Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 23.09.2021, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 5 DEILDARSTJÓRI VERKSTÆÐIS Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) óskar eftir að ráða deildarstjóra verkstæðis. SHS sinnir slökkvi- og björgunarstarfi og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt ýmsum störfum sem þessu tengjast. Starfsstöðvar okkar eru fjórar og er verkstæðið staðsett í Skógarhlíð. Starfið heyrir undir varaslökkviliðsstjóra. Um er að ræða 100% starf, viðkomandi þarf jafnframt að vera reiðubúin/n að sinna tilfallandi útköllum utan dagvinnutíma. Helstu verkefni: » Almennur rekstur og starfsmannahald á verkstæði » Umsjón með bilanagreiningum og viðgerðum á bifreiðum og öðrum búnaði » Fyrirbyggjandi eftirlit, viðhalds- og viðgerðarvinna » Samskipti við starfsfólk SHS vegna eftirlits og viðhalds alls kyns búnaðar » Samskipti við birgja og þjónustuaðila » Fræðsla til starfsfólks SHS um bifreiðar og búnað » Lagerhald á rekstrarvörum, varahlutum o.fl. » Ýmis þjónusta við starfsstöðvar SHS Hæfniskröfur: » Bifvélavirki, meistararéttindi kostur » Reynsla af rekstri og mannaforráðum kostur » Reynsla af viðgerðum » Aukin ökuréttindi æskileg » Góð samstarfs- og samskiptahæfni » Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum » Góð íslensku- og enskukunnátta » Almenn tölvukunnátta Nánari upplýsingar veitir Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri á birgirf@shs.is eða í síma 528-3000. Umsókn ásamt ferilskrá berist á netfangið starf@shs.is. Hvetjum alla áhugasama einstaklinga til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins | Skógarhlíð 14 | S: 528 3000 | www.shs.is Ráðgjafi Menntasjóður námsmanna er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efna- hags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá Menntasjóði námsmanna starfa um 40 starfsmenn. Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni. Nánari upplýsingar má finna á: www.menntasjodur.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Menntasjóður námsmanna óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í starf ráðgjafa. Í starfinu felst ráðgjöf og þjónusta við námsmenn og greiðendur námslána, úrvinnsla gagna við afgreiðslu námslána og afborgana ásamt ýmsum öðrum verkefnum tengdum veitingu námslána og innheimtu. Um framtíðarstarf er að ræða. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. • Samskipti og upplýsingagjöf til námsmanna og greiðenda • Mat á umsóknum um undanþágur frá afborgun • Veiting námslána þ.m.t. mat á aðstæðum námsmanns, lánshæfi náms, einingaskilum, tekjum og skólagjöldum • Mat á rétti til námsstyrkjar við námslok • Innheimta námslána og almenn upplýsingagjöf varðandi afborganir og greiðsluleiðir Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Fræðagarð stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla sem nýtist í starfi er kostur • Góð tölvukunnátta er skilyrði • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði • Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur • Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð • Jákvætt viðmót, góð samskiptafærni, samstarfsvilji og álagsþol

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.