Fjarðarfréttir - 06.07.2017, Qupperneq 7
www.fjardarfrettir.is 7FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Fótbolti:
7. júlí kl. 19.15, Kaplakriki
FH - Víkingur Ó., úrvalsdeild karla
7. júlí kl. 19.15, Árbær
Fylkir - Haukar, 1. deild karla
11. júlí kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - Selfoss, 1. deild karla
ÚRSLIT KARLA:
Breiðablik FH: 12
Haukar Leiknir F.: 50
Fylkir FH: 01
ÚRSLIT KVENNA:
Haukar Grindavík: 12
ÍÞRÓTTIR
Vara menn fá
föst laun
Bæjarráð hefur, þegar bæjarstjórn er
komin í sumarfrí, ákveðið að fulltrúar í
nefndum fái framvegis föst laun fyrir
störf sín í stað þess að fá greitt fyrir
hvern fund.
154% HÆKKUN FRÁ 2015
Samþykkt bæjarráðs hefur það í för
með sér að laun varabæjarfulltrúa og
varamanna í bæjarráði hækkar og verða
heildarútgjöldin tæpar 3,8 milljónir kr.
á ári í stað 2,1 millj. kr. sem nú er og er
það 77,8% hækkun og 153,6% hækkun
frá 2015!
Þó tillögurnar hafi verið samþykktar í
bæjarráði fylgja þær ekki fundargögnum
ef undan er skilið skjal sem sýnir helstu
breytingar.
BÆJARSTJÓRNARFUNDIR
KL. 17
Þá var samþykkt að færa fundartíma
bæjarstjórnarfunda frá kl. 14 til kl. 17
og samþykkt að leggja til breytingar á
samþykktum Hafnarfjarðarbæjar. Færi
fyrri umræða fram á næsta
bæjarráðsfundi og síðari umræða á
fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir sumarfrí,
seint í ágúst.
Vilja leigja
Kjóadal fyrir
4.167 kr. á
mánuði
Fyrirtækið Ferðasaga hefur óskað
eftir því við Hafnarfjarðarbæ að fá að
taka Kjóadal á leigu sem hvíldarhólf
fyrir reiðhesta. Fyrirtækið er með litla
persónulega hestaleigu, eins og segir í
umsókninni en forsvarsmaður Ferða
sögu er jafnframt rekstrarstjóri Hraun
hesta sem hefur aðsetur á Kaplaskeiði.
Íshestar hefur undanfarin ár haft
Kjóadal leigulaust undir sína hesta en
hafa einnig ekið þangað gríðarlega
miklu magni af hrossaskít, langt
umfram það sem notað er til áburðar á
túninu.
Kjóadalur er suðaustan við Hval
eyrar vatn og í hlíðum hans voru um
tíma kartöflugarðar bæjarbúa.
Þær eru orðnar ófáar
greinarnar sem ég hef ritað
um leikskólamál í Hafnar
firði á yfirstandandi kjör
tímabili. Und an tekninga
laust hafa þær fjallað um
niðurskurð eða lok anir á
leikskóla úrræðum. Þessi
málaflokkur virðist því
miður ekki ofarlega á blaði
hjá nú verandi meirihluta
Sjálf stæðisflokks og Bjartrar fram tíðar.
LOKANIR ÞRÁTT FYRIR
SKORT Á PLÁSSUM
Á fyrri tveimur árum kjörtímabilsins
var ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir
sem bitnuðu illa á leik og grunnskólum
bæjarins. Fjórum leik skólaúrræðum
var lokað sem kunnugt er – Ung
barnaleikskólanum Bjarma, 5 ára deild
við Hvaleyrarskóla, útideild Víðivalla í
Kaldársseli og starfsstöð Brekku
hvamms við Hlíðarbraut (Kató).
Þrátt fyrir kröftug mótmæli
foreldra í Suðurbæ var Kató
lokað sl. vor. Í aðdraganda þeirrar
lokunar bentum við ítrekað á
skort á leik skóla plássum í
hverfinu en með brotthvarfi Kató
varð Suður bærinn það hverfi í
bænum sem mestur skortur er á
plássum. Í kjölfarið var sam þykkt
tillaga í bæjarstjórn þann 13. apríl
2016 um kostn aðar úttekt á
möguleikum til þess að fjölga leik
skóla pláss um í hverfinu. Tillagan
byggði á minnisblaði sviðs stjóra
fræðslu sviðs sem stað festi að öllu leyti
ábend ingar okkar um stöðuna.
MÁLIÐ SVÆFT OG LOFORÐ
SVIKIN
Skemmst er frá því að segja að ekkert
hefur gerst frekar í þessu máli. Því var
stungið ofan í skúffu og það svæft.
Úttektin sem gerð var og tillagan um
kostnaðar grein ingu voru hreinn leikara
skap ur og ekki til annars ætl uð en tefja
málið.
Lokun Kató var illa ígrund uð ákvörð
un. Hún var tekin út frá excelskjali en
ekki miðað við þarfir íbúanna í hverfinu
og engin áform virðast vera um úrbætur.
FRAMTÍÐIN EKKI BJÖRT
Í bókun frá fulltrúum Sjálfstæðis
flokks og Bjartrar framtíðar á fundi
bæjar stjórnar þann 16. mars 2016 er
fullyrt að það sé vilji meiri hlutans að
veita þjónustu sem næst heimilum
barna og niðurstöður minnisblaðsins
umrædda verði nýttar til frekari
ákvarðanna um aukna þjónustu í leik
skólamálum í framtíðinni. Hvenær sú
framtíð rennur upp er ekki gott að segja
en ljóst er að það verður ekki á þessu
kjörtímabili. Framtíðin er því ekki björt
fyrir íbúa í Suðurbæ, enda leikskólamál
ekki í forgangi hjá núverandi meirihluta.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingar.
Adda María
Jóhannsdóttir
Svikin loforð í Suðurbæ
Verið velkomin
í Bike Cave :D
Hafnarborg, Hafnarfirði • Opið alla daga kl. 9-22
www.bikecave.is • sími 571 3144 • Erum á Facebook
Gatnaframkvæmdir!
Vegna gatnaframkvæmda getur verið erfitt
að komast til okkar.
Hjáleið bakvið Fjörð og góð aðkoma frá Strandgötu
Sundfélag Hafnarfjarðar verður með
sundnámskeið fyrir börn, bæði synd og ósynd,
í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug, Sundhöllinni
og Lækjarskólalaug.
Nánari upplýsingar og innritun má finna á www.sh.is
Námskeiðin standa yfir í tvær vikur eða 10 skipti.
Tímabil í boði:
10. – 21. júlí
24. júlí – 4. ágúst
styrkir barna og unglingastarf SH
Sundfélag Hafnarfjarðar • sh@sh.is • 555 6830 • www.sh.is
Sumarsund fyrir börn 4-10 ára
Bráðskemmtileg námskeið sem allir hafa gaman af!