Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.10.2000, Blaðsíða 2
framhald afforsíðu
unnið að kortlagningu á jarðfræðilegum aðstæðum. Hér er um
mjög stórt og viðamikið verk að ræða, alls um 16 km af jarð-
göngum auk aðkomuvega og forskála, og heildarkostnaður er
áætlaður allt að 8-9 milljarðar. Undirbúningur fer að öllu leyti
fram samhliða fyrir bæði verkefnin, og reiknað er með að sam-
gönguráðherra taki síðar ákvörðun um hvort þau verða boðin út
í einu eða tvennu lagi. Þótt göngin verði boðin út í einu lagi er
frekar reiknað með að gangagröftur standi aðeins yfir á öðrum
staðnum í einu, þar eð fjármagn á ári miðast við fjárþörf fyrir tvö
jarðgangagengi og hagkvæmara er að grafa göng samtímis frá
báðum endum. Eftir er að taka endanlega ákvörðun um hvort
jarðgöng verða tvíbreið eða einbreið með útskotum til mætinga.
Þær rannsóknir sem unnið hefur verið að síðustu mánuði snúa
einkum að frekara mati á j arðfræðilegum aðstæðum á j arðganga-
leiðum, og gagnasöfnun vegna mats á umhverfisáhrifum.
Umfangsmestarhafaveriðsvonefndarkjarnaboranir. Hérverður
greint frekar frá rannsóknum á hvoru jarðgangaverkefni fyrir
sig.
Reyðarfjörður - Fáskrúðsfjörður
Fyrsti verksamningur vegna undirbúnings jarðgangagerðar var
undirritaður 9. júní 2000, eða tæpum mánuði eftir ákvörðun
Alþingis. Það var Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem tók að
sér borun rannsóknarhola og lektarprófanir í holunum. í
Fáskrúðsfirði voru í júlímánuði boraðar þrjár kjarnaholur, ein
liðlega 260 m djúp og tvær 30 m djúpar, til könnunar á berglög-
um, og samtals 80 m í 17 loftborsholum til könnunar á þykkt
lausra jarðlaga ofaná klöpp. í Reyðarfirði voru kjarnaholurnar
160 m og tvær 25 m djúpar, og loftborsholumar 14 alls 90 m.
Borkjarnarnir voru greindir og skráðir jafnóðum og þeir komu
upp á yfirborð og þeim komið fyrir í sérstökum kjarnakössum
til síðari rannsókna. Lektarprófanir voru alls 32, en þá er vatni
þrýst niður í holuna og mælt hvem greiðlega það kemst út í
sprunguríberginu. Fyrstu niðurstöður benda til að legajarðlaga
og gæði þeirra til mannvirkjagerðar sé í samræmi við þær
hugmyndir sem áður höfðu verið lagðarfram, og ekkert sérstakt
sem hindrar jarðgangagerð eða eykur áætlaðan kostnað. Megin-
einkennin eru þau, að göngin munu verða grafin í berglagasyrpu
sem liggur milli tveggja þykkra setlaga, og þarf að reyna að
forðast að göngin lendi í þeim. Frekari úrvinnsla, prófanir og
skýrslugerð, fer fram í haust og vetur. Niðurstöður rannsóknanna
verða einnig notaðar til að ákvarða endanlega staðsetningu
jarðgangamunna. Þótt endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir er
líklegt að munni að norðan verði í um 60 m hæð og að sunnan
í um 100 m hæð, og staðsetning þeirra verði aðeins frábmgðin
því sem áður var miðað við. Það þýðir að heildarlengd jarðganga
verður um 5,6 km, en áður hafði verið miðað við 5,3 km. Á móti
styttast bæði forskálar og aðkomuvegir. Þessar breytingar hafa
ekki áhrif á áætlaðan heildarkostnað, sem er um 3
milljarðar fyrir tvíbreið göng.
Við mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra fram-
kvæmda eru ýmsar rannsóknir yfirstandandi, auk
jarðfræðirannsóknanna. Þannig munu niðurstöður
fornleifarannsókna liggja fyrir síðar í haust, gróðurfar
og fuglalíf hefur verið kannað og niðurstöður munu
einnig liggja fyrir úr þeim athugunum nú í haust.
Jarðefni til vegagerðar mun að mestu koma úr jarð-
göngunum, en væntanlega verður töluvert af um-
framefni sem koma þarf fyrir, og hafa nokkrir mögu-
leikar verið ræddir í því samhengi. Reiknað er með að
svonefnd matsáætlun verði kynnt almenningi og um-
sagnaraðilum innan skamms og eftir að hún hefur
verið samþykkt af Skipulagsstofnun hefst vinna að
hinni eiginlegu matsskýrslu. Á vinnsluferli hennar
mun almenningi gefast kostur á að koma með ábend-
ingar um fyrirhugaða framkvæmd. Vonast er til að
skýrslan liggi fyrir í febrúar/mars, og að úrskurður
Skipulagsstofnunar liggi fyrir í júní 2001.
Eins og áður kom fram verður unnið að úrvinnslu
rannsóknargagna varðandi aðstæður á jarðgangaleið
nú í vetur. Þá verður einnig unnið að hönnun allra
mannvirkja og gerð útboðsgagna, en það er nokkuð
viðamikið verk, enda um alþjóðlegt útboð að ræða.
Hugsanlega þarf að bæta við einhverjum lokarann-
sóknum sumarið 2001, auk þess sem jafnvel verður
fjarlægt laust jarðefni af munnastæðum, þannig að
lega klapparyfirborðs sé fullljós. Miðað er við að
verkið verði unnt að bjóða út veturinn 2001-2002,
með hugsanlega byrjun framkvæmda vorið 2002.
Eins og áður sagði er það þó háð síðari ákvörðun um
tilhögun útboðs beggja jarðgangaverkefnanna.
Reiknað er með að það taki um U/2 ár að sprengja
göngin, og að heildarverktími sé um 272 ár.
Horft úr vesturhlíð Héðinsfjarðar, norður yfir Héðinsfjarðarvatn.
Vegur milli jarðgangamunna er áœtlaður þvert yfir dalbotninn innan
við vatnið.
Vinnubúðir verktaka í Héðinsfirði.