Alþýðubandalagsblaðið - 04.04.1975, Qupperneq 4
Tónlistardagar á Akureyri í apríl
Tónlistarfélag Akureyrar, Tón
listarskólinn og Passíukór Ak
ureyrar hafa í sameiningu
skipulagt hljómleikahald á
Akureyri dagana 6. og 7. apríl
næstkomandi. Hljómleikarnir
munu fara fram í Akureyrar-
kirkju, báða dagana.
Sunnudagurinn 6. apríl
Sunnudaginn 6. apríl kl. 17
mun Passíukórinn á Akureyri,
ásamt hljómsveit og einsöngv-
urum flytja verk eftir Vivaldi
og Charpentier.
Passíukórinn á Akureyri, 25
manns, hefur nú starfað í nær
fellt 3 ár undir stjórn Roars
Kvam, sem er kennari við Tón
listarskólann og stjórnandi
Lúðrasveitar Akureyrar.
Kórinn er skipaður nemend
um úr Tónlistarskólanum og
öðru áhugafólki um flutning
stórra kórverka. Kórinn hóf
æfingar á síðastliðnu vori á
tónverkinu Gloria eftir Vi-
valdi, og í vetur hefur hann
bætt við verkinu Te Deum eft
ir Charpentier. Bæði eru verk
in vandasöm í flutningi og
kerfjast mikillar alúðar og æf-
ingar af hálfu flytjenda. Þess-
ir sömu tónleikar fara einnig
fram í Húsavíkurkirkju dag-
Gatsby er
kominn
í bæinn
Borgarbíó hefur nú fengið til
sýningar hina frægu mynd
„Gatsby hinn mikli“ og munu
sýningar á henni hefjast á
næstunni, eða nánar til tekið
strax og lýkur sýningum á
Papillon. Björgvin Júníusson
bíóstjóri sagði í stuttu sam-
tali við AB-blaðið, að sjaldan
kæmi fyrir að Borgarbíó
fengi jafn góðar myndir með
svo stuttu millibili sem nú,
þegar The Sting, Papillon og
Gatsby hinn mikli koma svo
til hver á eftir annarri. „Það
er varla að niaður þori að
auglýsa þær allar sem góðar
myndir, fólk gæti haldið að
maður sé farinn að mæla með
hverju sem er. En það er
óhætt að mæla með Gatsby,
þessi mynd hefur hvarvetna
verið sýnd við metaðsókn og
hún mun hafa haft fremur
góð áhrif á unglingana.“
Með aðalhlutverk í Gatsby
fara- Robert Redford, sem bíó-
gestum er vel kunnur úr „The
Sting“ og Mia Farrow. Mynd-
in gerist í Bandaríkjunum á
þriðja tug aldarinnar — gerð
eftir samnefndri frægri skáld
sögu eftir F. Scott Fitzgerald.
Kvikmyndahandrit er eftir
Francic Ford Coppola.
inn áður þ. e. laugardaginn 5.
apríl síðdegis. Flytjendur eru
yfir 50 talsins. í þeim hópi eru
auk kórsins kammerhljóm-
sveit skipuð nemendum úr
hljómsveit Tónlistarskólans
og strengjasveit Tónlistarskól
ans á Akureyri. Einnig mun
Jón Sigurðsson einleikari Sin-
fóníuhljómsveitar fslands
leika með. Einsöngvarar
verða: Guri Egge, sópran söng
kona frá Noregi, sem nú stund
ar framhaldsnám í Vínarborg.
Lilja Hallgrímsdóttir sópran
frá Akureyri og Þuríður Bald-
ursdóttir altsöngkona, Michael
Clarke contratenór, Jón Hlöð-
ver Áskelsson tenór og Sigurð
ur Demetz Franzson bass-bari
tón.
Mánudagurinn 7. apríl
Mánudaginn 7. apríl mun
Hljómsveit Tónlistarskólans í
Reykjavík halda tónleika í
Akureyrarkirkju og hefjast
þeir kl. 20.30.
Hljómsveit Tónlistarskólans
í Reykjavík var stofnuð 1941
og hefur Björn Ólafsson fiðlu-
leikari verið stjórnandi henn-
ar frá upphafi. Hljómsveitin
er nú skipuð 46 nemendum og
hljóðfæraleikurum. Hún held-
ur að jafnaði tvenna sinfón-
iska hljómleika á ári. Að
þessu sinni hafa verið talin 2
verk til flutnings, þ. e. Lund-
únasinfónía eftir Haydn og
píanókonsert eftir Grieg og
hafa bæði þessi verk notið
mikilla vinsælda. Einleik í því
verki leikur Vilhelmína Ólafs
dóttir, sem er nú að braut-
skrást frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík.
Aðgöngumiðar- verða seldir
í Bókabúðinni Huld og verða
áskriftarmiðar á báða tónleik-
ana í kirkjunni seldir í forsölu
með 25% afslætti.
í illt llMliffillIlLl
•w :
Nemendaskipti milli tón-
listarskóla
Nemendaskipti milli tónlist
arksóla hafa oft verið til um-
ræðu, en nú hefur Tónlistar-
skóli ísafjarðar að undirlagi
Ragnars H. Ragnar, skóla-
stjóra tekið af skarið í þeim
efnum. Fimmtudaginn 3. apríl
síðastliðinn hélt Hólmfríður
Sigurðardóttir frá ísafirði
píanótónleika í sal Tónlistar-
skólans á Akureyri. Þessir tón
leikar eru hinir fyrstu í sam-
bandi við nemendaskipti milli
Tónlistarskólans á Akureyri
og Tónlistarskólans á ísafirði.
Hólmfríður Sigurðardóttir er
bráðefnilegur píanóleikari og
mun útskrifast frá Tónlistar-
skóla ísafjarðar á þessu vori.
