Feykir - 24.02.2020, Side 9
Úrslitakvöld Söngvakeppninnar
2020 er næstkomandi laugar-
dagskvöld og þar flytur m.a. stúlka
að nafni Nína lagið ECHO. Nína á
ættir að rekja norður í Miðfjörð en
hún er dóttir söngkonunnar Rúnu
Gerðar Stefánsdóttur og þótti Feyki
alveg gráupplagt að forvitnast
aðeins um Rúnu.
Rúna fæddist í Reykjavík árið 1964
en ólst upp á hinum ýmsu stöðum.
Faðir hennar var Stefán Jónsson
sem fæddist á sveitabænum Neðri-
Svertingsstöðum í Miðfirði í Vestur
Húnavatnssýslu árið 1935. „Hann
eignaðist tíu systkini sem öll nema eitt
hafa náð háum aldri,“ segir Rúna og
heldur áfram. „Á uppeldisárum pabba
var lítið sem ekkert um peninga og
lífið eilíft hark. Amma mín, Hólmfríður,
og Jón afi voru hörku duglegt fólk og
kannski gaman að segja frá því að
það fundust, ekki fyrir svo löngu síðan,
bréf sem amma hafði skrifað til móður
sinnar en þar nefndi hún konu á næsta
bæ og hve mikið hún vorkenndi henni
fyrir það að eiga bara þrjú börn. Það
væri svo langt í það að þau gætu
hjálpað til með heimilisstörfin. Já, það
var mikið ríkidæmi að eiga mörg börn.
Samstaðan og samvinnan heima
hjá ömmu og afa var einstök, allir
lögðu sitt á vogaskálarnar, hvort sem
það var að strokka smjör, stoppa í
sokka, sækja vatn, sjá um búfénað og
fleira. Þetta var einstök fjölskylda og
systkinakærleikur var aðdáunarverður.
Gaman er að segja frá því að
enn í dag er bú rekið á Neðri-Svert-
ingsstöðum af afkomenda ömmu og
afa. Bróðursonur pabba heitins, hann
Ingi Hjörtur Bjarnason, hefur búið þar
með fjölskyldu sinni í mörg ár.
Pabbi og öll systkinin komu vel
undan uppeldinu hjá ömmu og afa,
giftust öll vel og eignuðust sjálf mörg
börn. Þegar pabbi fór í barnaskóla
að Reykjum í Hrútafirði kynntist hann
kokkinum Pétri Stefánssyni. Pétur var
ógiftur og barnlaus, og tók ástfóstri við
pabba. Hann ákvað að styrkja hann til
náms og með hans aðstoð fór pabbi
í Menntaskólann á Akureyri og síðar í
Háskóla Íslands.
Móðir mín, Esther Garðarsdóttir,
kynntist pabba er hann var kanditat
og hún í ljósmæðranámi. Þau giftu
sig árið 1960. Við erum þrjú systkini
en þegar ég var tæplega tveggja ára
fluttum við fjölskyldan mín til Svíþjóðar
þar sem pabbi fór í sérfræðinám í
læknisfræði. Móðir mín vann sem
húsmóðir og ljósmóðir. Við bjuggum
þar í sex ár. Þegar heim kom bjuggum
við á Háaleitisbraut, en síðar í
Vestubæ Kópavogs. Síðasta heimili
okkar saman var í Prestbakka í neðra
Breiðholti.
Rúna segist því miður ekki spila á
nein hljóðfæri en aðspurð um helstu
tónlistarafrek sín segir hún: „Ég er
stolt af öllu því sem ég hef tekið
mér fyrir hendur varðandi tónlist.
Ég byrjaði frekar seint að vinna
við tónlist, en fyrsta afrekið var að
vinna bikarinn í söngvakeppninni
Landsmeistari í Karaoke sem haldin
var á skemmtistaðnum Broadway.
