Alþýðubandalagsblaðið - 16.05.1975, Blaðsíða 2
115 konur á Akureyri atvinnulausar
af völdum togaraverkfallsins —
Togaraverkfallið hefur nú stað
ið í rúman mánuð og virðist
ekkert þokast í samkomulags-
átt. Ríkisstjórn íslands „fylgist
með“ gangi mála, eins og
frægt er orðið, án þess að
reyna hið minnsta til þess að
hafa áhrif á þróunina. Þús-
undir verkafólks víðsvegar um
land hafa nú misst atvinnu
sína og kemur það sér vafa-
laust illa, eins og nú árar í
verðlagsmálum í landi þessu.
Hér á Akureyri hafa 115
konur látið skrá sig atvinnu-
lausar hjá vinnumiðlunarskrif
stofunni, eftir að hráefni þraut
í frystihúsi Ú. A., samkvæmt
upplýsingum Heiðreks Guð-
mundssonar, vinnumiðlunar-
stjóra.
Pistill vikunnar
TALM AFIIVILEIKI
„Hugsum okkur, að við skuldir fjögurra
manna, eins og þær eru nú, yrði bætt 960
þúsund króna víxli. Ætli mönnum þætti ekki
meira en nóg um. í reyndinni skuldar fjög-
urra manna fjölskyldan þennan víxil nú
þegar.“
Þessi talnaspeki er úr Vísisleiðara 12. maí
síðastliðinn, þar sem frá því er skýrt, að
þjóðarbúið skuldi erlendis, miðað við ára-
mótin um 52 milljarða króna, og heimildar-
maður Vísis er dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankasjtóri.
Svona upplýsingar eru náttúrlega afskap-
lega vel til þess fallnar, að hræða fólk, eink-
um og sérílagi fólk, sem er óvant því að
skulda.
Verkamaður, sem þarf að fá launahækkun
til að endar nái saman, við að sjá fjölskyldu
farborða, fær þessi svör hjá f jármálastjórum
þjóðarinnar:
Hvað er fjölskyldan stór, góði?
Það eru fjögur börn og konan og öldruð
tcngdamóðir og svo auðvitað ég sjálfur.
Látum okkur sjá! Fjögur börn, kona,
tengdamóðir og þú — það er sjö sinnum
tvöhundruð og fjörutíu þúsund, það gerir
eina milljón, sexhundruð og áttatíu þúsund,
sem þið skuldið nú þegar erlendis — og nú
heimtar þú meira.
Þetta hlýtur að vera einhver misskilning-
ur. Við skuldum ekkert erlendis. Ég hef ekki
einu sinni komið til útlanda, nema einu sinni
til Grimsby, þegar ég var á togara, og það
get ég svarið, að ekki sló ég scxtánhundruð
þúsund í Grimsby.
Sextánhundruð og áttatíu þúsund.
Ha?
Sextán hundruð og áttatíu þúsund — það
er upphæðin, sem þið skuldið erlendis. Hvert
mannsbarn í landinu skuldar tvöhundruð og
fjörutíu þúsund. Þú getur reiknað þetta
sjálfur. Hérna er vasatölvan mín, gerðu svo
vel, góði.
Nei, nei, ég er ekki að rengja fjármála-
stjórann. Ég þekki bara ekkert inn á svona-
lagað. Ég hélt bara að ég skuldaði ekkert
nema það, sem ég á eftir af húsnæðismála-
stjórnarláninu, og svo þessa tvo víxla, sem
ég er alltaf að reyna að borga niður.
Jæja, góði, vertu þá ekki að hugsa meira
um það. Reyndu bara að standa í skilum, og
láttu okkur hina, sem vit höfum á, sjá um
þessi erlendu viðskipti. Og þú verður að
skilja það, að núna er ekki rétti tíminn, til
að vera að ónáða okkur með einhverju hel-
vítis launakvabbi.
Nei, nei — það er bara ... .
Er barahvað, góði? Ég hef ýmislegt annað^
að gera, en að standa í þrefi við skulda-
kónga eins og þig — ég er að fara á fund í
karbít og áli.
Það er bara þannig, að endarnir ná ekki
saman hjá mér. Ég veit ekki, hvað ég á að
gera.
Það eina, sem þú getur gert, góði minn,
er að halda áfram að vinna. Við reynum að
redda þessu, eins og öðru, stóru strákarnir.
Hvenær haldið þér, að þér verðið búnir að
redda þessu?
Ég lofa náttúrlega engu um það — það
fcr vitaskuld nokkuð eftir því, hvað þeir
þurfa í sjávarútveginum og olíuinnflutningn
um. Talaðu við mig aftur, síðla árs ’78.
