Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 1

Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 1
Tónlistiner eins og vatnið Nýjar barna-stjörnur Harpa er heimili Högna Egilssonar þessa dagana. Um helgina verður hleypt af stokkunum margmiðlunar- sýningunni CIRCULEIGHT með hans aðild og á föstudaginn mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk Högna, þar á meðal fyrstu sinfóníu tónskáldsins. Allt líf Högna hverfist um tónlistenda segir hann þá göfugulist okkur eins lífsnauðsyn-lega og sjálft vatnið. 14 31. OKTÓBER 2021SUNNUDAGUR Óöld og glundroði Kristín Erla ogMargrét Júlíaleika í Birtu,nýrri íslenskrikvikmynd,og hafa báðarfengið viður-kenningufyrir leiksinn. 22 Stenst ekkileyndarmál Ásdís Halla Bragadóttirsegir sögu læknisinsMoritz Halldórssonarí nýrri bók.Hún elskar sögurog leyndarmál. 8 Haítí er á valdi glæpagengja og daglegt líf martröð líkast.12L A U G A R D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 255. tölublað . 109. árgangur . HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.mitsubishi.is ECLIPSE CROSS INVITE Frábært verð 5.490.000 kr. Fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll Til afhendingar strax HLÁTURINN ER SÁTTAR- MEÐAL STUNDUM SÓLÓ OG STUNDUM HLJÓMSVEIT STAFRÆNN HÁKON 43KOLBEINSEY 12 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er verið að skoða af alvöru framleiðslu á íblöndunarefni í sem- ent úr íslenskum jarðefnum. Þetta er sérstaklega hugsað til að lækka kol- efnisspor sements,“ segir Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins ehf. Uppi eru áform um að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn sem mun nýta móberg og íslenskt rafmagn til framleiðslu íblöndunarefnisins. Með því mun kolefnisspor steypu lækka. Miðað er við að flutt verði út milljón tonn af efninu á ári, aðallega til Norður-Evrópu. Frummat gerir ráð fyrir að heildarfjárfestingin nemi um tíu milljörðum króna. Framkvæmdir við verksmiðjuna gætu hafist eftir 2-3 ár og fram- leiðsla mögulega 2024 eða 2025. Móbergið verður þurrkað og malað í verksmiðjunni. Horft er til þess að nýta hreina íslenska raf- orku við vinnsluna þannig að kol- efnisspor framleiðslunnar verður lítið sem ekkert. Raforkuþörfin gæti orðið svipuð og hjá lítilli stór- iðju. „Við erum bjartsýn á að þetta verði að veruleika,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss um áformin. „Einn af hornsteinum þessa verkefnis er stækkunin á höfninni sem við erum að ráðast í. Samhliða henni skapast möguleikar fyrir verk- efni eins og þessi,“ sagði Elliði. Verði af áformum um verksmiðjuna fylgja tugir nýrra starfa og auknar tekjur. Milljón tonn á ári úr móbergi - Áform um 10 milljarða kr. fjárfestingu í framleiðslu íblöndunarefnis í Þorlákshöfn M Íblöndunarefni »10 Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Þorlákshöfn Stækkun hafnarinnar fylgja margir nýir möguleikar. Hrekkjavaka er á morgun, sunnudag, sam- kvæmt dagatalinu. Íslendingar hafa í seinni tíð tekið hrekkjavökuhátíðinni opnum örmum og hafa hátíðahöldin aukist ár frá ári. Börn hafa klætt sig í búninga í skólum, og munu án efa ganga víða í hús á morgun. Það verður einnig sífellt algengara að full- orðnir hópi sig saman og geri sér glaðan dag með viðeigandi sprelli. Starfsfólk og íbúar á hjúkrunarheimilinu Mörk létu ekki sitt eftir liggja í hátíðahöldunum í gær og höfðu skreytt húsnæðið hátt og lágt. »13 Morgunblaðið/Eggert Ungir sem aldnir halda upp á hrekkjavöku Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur hélt því fram á fundi í gær að bankar hefðu sérstaklega veigrað sér við því að lána til upp- byggingar í Reykjavík og að það kunni að skýra þann íbúðaskort sem nú er í sveitarfélaginu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, er ósammála þeirri staðhæfingu og segir aðild- arfélög samtakanna frekar vísa til takmarkaðs framboðs lóða frá borg- inni. Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, segir það flókið að byggja í Reykjavík og dýrara en gengur og gerist í nágrannasveit- arfélögum. Þar spili til dæmis inn í að í nýjum fjölbýlishúsum fái Reykjavík- urborg tiltekinn fjölda íbúða á sér- stökum afsláttarkjörum sem hækki verð annarra íbúða í fjölbýlinu. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Hús Mikil eftirspurn er eftir íbúðum. Flókið að byggja í Reykjavík - Vísa orðum Dags til föðurhúsanna _ Núverandi staða í kórónuveiru- faraldrinum þýðir að ólíklegt er að öllum takmörkunum verði aflétt 18. nóvember næstkomandi, líkt og stefnt var að. Þetta kemur fram í pistli Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra í Morgunblaðinu í dag. Segir hún ljóst að það skipti öllu máli að fólk fari áfram varlega, passi upp á sig og fólkið í kringum sig. Þá hvetur hún fólk til þess að láta bólusetja sig, hafi það ekki gert það, sem og að fá sér örvunar- skammta, þegar þeir standi til boða. 78 innanlandssmit greindust í gær. Landspítalinn og hjúkr- unarheimili hertu í gær reglur um heimsóknir vegna fjölgunar smita. »4 og 20 Ólíklegt að verði af afléttingum 18. nóv.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.