Tuttugu og tveir keppendur víða að af
landinu kepptu, og eins hallærislegt
og þetta væri í dag, þá var þetta mjög
grand keppni (!). Ég fór í útvarpsviðtöl
og sjónvarpsviðtöl eftir á og fannst
ég bara nær því svolítið fræg. Stuttu
seinna var ég ráðin sem raddari í
sýningunni Rocky Horror sem Baltasar
Kormákur leikstýrði.
Hélt að verið væri að
grínast í mér því það
var 1. apríl
En svona fyrsta alvöru tækifærið var
þegar Gunnar Þórðarson hringdi í mig
og bað mig um að koma í söngprufu
fyrir ABBA sýningu sem verið var að
setja upp á Broadway. Ég hélt í fyrstu
að verið væri að grínast í mér því það
var 1. apríl – en svo var nú ekki raunin.
Hægt er að segja að næstu þrjú árin
hafi skemmtistaðurinn Broadway verið
mitt annað heimili því ekki bara söng
ég í ABBA heldur einnig í sýningunni
Laugardagskvöld á Gili, og fékk þann
mikla heiður að syngja dúett með
hinum frábæra Ragga Bjarna. Ekki
var nú heldur slor að fá að kynnast
hinum yndislegu Álftagerðisbræðrum
sem sungu eins og enginn væru
morgundagurinn á þessari frábæru
sýningu. Að lokum tók ég þátt í
sýningunni Prímadonnur en þar stigu
á stokk tólf eðalsöngkonur landsins og
sungu hvert dívulagið af öðru.
Það er alveg hægt að segja að eitt
tók við af öðru, en þetta ár, 1999,
hringdi sjálf Selma Björnsdóttir í mig
og spurði mig hvort mig langaði með
sér til Ísraels sem bakraddasöngkona
og taka þátt í Eurovisonkeppninni. Ég
hélt nú það. Eins og allir vita lentum
við í öðru sæti og var það ógleymanleg
stund. Nú ballið hélt áfram og
Þorvaldur Bjarni tónlistamaður kynnti
mig fyrir lagahöfundinum Einari
Oddssyni og sú kynni áttu eftir að
vefja utan á sig. Ég byrjaði á því að
syngja nokkur lög fyrir Einar, og gera
tónlistamyndbönd við lögin, en einnig
sendi Einar inn lag í Söngvakeppni
Sjónvarpsins árið 2001 sem ég söng
og heitir Í villtan dans. Á endanum árið
2005 vildi Einar gefa út geisladisk og
var þeim diski gefið það einfalda nafn
RÚNA. Þessi lög hafa elst mjög vel en
lagið sem fékk mestu spilunina var
lagið Draumur. Ekki var þátttöku minni
í Söngvakeppninni alveg lokið en árið
2006 keppti ég með lagið 100% sem
Hörður G. Ólafsson samdi. Þetta ár
voru mörg lög sem kepptu, samtals
15 lög. Ég var ótrúlega stolt að hafa
Rúna Stefáns. MYND: ÚR EINKASAFNI
komist í úrslit en eins og allir muna
hreppti Sylvía Nótt hnossið það árið.
Það nýjasta sem ég hef gert er
að taka þátt með dóttur minni Nínu
í Söngvakeppni Sjónvarpsins en ég
stökk inn sem bakraddasöngkona hjá
henni. Hún mun núna, næstkomandi
laugardag 29. febrúar, keppa í úrslita-
þættinum með lagið sitt ECHO.“
Hvaða lag varstu að hlusta á? „Þegar
ég vaknaði og kveikti á útvarpinu þá
var verið að spila lagið ECHO með
Nínu...!“
Uppáhalds tónlistartímabil? „Diskó.“
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? „Ég dáist að
öllum þeim aragrúa hæfileikaríks
ungs tónlistafólks okkar Íslendinga
og gæti endalaust talið upp bæði
söngvara og hljómsveitir. Lagið sem
ég féll nýlega fyrir er lag sem Auður
samdi og spilaði með Mezzoforte. En
svo t.d hljómsveitin Sycamore Tree
og svo eru auðvitað bræðurnir Jón
og Friðrik Jónssynir útungunarvélar á
grípandi lögum.“
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? „Gömlu góðu lögin með
t.d. Ellý Vilhjálms, Villa Vill og Hauki
Morthens. Svo var mikið hlustað á Nat
King Cole, Ellu Fitzgerald, Ettu James,
Tínu Turner og fleiri snillinga.“
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? „Fyrsta platan var með Hönnu
Valdísi og Rut Reginals.“
Hvaða græjur varstu þá með?