Þakka ýður kærlega fyrir.
Já, það var ekkert, góði.
*' w ' ;
Þannig er dæmið sett upp af málsvörum
afturhaldsins. Skuldasöfnun ráðvilltrar auð-
mannastjórnar er jafnað niður á hvert manns
barn í landinu.
Þetta er auðvitað jafnréttissjónarmið út
af fyrir sig, enda hafa einstaklingshyggju-
greifarnir það fyrir reglu að grípa til jafn-
aðarstefnunnar, þegar eitthvað bjátar á. Ef
einstaklingsfyrirtæki er rekið með botnlausu
tapi, þá vill eigandinn fá að sækja sér hnefa
í ríkissjóð. Sé fyrirtækið rekið með gróða,
þá eru ríkisafskipti talin glæpsamleg skerð-
ing á athafnafrelsi einstaklingsins.
Og nú hefur auðvaldspressan tilkynnt
landsmönnum, að hver og einn skuldi tvö-
hundruð og f jörutíu þúsund krónur í gjald-
eyri. Hvert mannsbarn. Allir jafnt. Það þýðir
að hver ráðherra skuldar jafnt og hvert
gamalmenni í Skjaldarvík; hver heildsali,
jafnt og hver götusópari; hver læknir, jafnt
og hver sjúkraliði; hver atvinnurekandi,
jafnt og hver hvítvoðungur; hreppstjórinn,
jafnt og sveitarlimurinn.
í sjálfu sér er ekkert út á þetta að setja:
Einn fyrir alla, og allir fyrir einn — nema
hvað það kemur manni spánskt fyrir sjónir,
að þarna er aðeins talað um að jafna skuld-
unum niður á þegnana — hvergi er minnst
á eignirnar.
Það er auðvitað réttlátt að skipta tapinu
niður — ef arðinum er líka réttlátt skipt
milli þeirra, sem skapa hann.
Það er sannarlega réttlátt, að skipta skuld-
unurn jafnt niður — ef allir eiga jafnar
eignir.
Kannski stingur Vísir upp á því einhvern
næstu daga, að þeim auðæfum, sem til eru í
landinu, verði réttlátt skipt niður meðal
þeirra, sem í landinu búa. En sennilega lætur
hann sér samt nægja, að skipta niður skuld-
um og tapi. Þangað til alþýðan gefst upp á
að láta hafa sig að fífli. — ÞRÁINN.
Sú hugmynd hefur verið
sett fram hér í blaðinu, að
bæjarstjórnin beitti sér fyrir
því, að Ú. A. semdi nú þegar
við togaramenn hér nyrðra,
en bærinn á, eins og kunnugt
er, meiri hluta í Ú. A.
Bæjarstjórn hefur fyrir
skömmu sent frá sér ályktun,
undirritaða af öllum bæjar-
fulltrúum, þar sem hún „skor
ar á ríkisvaldið og deiluaðila
að gera sitt ítrasta til að deil-
an megi leysast sem fyrst,
þannig, að komið verði í veg
fyrir frekara tjón, en orðið
er,“ eins og segir orðrétt í
ályktuninni.
Að öðru leyti hafði bæjar-
stjórn Akureyrar ekki haft af-
skipti af þessari deilu, þegar
þetta er ritað, en þá var bæj-
arráðsfundur framundan.
IJtboð —
Jarðvinna
Tilboð óskast í jarðvinnu og gerð frárennslis-
lagnar við grunn sjúkradeildar vistheimilisins
Sóiborg á Akureyri.
Útboðsgagna skal vitja til Bjarna Kristjánssonar,
Sólborg, Akureyri.
Skilafrestur er til 23. maí 1975.
Visíheimilið Sólborg, Akureyri.
fyrir 6 ára börn og eldri hefst í Sundlaug Akur-
eyrar 28. maí nk. — Innritun í síma 23260.
SUNDLAUG AKUREYRAR.
Auglýsing
um
lóðahreinsun
Lóðaeigendur á Akureyri eru áminntir um að
hreinsa af lóðum sínum allt, sem er til óþrifnað-
ar og óprýði og hafa lokið því fyrir hvítasunnu
nk.
Verði um vanrækslu að ræða í þessu efni mun
heilbrigðisnefnd Akureyrarbæjar láta hreinsa á
kostnað ióðaeigenda.
Heilbrigðisfulltrúi.
Stálskipasmíði
MEHIAR
Getum bætt við nemum í stálskipasmíði (plötu-
smíði). Lágmarksaldur 16 ár auk miðskólaprófs.
Ailar frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri.
Slippstöðin hf.
2 - ALÞÝÐUBANDALAGSBLAÐIÐ