Morgunblaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 16
uppi áform um að ráðast í nauðsyn-
legar gatna- og veituframkvæmdir
þar á næstunni. Eitt hesthús hefur
þegar verið byggt en eldra hest-
húsahverfið norðan til á Hellu er
skilgreint sem víkjandi í skipulagi.
- - -
Í samráði með Isavia, flugmála-
yfirvöldum, flugklúbbnum á Hellu
og sveitarfélaginu er unnið að gerð
deiliskipulags fyrir flugvallar-
svæðið. Gert verði ráð fyrir upp-
byggingu flugtengdrar starfsemi,
svo sem byggingu flugskýla á sér-
lóðum. Nálægð vallarins við vænt-
anlega íbúðabyggð á Hellu hefur
marga kosti og er jafnframt verið
að ganga frá lagnahönnun í
tengslum við uppbyggingu vallarins
gagnvart hinni nýju íbúðabyggð í
Ölduhverfinu. Hugsanlegt er að
flugvöllurinn verði styttur til suðurs
og jafnvel lengdur til norðurs ef
þörf verður á.
- - -
Hafist er handa við að skipu-
leggja íbúðabyggð í svokölluðu
Bjargshverfi, rétt vestan Ytri-
Rangár gegnt Hellu. Það er svæði
sem tilheyrir þéttbýlinu og verður
um stærri lóðir þar að ræða með
miklum möguleikum til útivistar og
næðis. Gert verði ráð fyrir góðum
aksturs- og göngutengingum að
svæðinu og er gert ráð fyrir að
byggð verði göngubrú yfir ána.
Jafnframt liggur fyrir að bætt verði
við göngubrú utan á núverandi brú
þjóðvegarins yfir Ytri-Rangá.
- - -
Deiliskipulagsvinnu fyrir
Hvammsvirkjun er lokið og er beðið
eftir endanlegri afgreiðslu Skipu-
lagsstofnunar. Fjölmargar athuga-
semdir bárust á auglýsingatíma til-
lögunnar og hefur endanleg tillaga
tekið mið af þeim. Skipulagsstofnun
hefur kynnt til umsagnar matsáætl-
un vegna framkvæmda í Land-
mannalaugum. Matsáætlun er und-
anfari matsskýrslu sem væntanlega
mun líta dagsins ljós strax eftir ára-
mót. Hafin er vinna við athugun á
möguleikum sveitarfélagsins í sam-
ráði við Rangárþing eystra á að
lagður verði göngu- og hjólastígur á
milli þorpanna meðfram Suður-
landsveginum.
- - -
Rósey og Klukkublóm eru tvö
ný fyrirtæki á Hellu. Nöfnin gætu
bent til þess að bæði fyrirtækin
höndluðu með blóm eða rósir, en
svo er ekki. Rósey ehf. er nýtt fyrir-
tæki sem sérhæfir sig í viðgerðum á
öllu er tengist glussakerfum, hvort
heldur það eru ámoksturstæki á
dráttarvél eða stórar véla-
samstæður í frystihúsum og iðnaði.
Síðastliðið sumar voru hins vegar
Klukkublóm opnuð í elsta hluta
þorpsins, en það er blóma- og gjafa-
vöruverslun. Þessi fyrirtæki eru góð
viðbót við þá fyrirtækjaflóru sem
fyrir er.
- - -
1.000 ára sveitaþorp, fyrir-
tæki í Þykkvabæ, hefur hingað til
framleitt skræður og selt kartöflur í
umhverfisvænum umbúðum.
Skræður eru þurrkað hrossakjöt,
kjötnasl, byggt á aldagamalli hefð
úr Þykkvabænum. Fyrirtækið er nú
með á teikniborðinu að framleiða
svokölluð KindaKol með margvís-
lega notkunarmöguleika, þar sem
aðalhráefnið er sauðatað og annar
vannýttur lífrænn úrgangur. Stefnt
er að því m.a. að þróa vistvæn iðn-
aðarkol sem gætu að einhverju leyti
leyst af hólmi hefðbundin kol sem
notuð eru til að mynda í starfsemi
stóriðjuvera.
- - -
Söluskála Olís á Hellu hefur
verið lokað hluta úr degi af og til
undanfarið vegna manneklu. Í við-
bót við að ekki hefur fengist nægt
fólk til starfa hafa veikindi orðið til
þess að forráðamenn söluskálans
hafa gripið til þess ráðs að loka
starfseminni hluta úr degi.
Færri fá byggingarlóðir en vilja
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Framkvæmdir Atgangur er mikill í byggingarstarfsemi á Hellu og mikill áhugi er á byggingarlóðum á svæðinu.
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hellu
Landsmót hestamanna 2022
verður haldið á Hellu dagana 4.-10.
júlí nk. Mótið átti að vera árið 2020
á Hellu, en var fellt niður vegna
Covid. Þetta landsmót er það 24. í
röðinni frá upphafi og það sjötta
sem haldið er á Hellu. Stjórn Rang-
árbakka ehf. sem heldur mótið hef-
ur nú ráðið Magnús Benediktsson
sem framkvæmdastjóra. Vonast er
til að um 8.000 gestir sæki mótið og
keppendur eru um 700 víðsvegar að
af landinu. Miðasala fyrir viðburð-
inn fer í gang föstudaginn 5. nóv-
ember nk. og verða miðar á sér-
stöku forsöluverði fram að ára-
mótum.
