Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Arkitektastofan Trípolí+Krads hef- ur borið sigur úr býtum í samkeppni um kennileitishús í Urriðaholti. Þrjár arkitektastofur tóku þátt í samkeppninni. Kennileitishúsið stendur á áberandi stað í Urriða- holti, við Vörðugötu 2, og því ætlast til að sigurtillagan væri frumleg og vönduð í samræmi við það. Í greinargerð arkitektanna sem standa að baki verkefninu segir meðal annars: „Form bygging- arinnar er einstakt og mun vekja at- hygli allra sem leið eiga fram hjá.“ Egill Sæbjörnsson myndlistar- maður hefur hannað „lifandi org- anískt yfirborð“, sem er sérstök meðhöndlun á steypu forsteyptra eininga. Þrjátíu íbúðir verða í kenni- leitishúsinu en alls verður húsið 6.600 fermetrar, þar af 1.500 neð- anjarðar. Teikning/Trípolí+Krads Lifandi Egill Sæbjörnsson hefur hannað yfirborð byggingarinnar. „Mun vekja athygli“ - Trípolí+Krads bar sigur úr býtum í samkeppni um kennileitishús Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Aldrei hefur komið til þess að kosn- ingar til Alþingis hafi verið ógiltar vegna annmarka (galla) á fram- kvæmd þeirra. Hins vegar hefur Hæstiréttur fjallað um annmarka á framkvæmd laga um kosningar til sveitarstjórna eða forvera þeirra auk gildis kosninga til stjórnlaga- þings og forsetakosninga. Þetta kemur fram í minnisblaði sem skrifstofa Alþingis hefur tekið saman að beiðni undirbúnings- nefndar fyrir rannsókn kjörbréfa. Nefndin vinnur sem kunnugt er að skoðun álitamála sem upp hafa komið vegna alþingiskosninganna í Norðvesturkjördæmi. Birgir Ár- mannsson, formaður nefndarinnar, hefur sagt að niðurstaða fáist von- andi í næstu viku. Gæti snert 16 þingmenn Eins og fram hefur komið hér í blaðinu myndi ógilding kosninga í Norðvesturkjördæmi, ef til kæmi, snerta 16 nýkjörna alþingismenn, þ.e. sjö kjördæmakosna þingmenn í Norðvesturkjördæmi og alla níu jöfnunarþingmennina. Verði þetta niðurstaða Alþingis færi fram upp- kosning (endurkosning) í kjördæm- inu samkvæmt kosningalögum. Leiði niðurstaða slíkrar kosningar til annarrar niðurstöðu myndi landskjörstjórn gefa út ný kjörbréf fyrir hina nýkjörnu þingmenn sem kæmu svo til umfjöllunar í þinginu eins og eftir almennar kosningar. Í minnisblaðinu er fjallað um ógildingarreglur laga um kosningar til Alþingis og laga um kosningar til sveitarstjórna, úrlausnir Hæsta- réttar um annmarka á framkvæmd kosninga og forsetakjörs og áhrif annmarka á gildi kosninga. Í lögum um kosningar til Alþingis og í lögum um kosningar til sveit- arstjórna er að finna meginreglu um það hvenær annmarkar á fram- kvæmd kosninga leiða til ógildingar þeirra, segir í minnisblaðinu. Í 3. mgr. 120. gr. laga um kosn- ingar til Alþingis segir að ef þeir gallar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úrskurði Alþingi kosningu hans ógilda og einnig án þess ef þing- maðurinn sjálfur, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafi vísvit- andi átt sök á misfellunum, enda séu þær verulegar. Fari um alla þingmenn, kosna af listanum, eins og annars um einstakan þingmann ef misfellurnar varða listann í heild. Samkvæmt þessu ákvæði geta ann- markar á kosningu þingmanns leitt til ógildingar ef „ætla má“ að ann- marki hafi haft áhrif á úrslit kosn- ingar eða ef saknæmt atferli þing- manns, umboðsmanns hans eða meðmælenda er ástæða annmark- ans. Með lögum nr. 5/1998 voru sett sérlög um kosningar til sveitar- stjórna en þar segir í 94. gr. að gall- ar á framboði eða kosningu leiði ekki til ógildingar kosninga, nema ætla