Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Samkeppniseftirlitið heldur úti facebook-síðu þar sem það tjáir sig um eitt og annað sem það telur brýnt að koma á fram- færi. Þar var til dæmis á dög- unum vikið að opn- un nýrrar Krónu- verslunar á jarð- hæð húss Sam- keppniseftirlitsins og því haldið fram að ákveðins mis- skilnings virðist gæta um þátt eftir- litsins í sölu Festar á Krónunni í Nóatúni. Samkeppn- iseftirlitið hafði ekkert með þá sölu að gera, segir á facebook- síðunni. - - - Þetta er djörf túlkun á málinu, því að staðreyndin er sú að eftirlitið hafði sett þau skilyrði að Festi seldi búð á Hellu, en hafði jafnframt ítrekað hafnað sölu á versluninni. Það var ekki fyrr en Festi seldi verslunina í Nóatúni samhliða þeirri á Hellu sem eft- irlitið samþykkti söluna. - - - Fleira skrýtið kemur frá Sam- kepppniseftirlitinu. Um dag- inn mótmælti það hvernig tals- menn atvinnulífsins tjáðu sig um verðhækkanir, og sagði forstjór- inn af því tilefni að fyrirtæki gætu brugðist við hækkun að- fanga með öðrum hætti en hærra vöruverði. Þau gætu hagrætt. - - - Vitaskuld er það fyrsti kostur fyrirtækja í samkeppni að hagræða, en hvað með Sam- keppniseftirlitið? Kostnaður við rekstur þess hefur rúmlega fjór- faldast frá aldamótum og hækkað um fjórðung á sl. fimm árum. - - - Væri ekki ráð að eftirlitið gengi á undan með góðu for- dæmi og hagræddi hjá sér? Hagræðingartæki- færin leynast víða STAKSTEINAR Á fundi borgarráðs á fimmtudag lögðu fulltrúar Sjálfstæð- isflokks og Mið- flokks fram fyr- irspurnir um tilurð og kostnað við bæklinginn Upp- bygging íbúða í borginni sem bor- inn var í hús í höf- uðborginni nýlega. Á fundinum var lögð fram svohljóð- andi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins: „Nú berst borgarbúum stórt tíma- rit í tengslum við húsnæðisáætlun borgarinnar og er útgefandi þess Reykjavíkurborg. Ekki er hægt að láta hjá líða í þessu samhengi, að minnast á átak borgarinnar þar sem borgarbúar voru hvattir til að snið- ganga pappírsbæklinga en hér fer borgin enn og aftur sjálf gegn eigin hvatningu með því að dreifa pappír inn um allar lúgur óumbeðin. Í fyrra var sent út tímarit í tengslum við græna planið og var kostnaður við gerð þess um 10.240.777 kr. fyrir utan virðis- aukaskatt. Óskað er upplýsinga um hvar og hvenær ákvörð- un um útgáfu þessa bæklings var tekin og hvaða fjárheim- ildir hafi legið fyrir ákvörðuninni. Fór gerð bæklingsins og dreifing í útboð? Hvað kostaði hönn- un, prentun og dreifing bæklings- ins? Hver var heild- arkostnaður við vinnslu blaðsins og í hverju fólst hann?“ Þá lagði fulltrúi Miðflokksins fram fyrirspurn um kostnað við hús- næðisblað Reykjavíkurborgar sem dreift var 26. október 2021, tæmandi talið og sundurliðað. Þessum spurn- ingum verður væntanlega svarað innan tíðar á sama vettvangi. Fram kom í blaðinu að Athygli sá um textavinnu og Ritform um um- brot. sisi@mbl.is Spyrja um kostnað við húsnæðisblað - Borgin gagnrýnd fyrir að ganga gegn eigin hvatningu um sniðgöngu pappírs 85% nýnema í framhaldsskólum landsins fengu inni í þeim skólum sem þeir sóttu um í fyrsta vali. Í heild bárust flestar umsóknir til Tækni- skólans. 856 umsóknir voru sam- þykktar en 543 hafnað. Þetta kemur fram á vefsíðu Menntamálastofn- unar, sem hefur tekið saman tölur um nemendur framhaldsskólanna á yf- irstandandi haustönn. Alls sóttu 8.899 um nám í fram- haldsskólunum og þar af voru nýnemaumsóknir 4.214 talsins. Fram kemur að meðalaldur nemenda í starfsnámi er umtalsvert hærri en nemenda í bóknámi. Þá eru fleiri karlkyns nemendur nú skráðir í framhaldsskólanám en kvenkyns nemendur. Mestur er kynjamunur nýnema í Tækniskólanum en þar eru karlkyns nemendur 255 en kvenkyns- nemar 120. Fjölbrautaskólinn í Breið- holti fékk næstflestar umsóknir og voru 482 samþykktar en 115 hafnað. Flestar umsóknir nýnema um fyrsta val um skólavist í einstökum skólum bárust um nám í Verzlunarskóla Ís- lands eða 546 og fengu 360 inni í þeim skóla. 417 sóttu um nám í Tækniskól- anum sem fyrsta val og fengu 353 þeirra skólavist. 610 karlnemar og 693 kvennemar voru skráðir á nátt- úrufræðibraut til stúdentsprófs í framhaldsskólunum og 667 kvennem- ar og 302 kvennemar eru skráðir á félagsfræðibraut. Karlkyns nemendur eru í meirihluta - Flestar umsóknir um nám í Tækniskólanum - 8.899 sóttu um í framhaldsskólum Morgunblaðið/Kristinn Nemendur Alls sóttu 8.899 um nám í framhaldsskólunum á haustönn. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.