Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar


Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.10.1997, Blaðsíða 3

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.10.1997, Blaðsíða 3
Göngubrú yfir Miklubraut hjá Rauðagerði á vígsludegi j>ann 29. ágúst 1997. Göngubrú yfir Miklubraut við Rauðagerði Bygging göngubrúar yfir Miklubraut við Rauðagerði var sam- starfsverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar, en Reykjavíkurborg sá um framkvæmdina. Efnt var til hönnunarsamkeppni um framkvæmdina með þátt- töku fjögurra verkfræðistofa sem fengu hver um sig arkitekta til liðs við sig við útlitshönnun og landslagsarkitekta til að móta nánasta umhverfi brúarinnar. Allirþátttakendurí samkeppninni lögðu sig fram um að skila metnaðarfullum og velútfærðum til- lögum. Tillaga frá V erkfræðistofu Stefáns Ólafssonar varð fyrir valinu og er brúin hönnuð af þeim í samstarfi við Baldvin Einarsson verkfræðing. Ráðgjafi við útlitshönnun brúarinnar var Ingi mund- ur Sveinsson arkitekt og Ragnhildur Skarphéðinsdóttur lands- lagsarkitekt sá um útlitshönnun göngustíga og næsta umhverfis brúarinnar. Göngubrúin er 72 m löng stálbitabrú með stálgólfi sem lagt hefur verið á yfirborðsefni með stömu yfirborði. Brúin fer í boga yfir akbrautir Miklubrautar og er minnsta hæð undir hana frá akbraut rúmir 5 m. Brúin er í þremur höfum. Lengsta hafið er 30,5 m, millihafið 25,5 m en nyrsta hafið styst 13,5 m og teygir það sig inn á túnið norðan Miklubrautar sem tryggir sýn vegfar- enda um Miklubraut inn á það, útsýni sem að öðrum kosti hefði lokast vegna leiðigarðanna að brúnni. Við hönnun brúarinnar og nánasta umhverfis var stefnt að eftirtöldum markmiðum: 1. Að brúin væri ódýr en uppfyllti ströngustu kröfur til öryggis vegfarenda. 2. Að burðarvirki brúarinnar virkaði létt og brúin þrengdi ekki að umferð. Vegna þessa voru burðarbitar brúarinnar skildir að með lóðréttum stoðum sem nýtast sem hluti handriðs og haflengdir brúarinnar voru hafðar eins langar og kostur var, einnig var gólf brúarinnar notað sem hluti af burðarvirki hennar. 3. Að brúin félli vel að umhverfi sínu og virkaði sem hluti af því. 4. Að gott aðgengi væri inn á brúna fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Til að tryggja þetta er hámarkslengdarhalli göngustíga hafður 1:20 og uppfy llir þannig kröfur sem gerð- ar eru vegna þeirra sem bundnir eru í hjólastól. Verkið var boðið út í tveimur áföngum. Verktaki við gerð göngustíga og brúarstöpla var Borgarverk ehf. í Borgarnesi en stálsmíði var í höndum Stálbæjar ehf. í Kópavogi. Eftirlit ann- aðist Verkfræðistofan Hönnun hf. Framkvæmdir við gerð brúarstöpla og göngustíga hófust í ágúst 1996 og lauk þeim verkþætti fyrri hluta júnímánaðar sl. Vinna við stálsmíði hófst í mars 1997 en því verki lauk nokkru seinna en gert var ráð fyrir. Á næstunni verður komið fyrir hæðarhindrunum beggja vegna brúar til að verja hana fyrir hugsanlegum árekstrum. Þar til hæðarhindranir verða settar upp eru blikkandi ljós uppi á brúnni yfir akstursleiðum ásamt því að komið hefur verið upp áberandi merkingum við akstursleiðir austan og vestan við brúna. Heildarkostnaður við þessa framkvæmd er áætlaður um 62 m.kr. og fjármagnast úr vegasjóði og borgarsjóði að hluta. Áætlaður kostnaður við brúna sjálfa ásamt stígtengingum að henni er um 43 m.kr. og greiðist sá hluti af Vegagerðinni. Aðrar tengingar við stígakerfi borgarinnar kosta um 16 m.kr. og auk þess verða settar upp hæðarhindranir í Miklubraut sitt hvoru megin við brúna og er áætlaður kostnaður við þær um 3 m.kr. Samhliða framkvæmdum á gatnamótum Miklubrautar og Sæbrautar er nú unnið að gerð göngustíga sem annars vegar tengja göngubrúna við aðalgangstígakerfi frá Miklubraut að Sæbraut við Súðarvog og hins vegar frá Súðarvogi til tengingar við aðalgöngustígakerfi í Grafarvogi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við þessa göngustíga ljúki að mestu 1. október n.k. Á næstunni hefjast framkvæmdir við gerð undirstaðna og stígagerð við nýja göngubrú yfir Kringlumýrarbraut á móts við Sóltún. Reiknað er með að sú brú verði opnuð snemma sumars 1998. Guðmundur Nikulásson hjá gatnamálastjóra hafði yfirumsjón með verkinu af hálfu verkkaupa. Fulltrúi Vegagerðarinnar í verkefninu var Magnús Einarsson.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.