Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 1

Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 1
Hamar ehf er um 160 manna vinnustaður sem rekur þétt og öflugt þjónustunet um allt land á sviði málm- og véltækni. Við leggjum ríka áherslu á gæði og fagmannleg vinnubrögð með það að leiðarljósi að uppfylla ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina okkar. Verkefni Hamars eru hin fjölbreytilegustu, allt frá grófri járnsmíði niður í hina fínustu sérsmíði. Tæknifræðingur Skrifstofustarf Deildarstjóri Tæknimaður á starfstöð Hamars á Eskifirði Hamar ehf óskar eftir tæknimanni með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að styðja við rekstur starfsstöðvar Hamars á Eskifirði og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu auk þess að sinna öðrum verkefnum á tæknisviði fyrirtækisins. Helstu verkefni: • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini Hamars á Austurlandi. • Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda. • Heimsóknir til viðskiptavina. • Verkefni á tæknisviði, s.s. hönnunar-, tækni- og teiknivinna. • Tilboðsgerð, eftirlit með verkefnum og verkefnastýring. Menntunar og hæfniskröfur: • Véltæknifræði, véliðnfræði- eða verkfræðimenntun. • Góð reynsla og þekking á faginu nauðsynleg. • Iðnmenntun er mikill kostur. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Öguð vinnubrögð og gott skipulag. • Góð þekking á MS Office (Excel, Word og jafnvel MS project). • Góð þekking á notkun AutoDesk teikni- og hönnunarforrita. • Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli er mikill kostur. Um er að ræða fullt starf Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdarstjóri Árni Gíslason. Umsóknir skulu einnig berast til framkvæmdarstjóra á netfangið: arni@hamar.is. Starfsmaður á skrifstofu Hamars á Eskifirði Hamar ehf. óskar eftir að ráða starfskraft í fullt starf á skrifstofu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni: • Almenn skrifstofustörf. • Skönnun reikninga. • Innkaup á rekstrarvörum. • Umsjón með skrifstofu og kaffistofu. Menntunar og hæfniskröfur: • Menntun/reynsla sem nýtist í starfi. Reynsla í bókhaldsstörfum er kostur. • Almenn tölvukunnátta. Grunnþekking í Navision og færni í Excel. • Nákvæm og vönduð vinnubrögð. • Samskiptahæfni, þjónustulund. • Metnaður og frumkvæði í starfi. Um er að ræða 50-100% starf Nánari upplýsingar um starfið veitir skrifstofustjóri Ásta Þóra Ólafsdóttir. Umsóknir skulu einnig berast til skrifstofustjóra á netfangið: asta@hamar.is. Deildarstjóri á starfstöð Hamars á Eskifirði Hamar ehf óskar eftir deildarstjóra með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að leiða rekstur starfsstöðvar Hamars á Eskifirði og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu. Helstu verkefni deildarstjóra Deildarstjóri sér um daglegan rekstur deildarinnar svo sem samskipti við viðskiptavini og birgja, starfsmannahald, reikningagerð og bera ábyrgð á eftirliti og viðhaldi véla deildarinnar. Deildarstjóri tekur virkan þátt í uppbyggingu og stefnumótun félagsins og er þar með eitt af andlitum fyrirtækisins útá við. Menntunar og hæfniskröfur: • Deildarstjóri skal hafa fagréttindi í iðngreininni. • Reynsla af rekstri, viðhaldi og ráðgjöf á sviði vélbúnaðar. • Haldgóða þekkingu á tölvum, svo sem excel, word. • Hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði og samskiptahæfni. • Góð íslensku- og enskukunnátta. • Stundvísi. Um er að ræða fullt starf Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdarstjóri Árni Gíslason. Umsóknir skulu einnig berast til framkvæmdarstjóra á netfangið: arni@hamar.is. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.