megi að þeir hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Þá hafi fræðimenn talið að ógild- ingarreglur kosningalaga hvíli í reynd á víðtækari ólögfestum grunni, m.a. að því er varðar sér- tæka ólögfesta ógildingarreglu sem á við þegar brotið er gegn þeirri meginreglu sem lögfest er í 31. gr. stjórnarskrár um leynilegar kosn- ingar. Þar segir að á Alþingi eigi sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri hlutbundinni kosn- ingu til fjögurra ára. Regla 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis kom fyrst fram í lögum um kosningar til Al- þingis, nr. 18/1934. Í athugasemd- um með frumvarpi til þeirra laga var tiltekið að smávægilegir gallar á kosningum ættu ekki að valda ógildingu kosningar. Væri ekki um óheiðarlegt athæfi að ræða ætti ekki að ónýta kosningu þingmanns, nema ætla mætti að það sem áfátt væri hefði haft áhrif á úrslitin. Ákvæðið var ekki skýrt frekar. Þá segir í minnisblaðinu að í skrifum fræðimanna hafi verið gengið út frá því að margir smáveg- is annmarkar geti ekki haft áhrif á kosningaúrslit. Því beri ekki að ógilda kosningu þótt slíkar misfell- ur af hálfu kjörstjórnar eða kjör- stjóra kunni að varða refsingu. Sé ljóst að annmarkar við kosningar hafi getað ráðið úrslitum um niður- stöður þeirra skipti almennt engu máli hverjum er um að kenna eða hvort nokkur eigi sök á misfell- unum heldur beri þá að ógilda kosninguna. Séu annmarkar ekki þess eðlis beri ekki að ógilda nema þingmaður sjálfur, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafi vísvit- andi átt sök á misfellunum, enda séu þær verulegar, sbr. 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis. Alþingi sker sjálft úr Á grundvelli 46. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands sker Alþingi sjálft úr, hvort þingmenn þess séu löglega kosnir. Ákvæðið hefur verið skilið svo að Alþingi úrskurði um kjörgengi nýkjörinna þingmanna og um lögmæti kosninganna. Alþingi hefur því úrskurðarvald, ekki að- eins um kjörgengi þingmanna held- ur einnig um öll atriði er kosningu varða, svo sem lögmæti framboðs, undirbúning kosninga, atferli kjör- stjórna, kosningarathöfn, ágrein- ingsseðla o.s.frv. Það verður gert svo skjótt sem nýtt Alþingi hefur verið sett. Annmarkar á fram- kvæmd alþingiskosninga koma ekki til úrlausnar hjá Hæstarétti. Síðan segir í minnisblaðinu að af dómaframkvæmd Hæstaréttar um gildi sveitarstjórnarkosninga megi ráða að dómstóllinn hafi beitt ólík- um mælikvörðum við mat á því hvort annmarkar valdi ógildi kosn- inga. Kosningar til Alþingis hafa aldrei verið ógiltar vegna annmarka - Hæstiréttur fjallaði um kosningar til sveitarstjórna, stjórnlagaþings og embættis forseta Þingmennirnir sem ógilding gæti haft áhrif á Kjördæmakjörnir Jöfnunarþingmenn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfad. D Haraldur Benediktsson D Eyjólfur Ármannsson F Bjarni Jónsson V Sigmar Guðmundsson C Guðbrandur Einarsson C Bergþór Ólason M Andrés Ingi Jónsson P Jóhann Páll Jóhannsson S Orri Páll Jóhannsson V Jódís Skúladóttir V Gísli Rafn Ólafsson P Stefán Vagn Stefánsson B Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir B Halla Signý Kristjánsdóttir B Arndís Anna K. Gunnarsdóttir P Hlýjar og fallegar jólakveðjur Jólakort Hringsins 2021 ásamt merkimiðum eru komin í sölu Með því að setja kortin og merkimiðana á pakkana styrkir þú Barnaspítala Hringsins Helstu útsölustaðir eru Penninn, Hagkaup, Lyf og heilsa, Apótekarinn og Melabúðin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.