Fjarðarfréttir - 06.07.2017, Síða 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Hafnarborg
Sýningin Landsýn - í fótspor Jóhann-
esar Larsen með ljósmyndum Einars
Fals Ingólfssonar og teikningum
Jóhann esar stendur yfir í aðalsal Hafn-
arborgar. Í Sverrissal stendur yfir
sýningin „Dáið er allt án drauma“ með
listakonunum Söru Gunnarsdóttur og
Unu Lorenzen.
Sönghátíð
- Þóra Einarsdóttir, sópran og virkir
nemendur á master class söng-
námskeiði Þóru syngja við undirleik
Matthildar Önnur Gísladóttur á tón-
leikum í Hafnarborg í kvöld kl. 20.
- „Ást í meinum“ er yfirskrift tónleika
Dísellu Lárusdóttur, sópran og Guð
rúnar Jóhönnu Ólafsdóttur, mezzó
sópran á föstudag kl. 20. Með þeim
leika gítarleikarinn Francisco Javier
Jáuregui og Hrönn Þráinsdóttir á píanó.
- „Speglasalur tilfinninganna“ er
yfirskrift tónleika Hallveigar Rúnars
dóttur sópran á laugardag kl. 17 en með
henni leikur Hrönn Þráinsdóttur á
píanó.
- Lokatónleikar Sönghátíðar í
Hafnarborg verða á sunnudag kl. 20,
en þá koma fam Dísella Lárusdóttir
sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzósópran, Francisco Javier Jáuregui
á gítar, Hrönn Þráinsdóttir á píanó og
Guja Sandholt, mezzósópran.
Sendið tilkynningar um viðburði á
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
þjónusta
Garðsláttur í einum grænum.
Tek að mér garðslátt og önnur smáverk.
Hagstætt verð. Uppl. í s. 845 2100.
Bílaþrif. Kem og sæki. Bón verndar
bílinn. Úrvals efni. Djúp hreins un. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide,
ljósmyndir) DVD diska eða flakkara.
Sýnishorn á siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is, Sigurður Þorleifsson.
smáauglýsingar
fjardarfrett ir@fjardarfrett ir. is
s ími 565 3066
Verð 1.200 kr. m.v. hver 200 slög.
Myndbirting 1.200 kr.
Tapað-fundið og Gefins: FRÍTT
www.fjardarfrettir.is
SMÁAUGLÝSINGAR
Á DÖFINNI
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri
Hafnarfjarðarbæjar og Benedikt
Jóhannesson fjármála og efnahags
ráðherra skrifuðu sl. föstudag undir
samn ing um kaup Hafnarfjarðarbæjar á
85% eignarhlut ríkisins í aðalbyggingu
St. Jósefsspítala. Fyrir átti Hafnar
fjarðar bær 15%.
Við kaupin skuldbindur Hafnar
fjarðarbær sig til að reka almanna þjón
ustu í húsinu að lágmarki í 15 ár frá
undir ritun samnings. Með almanna
þjónustu er átt við starfsemi í félags
þjónustu, heilbrigðisþjónustu, menn
ingar eða fræðslustarfsemi eða annarri
sambærilegri þjónustu sem almenn
ingur sækir í sveitarfélaginu. Hafnar
fjarðarbær skuldbindur sig jafnframt til
að hefja rekstur í fasteigninni innan 3
ára frá undirritun samnings.
Kaupverð er 100 milljónir króna og
húsið verður afhent 15. ágúst 2017.
Verðið endurspeglar fyrirhugaða nýt
ingu hússins í almannaþágu. Þá er í
samningnum ákvæði um hærra verð
verði horfið frá þeim áformum. Er
samningurinn í samræmi við tilboð
sem ráðuneytið sendi Hafnarfjarðarbæ
13. janúar sl.
Starfshópur um framtíð St. Jósefs
spítala var skipaður á síðasta fundi
bæjarráðs Hafnarfjarðar og mun hann
kortleggja möguleika og leggja fram
tillögu að framtíðarnýtingu húsnæðisins
fyrir 10. október n.k. Starfshópinn
skipa þau Guðrún Berta Daníelsdóttir,
Sigríður Björk Jónsdóttir, Karl Guð
mundsson og Elva Dögg Ásudóttir
Kristinsdóttir. Starfsmaður og verk
efnastjóri hópsins er Sigríður Kristins
dóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hafnarfjarðarbæjar og bæjarlögmaður.
