Alþýðubandalagsblaðið


Alþýðubandalagsblaðið - 16.05.1975, Side 4

Alþýðubandalagsblaðið - 16.05.1975, Side 4
AB-blaðið spjallar við Gerði Óskarsdótfur skéVasfj. á Neskaupstað Konur láti ekki aðra hugsa fyrir sig — Þann 26. apríl sl. var haldin merk ráðstefna á Nes- kaupsstað, þar sem f jallað var um kjör kvenna, til sjávar og sveita. — Gerður óskrsdóttir, skólastjóri Gagnfræðaskólans þar í bæ, átti þátt í undirbúningi ráðstefnunnar, og varð hún fúslega við þeirri mála- leitan, að svara nokkrum spurningum viðvíkjandi þessari ráðstefnu. AB-blaðið: Hefur svona ráð stefna verið haldin áður hér á landi? Gerður: Ekki utan Reykja- víkur, en rauðsokkar héldu ráðstefnu í Reykjavík fyrir skömmu um verkalýðsmál og kjör verkakvenna. AB-blaðið: Hver var aðdrag andinn að ráðstefnunni? Gerður: Þannig var að hóp- ur rauðsokka úr Reykjavík ákvað að heimsækja Neskaup- stað og kynna hreyfinguna, starfsemi hennar og markmið. Þessi fyrirætlun varð konum hér hvatning til að gera eitt- hvað meira úr þessari heim- sókn, og hugmyndin kom fram að ræða stöðu kvenna, til sjávar og sveita, eins og það var kallað, og fá rauð- sokkana úr Reykjavík með. Þetta varð síðan veruleiki, og ráðstefnan var haldin á veg- um kvenna héðan úr Neskaup stað, og framsögumenn voru einnig héðan. AB-blaðið: Hefur verið stofnuð rauðsokkadeild á Ne-s kaupsstað? Gerður: Nei, það var ekki nein deild úr rauðsokkahreyf- ingunni, sem stóð að þessari ráðstefnu, heldur hópur, sem hafði áhuga á þessháttar um- ræðum, og sem hefur ekki starfað saman síðan, hvað sem seinna verður. AB-blaðið: Voru eingöngu konur þarna? Gerður: Nei, þarna voru einnig karlmenn og einn þeirra hélt framsöguræðu. AB-blaðið: Hvaða þýðingu hefur svona ráðstefna? Gerður: Að vekja fólk til umhugsunar um, að ekki sé allt með felldu í málum kvenna. Að konurnar sjálfar fari að hugsa svolítið meira, og láti ekki gera það fyrir sig. Svo kemur alltaf eitthvað fram í svona umræðum, sem er einhvers virði. AB-blaðið: Hvernig voru viðbrögð heimamanna við þessu framtaki ykkar? Gerður: Ég held þau hafi verið jákvæð, bæði við kynn- ingarhópi rauðsokka, og eins ráðstefnunni. Fólk var ofur- lítið hissa, held ég, að slíkt skuli hafa átt sér stað þarna, og fólki virtist koma á óvart, hve margt kom fram, sem á- stæða var að ræða. AB-blaðið: Hvað segirðu um hugmyndina, að konur leggi niður vinnu einn dag á kvenna ári, til að benda á mikilvægi vinnuframlags þeirra? Gerður: Þessi hugmynd er komin frá rauðsokkum og er fyrst og fremst ætluð að leggja áherslu á mikilvægi kvenna í atvinnulífinu. Til eru þeir, sem halda því fram, að konur ættu hvergi að vera nema á heimil- unum, gæta bús og barna. Þeir hinir sömu ættu að grea sér grein fyrir því, að allt at- vinnulíf lamaðist, ef kvenfólk tæki upp á þéssu.- Hvað yrði um frystihús ,skóla og sjúkra- hús. Þessi hugmynd er því fyrst og fremst til að benda á hið mikilsverða hlutverk kvenna í atvinnulífinu. Hitt mætti svo líka benda á, að þessi krafa um að konur hverfi af atvinnumarkaðnum verður sífellt hærri á atvinnuleysis- tímum og einmitt núna gæti þessi söngur orðið sterkari. AB-blaðið: Eru kjör úti- vinnandi kvenna í Neskaups- stað eitthvað frábrugðin því, sem gerist annarsstaðar? Gerður: Já, að því leyti, að barnaheimilið á Neskaupsstað er eina barnaheimilið á land- inu, þar sem öll börn fá pláss, jafnt börn einstæðra foreldra, sem giftra. Eins er með sjúkra húsið, húsmæður sem fara að vinna þar, lenda ekki á byrj- unarlaunum, heldur er hús- móðurstarfið metið sem starfs reynsla. AB-blaðið: Að lokum Gerð- ur, hvað segirðu eftir eins árs tasrfsreynslu, sem eina konan í stöðu skólastjóra gagnfræða- skóla? Gerður: Ég hef ekki undan neinu að kvarta, ég hef ekki orðið vör við, að mér sé neitt verr tekið, af því að ég er kvenmaður. Samstarfið við undirmenn mína, sem eru mest allt karlmenn, hefur gengið vel og ég verð hér á- fram. RITSTJORNARGREIN AGS Ráðstefna á kvennaári MALGAGN