„Plötuspilara og svo auðvitað kass-
ettutæki.“
Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst
eftir að hafa fílað í botn? „Araba-
drengurinn með Björk.“
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? „Engin músík eyðileggur
daginn, tel að músík bæti og kæti alla
daga. En ég skipti fljótt um útvarpsrás
ef að ómelódískt hard core pönk lag
heyrist.“
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að
koma öllum í stuð? „Tina Turner,
Queen, Rolling Stones, George
Michael, Fleetwood Mac, Maroon 5,
Coldplay, Toto, Heart, ABBA, og svo
allt íslenskt.“
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst heyra?
„Til dæmis Carpenters og Ásgeir.“
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? „Til dæmis
Boston, Fleetwood Mac og auðvitað
tæki ég eiginmanninn með.“
Hvaða músík var helst blastað í
bílnum þegar þú varst nýkominn með
bílpróf? „Foreigner/ Waiting For a Girl
Like You.“
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? „Til dæmis Tina
Turner – eftir að hún losaði sig við
kallinn!“
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? „Allar ABBA
plöturnar.“
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Rúnu Stefáns:
Echo
NÍNA DAGBJÖRT
Hún veit hvað hún vill
AUÐUR
Sideways
SIGRÚN STELLA
Upp úr moldinni
ÁSGEIR
I want more
KALEO
Everything I wanted
BILLIE EILISH
Finni Helgu hlakkar til að komast með
konunni til Tenerife þegar hann fær
Lottóvinninginn loksins greiddan.
Finni Guðjónsson, eða Finni
Helgu eins og flestir þekkja
hann, hafði samband við
Dreifarann og sagðist ósáttur
við Lottó. Hann hringdi strax
suður um leið og hann frétti af
vinningnum en allt kemur
fyrir ekki. „Þau bara neita að
greiða mér út vinninginn
þetta ... þetta ... þetta fólk!“
-Ég er búinn að panta ferð utan
fyrir okkur hjónin til Tenerife
og er að láta taka garðinn í
gegn. Þetta fólk getur ekki bara
gengið svona á bak við orðin
sín...
Og á hvaða forsendum vilja
þau ekki greiða út vinninginn?
-Á hvaða forsendum?!? Nú þau
segja að ég verði að framvísa
vinningsmiðanum.
Er það eitthvert vandamál? Ja,
já, ég er ekkert með einhvern
miða.
Nú, hversvegna segistu þá
hafa unnið í Lottó? -Það er
alltaf verið að auglýsa það
maður!
Hvernig þá Finni minn? -Þú
hlýtur að vera búinn að heyra
þetta margoft sjálfur, það er
alltaf verið að auglýsa þetta:
-Finni einn með aðaltölurnar
réttar í Lottóinu!- Finni – það
er ég! Afi nafni minn er farinn
yfir móðuna, blessuð sé minn-
ing hans, þannig að það er
ekkert um neinn annan Finna
að ræða.
Já, það er rétt en... -Það er
ekkert en neitt, þekkirðu ein-
hvern annan Finna en mig?
Neinei, en í auglýsingunni er
átt við Finna, sko finnskan
mann frá Finnlandi. -Ha? Frá
Finnlandi? Ertu ekki að grín-
ast? Er einhver Finni þar?!?
- - - - -
Dreifarar Feykis eru uppspuni frá rótum en
gætu stundum næstum því verið alvara.
Finni fær
ekki greiddan
út Lottó-
vinninginn
( DREIFARINN )
08/2020 9
Rúna Stefáns / söngur
Diskótímabilið í uppáhaldi hjá Rúnu
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is