„St. Jósefsspítali hefur mikið tilfinn
ingalegt gildi fyrir íbúa og aðra vel
unnara Hafnarfjarðarbæjar. Mikill vilji
er fyrir því að koma húsnæðinu í gott
lag og í notkun sem fyrst. Fjölmargir
aðilar hafa þegar sýnt húsnæðinu áhuga
bæði til tímabundinna verkefna og til
framtíðar litið. Nýskipaður starfshópur
mun fá allar hugmyndir og fyrirspurnir
inn á borð til sín og marka línurnar,“
segir Haraldur L. Haraldsson bæjar
stjóri í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ
og ráðuneytinu.
„Við fögnum því að þessu sögufræga
húsi verði sýndur fullur sómi og fundið
nýtt hlutverk og að ríkið og Hafnar
fjarðarbær hafi náð samkomulagi um
fyrir komulag sem tekur tillit til hags
muna beggja,“ segir Benedikt Jó hann
esson fjármála og efnahags ráðherra.
Engin starfsemi hefur verið í St.
Jósefsspítala frá því að honum var
lokað við árslok 2011. Viðræður við
sveitarfélagið hafa staðið yfir síðan
með hléum. Ítarlegar kannanir hafa
farið fram á möguleikum til nýtingar á
eignunum á vegum ríkisins, en án
árangurs. Fjármála og efnahagsráðu
neytið tók yfir umsjón með spítalanum
árið 2014 frá velferðarráðuneytinu.
Heimild hefur verið í fjárlögum síðan
árið 2013 fyrir sölunni.
Samningur um kaup á
St. Jósefsspítala undirritaður
Hafnarfjarðarbær kaupir aðalbyggingu St. Jósefsspítala af ríkinu
Fulltrúar Hafanrfjarðarbæjar og fjármála- og efnahagsráðuneytis utan
Bookless Bungalow húsið eftir undirritun samningsins.
Aðalfundur Hollvinasamtaka St.
Jósefsspítala var haldinn þann 8. júní sl.
Markmið og tilgangur félagsins er að
koma af stað heilbrigðisþjónustu í St.
Jósefsspítla og bæta þá þjónustu í
Hafnarfirði, Hafnfirðingum og öðrum
til hagbóta.
Aðalfundurinn skoraði á bæjaryfir
völd að fyrir lægi skilgreining á þeirri
almannaþjónustu sem fyrirhuguð er í
St. Jósefsspítala, áður en starfsnefnd
um málefni St. Jósefsspítala yrði skipuð
af fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn.
Þá var óskað eftir fundi með nefndinni.
„Hollvinasamtök St. Jósefsspítala
telja brýna nauðsyn þess að í þeirri
skilgreiningu verði tekið mið af skyld
um bæjaryfirvalda til þjónustu á mál
efnum fatlaðra og aldraðra. Jafnframt
verði bæjarbúum kynnt staðan á þeirri
heilbrigðisþjónustu sem fellur undir
skyldur sveitarfélagsins.
Aðalfundur Hollvinasamtaka St.
Jósfsspítala telur að með því að
skilgreina heilbrigðistengda starfsemi í
St.Jósefsspítala geti Hafnarfjörður
orðið í fararbroddi í forvörnum, eftir
fylgd og endurhæfingu við bæjarbúa á
öllum sviðum og aukið þannig lífsgæði
Hafnfirðinga til framtíðar.“
FARSÆL EFRI ÁR
Mikil umræða varð um „Fjölþætta
heilsurækt í sveitarfélögum Leið að
farsælum efri árum“, erindi Janusar
Guðlaugssonar og þau miklu tækifæri
sem liggja í verkefni eins og hann er
með í öðrum sveitarfélögum. Tækifæri
fyrir Hafnfirðinga og nýtingu St.
Jósefsspítala í því sambandi.
STEINUNN ÁFRAM
FORMAÐUR
Steinunn Guðnadóttir var endurkjörin
sem formaður, en aðrir í stjórn eru
Guðrún Bryndís Karlsdóttir ritari,
Þórður Helgason, Stefanía Ámunda
dóttir gjaldkeri og Ingvar Árni Sverris
son. Til að gerast hollvinur er emailið :
st.josefsspitali@gmail.com
Vilja að fyrir liggi skilgreining
á almannaþjónustu
Hollvinasamtök vilja heilbrigðisþjónustu í St. Jósefsspítala
FH dróst gegn
Leikni
FH fær 1. deildar liðið Leikni úr
Reykjavík í heimsókn í undanúrslitum
bikarkeppni karla í fótbolta. Leikið
verður 28. júlí kl. 19.15. Þetta er fyrsti
undanúrslitaleikur Leiknis í sögu
félagsins.