alþýðubandalagsins í norðurlandskjördæmi eystra Ritnefnd: Helgi Guðmundsson (ábm.), form. Soffía Guðmunds- dóttir, Einar Kristjánsson, Óttar Einarsson, Steinar Þorsteinsson og Þráinn Bertelsson. — Framkvæmdastjóri: Jón Daníelsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Geislagötu 10, sími (96)2-18-75, póst- hólf 492. — Opið þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9.30 — 11.30. Fyrir skömmu var haldin á Neskaupstað, ráðstefna, sem fjallaði um kjör kvenna til sjávar og sveita. Ráðstefnuna sátu um 40 manns, bæði karlar og konur, en starfshópur kvenna á Neskaupstað stóð að undirbúningi og hópur rauð- sokka kom frá Reykjavík til þátttöku. Varla þarf að minna á, að nú stendur yfir alþjóðlegt kvennaár, en allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tók um það ákvörðun á sínum tíma, að árið 1975 skyldi helgað bar- áttunni fyrir réttindum kvenna. Sér þess nú staði víða um lönd, að ekki verður látið sitja við orðin tóm. Félagslegar kannanir eru gerðar, ráðstefnur eru haldnar, og öll umræða, bæði af opinberri hálfu og manna í millum, ber því vitni, hver áhrif ákvörðunin um alþjóðlegt kvennaár óhjákvæmilega hefur, ekki síst, þegar svo öflugur aðili, sem Sameinuðu þjóðirnar á í hlut. ‘ Baráttuaðferðir mótast vitanlega af aðstæðum í hinum ýmsu löndum heims, og margur kann að hugsa sem svo, að í iðnvæddum, háþróuðum ríkjum, t. d. í Vestur-Evrópu, hafi öllu réttlæti þegar verið fullnægt, eða því sem næst, og hvers geti konurnar óskað sér, fram yfir það, sem þegar hefur áunnist. Samt vakna margar spurningar, cinnig í þeim hluta heims, sem kennir sig við velferð. Hvernig stendur á því, að konurnar eru ævinlega að langstærstum hluta í lægstu launaflokkunum? Af hverju hafa stúlkur ekki sömu möguleika og piltar til menntunar og starfa í samræmi við hæfni? Af hverju standa konur svo höllum fæti á vinnu- markaði sem raun ber vitni? Hver meinar þeim að njóta atvinnuöryggis? Af hverju eru sum störf kvennastörf, en önnur karlastörf? Hvað útilokar konur frá sviði stjórnmál- anna? Hvernig getur staðið á því, að konurnar eru ekki viðurkenndar sem fullgildir þjóðfélagsþegnar og fyrir- vinnur? Ilvers vegna hafa þær fullar skyldur, en takmörkuð réttindi? Það eru m. a. þessar spurningar, sem rauðsokkahreyfingin hcfur hér á landi átt stærstan þátt í að vekja með mönnum, og það svo rækilega, að furðu margir eru farnir að setja a.m.k. spurningarmerki við áður viðteknar venjur og viðhorf. Margir þeir einstaklingar, sem móður náttúru þóknaðist að skipa í lágstéttina konur, hafa vaknað til nýrrar vitundar um stöðu sína og búist til sóknar fyrir bættum hag og jafn- rétti á við karla. A alþjóðlegu kvennaári hafa rauðsokkar gengist fyrir ráð- stefnu í janúar s.l. um kjör láglaunakvenna í samvinnu við nokkur verkalýðsfélög. Þá var haldin ráðstefna í febrúar um dagvistunarmál og forskólafræðslu, í samvinnu við Fóstru- félagið. Og svo var sú ráðstefna, sem haldin var á Neskaups- stað, sem fyrr var getið. Af öðrum aðgerðum hér á landi í tilefni kvennaárs, hefur ekki frést, ef frá er talið, að í janúar settu A. S. í. og B. S. R. B. á laggirnar nefnd, sem vinnur að félagslegri könnun, og ráðstefna er fyrirhuguð í framhaldi þar af í september n. k. Þess er að vænta, að fleiri þeir aðilar, sem láta sig jafn- réttismál nokkru varða, láti nú einnig verkin tala og sýni, að árið 1975 verður að vera ár athafna og baráttu, eigi árangur að nást. Það er eftirtektarvert, að þeir hópar, sem framsæknastir eru í félagslegum efnum, eru hópar námsmanna og svo hin nýja kvennahreyfing, sem hér á landi og raunar víðar kennir sig við rauða sokka. Þeir eru einfaldlega tákn þess, að konurnar vilja standa á eigin fótum og byggja líf sitt á eigin framlagi í námi og starfi. — S. G.

x

Alþýðubandalagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðubandalagsblaðið
https://timarit.is/publication/1640

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.