Á tónleikunum lék Hólmfríð-
ur verk eftir Scarlatti, Schu-
bert, Schumann, Chopin, De-
bussy og Liszt.
Fjáröflun til kaupa á leitar-
tæki fyrir krabbamein
Lionsklúbbur Akureyrar held
ur bingó í Sjálfstæðishúsinu
nk,. sunnudagskvöld kl. 8.30
til þess að afla fjár til kaupa
á sérstakri röntgenmyndavél,
sem er notuð við leit á krabba
meini í brjósti. Þegar er búið
að panta myndavélina, en hún
kostar 3.3 milljónir.
Spilað verður um marga
góða vinninga á sunnudags-
kvöldið. Aðalvinningurinn er
Sunnuferð að eigin vali fyrir
40 þúsund krónur, en aðrir
vinningar eru heimilistæki.
Heildarverðmæti vinninga er
100 þúsund krónur og verða
vinningarnir til sýnis í glugga
Iðnaðarbankans frá og með
fímmtudegi. Forsala aðgöngu-
ruiða fer fram milli 3 og 5 á
sunnudag og miðar verða
einnig seldir við innganginn
eftir kl. 7 á sunnudagskvöld-
ið.
Oráðabirgða-
samkomulag
MALGAGN alþýðubandalagsins í norðurlandskjordæmi eystra
Ritnefnd: Helgi Guðmundsson (ábm.), form. Soffía Guðmunds-
dóttir, Einar Kristjánsson, Óttar Einarsson, Steinar Þorsteinsson
og Þráinn Bertelsson. — Framkvæmdastjóri: Jón Daníelsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Geislagötu 10, sími (96)2-18-75, póst-
hólf 492. — Opið þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9.30 — 11.30.
Níu manna ncfnd Alþýðusambandsins og samninganefnd
atvinnurekenda liafa gert með sér svokallað bráðabirgða-
samkomulag er felur í sér fimm þúsund krónu hækkun
allra launa. Auk þess hefur verið tekið tillit til breytinga á
skattalögum og þær breytingar reiknaðar láglaunafólki til
tekna. Samkomulag þetta er einstætt í sinni röð fyrir
ýmissa hluta sakir, en einkum þó fyrir það að það er punkt-
urinn aftan við samkomulag, sem fyrir löngu var búið að
gera um að vinnufriður skyldi haldast fram á vor. Það sem
hér er átt við er þáttur Alþýðusambands íslands í setningu
bráðabirgðalaganna um láglaunabætur sem sett voru í haust
er leið. Að sjálfsögðu hefur umrætt samkomulag aldrei ver-
ið staðfest með neinum undirskriftum og allir aðiljar sóru
og lögðu við sárt að bráðabirgðalögin væru algerlega á
ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Þegar lögin voru gefin út á sín-
um tíma var á það bent hér í blaðinu að forystumenn Al-
þýðusambandsins hefðu ábyrgst vinnufrið í vetur. Allar at-
hafnir ríkisstjórnarinnar síðan virðast staðfesta að mat þetta
hafi verið rétt. Nægir í því efni að minna á að ríkisstjórn-
in lét sig ekki muna um að skella á nýrri gengisfellingu í
miðjum viðræðum um bætur fyrir hina fyrri augsjáanlega
í fullvissu um að verkalýðshreyfingin myndi ekkert aðhaf-
ast þó að enn yrði aukið á kjaraskerðinguna.
Nú er látið í veðri vaka að tíminn til 1. júní, gildistíma
samkomulagsins, verði notaður til að ná nýjum og varan-
legum samningum. Er sértakslega rætt um breytingar á
fyrirkomulagi verðlagsbóta á laun.
Um það efni hefur ekkert heyrst innan verkalýðsfélag-
anna, þ. e. hverjar hugmyndir manna um breytingarnar
eru. Virðist augljóst að enn einu sinni hugsa forystumenn-
irnir sér að gera einhverskonar samkomulag án þess að
málið hafi áður vcrið undirbúið í verklýðsfélögunum með
umræðum. Nýgerður bráðabirgðasamningur, sem felur ekki
meira í sér en bætur fyrir þá kjaraskerðingu sem á eftir
að verða á meðan samningurinn gildir, að litlu öðru við-
bættu, ásamt þeim starfsaðferðum innan verkalýðshreyf-
ingarinnar, sem tíðkaðar cru við gerð samninga vitna öðru
fremur um hve alvarlegt félagslegt ástand ríkir í röðum
launafólks. Kjaraskerðing á kjaraskerðingu ofan, flutning-
ur milljarða króna frá launþegum til atvinnurekenda, at-
vinnuleysisvofan í dyragættinni, auk stórfelldrar aukningar
félagslegs misréttis í þjóðfélaginu, hefur ekki megnað að
skerpa baráttuvilja verkalýðshreyfingarinnar nægilega til
þess að hún risi upp til cðlilegra andsvara. Þess í stað hafa
forystumenn verkafólks markað þá stefnu að þjarka um
málin á lokuðum fundum með atvinnurekendum og ríkis-
stjórn, hafandi áður lýst því yfir að þeir myndu ekki einu
sinni taka við allri þeirri kauphækkun sem þyrfti til að bæta
kjaraskerðinguna að fullu, þó hún yrði boðin fram í einu
lagi. Þessi afstaða er skiljanleg þegar þess er gætt að verka-
lýðshreyfingin miðar allar athafnir sínar um þessar mundir
við að ríkjandi fyrirkomulagi verði í engu breytt, heldur
aðeins gert þolanlegra fyrir launafólkið, en ekki vitnar hún
um eðlilega pólitíska afstöðu verkalýðs.
hágé.