Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 13

Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is N ú, þær eru alveg glimr- andi,“ segir Anna Heið- dal, íbúi í Mörk, þegar hún er spurð hvað henni þykir um metnaðarfullar hrekkja- vökuskreytingarnar sem prýða ganga hússins og segist hafa mjög gaman af þeim, þetta sé svo vel gert. „Það lá við að ég fengi hjartaáfall þegar ég sá manninn í stólnum þarna,“ segir hún um óhugnanlegan kumpána sem liggur í stól í anddyr- inu og virðist ekki lífs. Mikið hefur verið lagt upp úr skreytingum á fyrstu hæð hússins auk þess sem hrekkjavökustemningin teygir sig upp á efri hæðir hússins. „Þær eru svo duglegar að skreyta og skreyta svo fallega. Þetta eru voðalega miklir listamenn hérna,“ tekur Bergdís R. Jónas- dóttir, annar íbúi, undir. „Þetta er svo listrænt hjá þeim og það er gott að fá smá kipp svona.“ Þær stöllurnar hafa ekkert á móti hrekkjavökunni þótt öskudag- urinn sé nú þegar í dagatalinu. „Það er alltaf góðum dögum við bæt- andi,“ segir Bergdís. „Við erum alltaf tilbúnar að taka á móti einhverjum breyt- ingum. Við erum svo partíglöð hérna, þetta er allt í lagi. Við höfum reglulega gaman af þessu,“ segir Anna. Hrafnhildur Snædal Ólafs- dóttir, sessunautur Önnu og Berg- dísar, bendir á að þessir dagar hafi verið nefndir í íslenskum heim- ildum og á þá við dagana eftir 26. viku sumars, millibilsástandið þeg- ar sumar mætir vetri og andar jafn- vel taldir vera á kreiki. „Við erum ekkert bara að hafa þetta eftir Am- eríkananum,“ segir Bergdís. Kannski að sumu leyti en ekki öllu. Anna vill þó alls ekki að þetta verði til þess að hinn gamli góði öskudagur hverfi með öllu og hinar taka undir. Ingunn Guðrún Árnadóttir sem stýrir Boggubúð, versluninni á staðnum, segir að almennt taki íbú- arnir vel í þetta uppátæki. „Þetta er eins og eins konar hópefli.“ Íbú- arnir hafa hjálpast að við að föndra síðustu daga. Það eru ræstingastjórinn Vaida Stankuté og hennar samstarfsfólk sem standa helst fyrir skreyting- unum en heimilismenn hjálpuðu líka til. „Það er oft eitthvað í gangi hjá okkur en það hefur kannski aldrei þróast út í svona mikið,“ segir Vaida sem sýnir okkur inn ræstingagang- inn þar sem búið var að skreyta hátt og lágt. Hún segir að lítið sem ekk- ert hafi verið keypt ef skreytingum, mest hafi verið búið til á staðnum úr því sem til var. „Það er yfirleitt mjög gaman hjá okkur í vinnunni. Það er alltaf gaman að mæta,“ segir hún glöð í bragði. „Ég var einmitt að segja við þær að ég bíð spennt eftir jólunum hjá þeim. Þannig að það eru ekki bara krakkarnir sem skemmta sér,“ segir Ingunn og Vaida bætir við: „Það er gaman að breyta aðeins til, sérstaklega eftir þennan erfiða tíma.“ Efnt hefur verið til skreytinga- keppni milli hæða í Mörk og milli dvalar- og hjúkrunarheimilanna þriggja sem starfa undir sama hatti, Grundar, Áss og Markar. Nýjungaglaðar Anna, Bergdís og Hrafnhildur eru hrifnar af þessu uppátæki starfsfólksins. Skrautlegt Starfsfólk ræstingadeildarinnar tekur hrekkjavökuna alvarlega. „Við erum svo partíglöð hérna“ Morgunblaðið/Eggert Hrekkjavaka Aðkoman í matsalnum í Mörk var vægast sagt skrautleg. Íbúar og starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Mörk kunna að gera sér glaðan dag og fagna að þessu sinni hrekkjavöku. Foreldrafélög grunnskólanna í Breið- holti hafa gefið öllum grunnskóla- börnum endurskinsljós, endurskins- merki með innbyggðu ljósi. Merkin eru merkt Breiðholti og þannig útbú- in að hægt er að hengja þau á töskur og rennilása. Þá eru þrjár mismun- andi stillingar á ljósinu. „Nú er haustfríið að baki og vet- urinn genginn í garð. Með vetrinum kemur myrkrið og þá er nauðsynlegt að við séum öll sýnileg í umferðinni. Besta leiðin til þess er að nota endur- skinsmerki,“ segir í tilkynningu frá foreldrafélögunum. Þá hafa nemendur í unglinga- deildum sérstaklega verið hvattir til þess að sýna yngri nemendum gott fordæmi og hengja á sig ljósin. Grunnskólar Skínandi börn í Breiðholti Gjöf Börn í Breiðholti fengu ný endur- skinsmerki með ljósi. Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Jólalínan komin LAXDAL ER Í LEIÐINNI TRAUST Í 80 ÁR Ný sending Skoðið laxdal.is B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 Opið í dag kl. 11-15 Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 Við erum á facebook Cherry Berry buxur Kr. 5.900 Flísfóðraðar kr. 6.900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.