur í Hafnarfirði af öllum sveitar félögum á Íslandi. FLESTIR Á BIÐLISTA Á HÖFUÐBORGAR­ SVÆÐINU Alls voru tæplega 1700 umsækjendur á biðlista eftir félagslegu húsnæði hér á landi um síðustu áramót. Tæplega 90% þeirra voru einstaklingar og einstæðir foreldrar á höfuðborgarsvæðinu. Samtals voru um 800 börn á heimilum sem voru á biðlista, þar af tæplega 100 í Hafnarfirði. Fjöldi þeirra sem er á biðlista hverju sinni segir því ekki nema hálfa söguna því að baki þeim stóra hópi fullorðinna er vanalega mikill fjöldi barna sem á rétt á að búa við viðunandi húsnæðis­ skilyrði en gerir það ekki. Að meðaltali á landinu öllu var biðtíminn eftir félags­ legri íbúð rúmlega eitt ár en í Hafnarfirði beið fólk að meðaltali í fjögur ár. SUM SVEITARFÉLÖG STANDA SIG BETUR EN ÖNNUR Það vekur athygli að staða þessa málaflokks er umtals­ vert verri í Hafnarfirði en í nágrannasveitarfélögunum Reykjavík og Kópavogi. Garða bær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær skera sig þó úr í þeim samanburði fyrir þær sakir að þar er framboð félagslegra íbúða minna en í öðrum sveitarfélögum. Þess ber að geta að Garðabær og Seltjarnarnes skera sig einnig úr að því leyti að þau rukka íbúa sína um útsvar sem er lægra en það sem aðrir íbúar landsins greiða að meðaltali. Það geta þau gert vegna þess að þau taka ekki þátt í að veita sömu þjónustu. Í því samfélagi sem mótaðist hér á landi fyrir hrun, þar sem ríkjandi hugar­ far var orðið býsna skakkt á mörgum sviðum, voru þessi sveitarfélög til­ greind sérstaklega í árlegri samantekt um best reknu sveitarfélög landsins og nefnd fyrirmyndarsveitarfélög. Þrátt fyrir að flestir séu sem betur fer búnir að uppgötva að það er nákvæmlega ekkert til fyrirmyndar við það að velta ábyrgðinni yfir á aðra hefur Sjálfstæðis­ flokkurinn í Hafnarfirði augljóslega ekki enn kveikt á þeirri peru. Hann er enn að berjast fyrir lægra útsvari og minni grunnþjónustu. ÞÖRF FYRIR 100 NÝJAR ÍBÚÐIR Á ÁRI Ef Hafnarfjörður ætlar að standast samanburð við nágrannasveitarfélögin Reykjavík og Kópavog og uppfylla eigin húsnæðisáætlun þarf að bæta við ríflega 240­250 félagslegum íbúðum á næstu 2­3 árum. Miðað við 35 milljóna króna meðalverð íbúðar jafngildir það fjárfestingaþörf upp á um 9 milljarða króna. Bundnar eru vonir við að þátt­ taka bæjarins í samstarfsverkefni ASÍ um byggingu nýrra leiguíbúða létti eitt­ hvað á þessari þörf en þó aldrei nema að takmörkuðu leyti. Eftir sem áður er þörfin mikil og fyrirséð að lítið svigrúm verði til annarra fjárfestinga næstu ár ef tryggja á að Hafnarfjörður standi undir lögboðnu hlutverki sínu samhliða því að ráðist verði er í nauðsynlegt viðhald og endurbætur á núverandi eignum bæj ar ins, m.a. húsnæði leik­ og grunn­ skóla. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Gunnar Axel Axelsson Hafnfirðingar bíða lengst allra eftir félagslegu húsnæði Heimild: Varasjóður húsnæðismála og www.hagstofa.is 2,0 1,3 0,9 0,2 0,4 0,3 0,0 0,5 1,0 1,5 2,0 2,5 Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Seltjarnarnes Mosfellsbær Fjöldi félagslegra leiguíbúða á hverja 100 íbúa árið 2016 - Höfuðborgarsvæðið H ei m ild : V ar as jó ðu r h ús næ ði sm ál a og w w w. ha gs to fa .is Nú stendur yfir Sönghátíð í Hafnar­ borg með tónleikum og námskeiðum. Tveir flytjendur þau Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari gáfu sér tíma til að heimsækja vistfólk á Hrafnistu og sungu fyrir þau. Fengu þau mjög góðar viðtökur enda söngelskandi fólk sem mætt var. Sönghátíð á Hrafnistu Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.