- - -
Skipulags- og lóðamál í
Rangárþingi ytra eru á fullri ferð ef
svo má að orði komast. Nú í vikunni
lá 101 umsókn um lóðir á Hellu fyrir
fundi í byggðaráði. Á fundinum var
úthlutað 15 íbúðalóðum fyrir 33
íbúðaeiningar og tveimur atvinnu-
lóðum. Draga þurfti úr umsóknum
þar sem allt að 14 umsóknir voru
um sumar lóðirnar. Nú eru einungis
tvær lóðir sem ekki er búið úthluta,
lausar og tilbúnar á Hellu fyrir
íbúðarhúsnæði. Hægt er að sjá laus-
ar lóðir á kortasjá sveitarfélagsins.
- - -
Gríðarlegur áhugi er fyrir lóð-
um til íbúðar utan þéttbýlis og mik-
ill áhugi er fyrir að breyta frí-
stundasvæðum í íbúðabyggð. Mjög
gott framboð er af lóðum til slíkra
bygginga. Má þar t.d. nefna skipu-
lögð íbúðasvæði eða landbúnaðar-
svæði eins og Rangársléttu, Þjóð-
ólfshaga, Selás, Litla-Hof og Gadd-
staði. Á Gaddstöðum eru t.d. aðeins
sex lóðir af 52 enn skráðar sem frí-
stundalóðir.
- - -
Lóðum til byggingar hesthúsa
í nýju hesthúsahverfi við reiðhöllina
á Rangárbökkum hefur verið út-
hlutað til nokkurra aðila og er beðið
framkvæmda þar. Sveitarfélagið
hefur með gatnahönnun og lagna-
hönnun að gera á svæðinu og eru
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Nýafstaðið kirkjuþing afgreiddi ekki
tillögu um sölu 24 fasteigna kirkj-
unnar og verður málið tekið upp að
nýju á framhaldsfundi undir lok nóv-
ember. Aftur á móti var samþykkt
tillaga frá fjárhagsnefnd þingsins
um að fasteignasviði kirkjunnar yrði
falið að afla frekari upplýsinga um
þær eignir, sem þar eru tilgreindar,
svo sem um ástand þeirra, viðhalds-
þörf, rekstrarkostnað, tekjur af
eigninni og áætlað söluverð þeirra
eigna sem það á við. Ætlast er til að
verkið verði unnið í samráði við
nefndina.
Eins og fram kom hér í blaðinu í
síðustu viku lagði starfshópur á veg-
um kirkjuþings til að átta jarðir og
16 aðrar fasteignir í eigu þjóðkirkj-
unnar yrðu seldar. Tillagan er liður í
fjárhagslegri endurskipulagningu
kirkjunnar. Meðal eignanna er emb-
ættisbústaður biskups á Bergstaða-
stræti 75. Jarðirnar sem selja á sam-
kvæmt tillögunni eru Árnes 1,
Desjarmýri, Kolfreyjustaður, Mikli-
bær, Skeggjastaðir, Syðra-Lauga-
land og Brúnir (úr Syðra-Lauga-
landi) og Voli. Jarðir kirkjunnar eru
nú 33 talsins auk Skálholts. Þar af
eru 18 jarðir setnar prestum. Þjóð-
kirkjan á auk þess 27 fasteignir sem
nýttar eru sem íbúðarhúsnæði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kirkjuþing Biskup og forseti þings-
ins hlýða á umræður þingfulltrúa.
Ákvörðun
um sölu
frestað
- Kirkjuþing vill fá
meiri upplýsingar
Nýlega hófust umfangsmiklar fram-
kvæmdir við endurbætur gatnamót-
anna við Suðurströnd og Nesveg á
Seltjarnarnesi, en þetta eru helstu
gatnamót bæjarins. Framkvæmd-
irnar hafa verið í undirbúningi um
nokkurt skeið.
Framkvæmdin er tvíþætt, að því
er fram kemur í frétt á vef Seltjarn-
arnesbæjar. Annars vegar er um að
ræða endurnýjun umferðarljósabún-
aðar. Hins vegar endurbætur gatna-
mótanna með sérstöku tilliti til ör-
yggis gangandi og hjólandi
vegfarenda. Stígar verða breikkaðir
og aðgengi sjónskertra bætt. Um-
ferðareyjur verða endurgerðar og
lýsing á gatnamótunum bætt.
Það eru Seltjarnarnesbær og
Vegagerðin sem eru verkkaupar að
framkvæmdinni. VSÓ Ráðgjöf sá um
alla hönnun en Loftorka sér um
framkvæmdina. Áætluð verklok eru
í desember 2021.
Meðan á framkvæmdunum stend-
ur verða settar upp greinargóðar
merkingar og umferð gangandi og
akandi verður lítið skert. Foreldrar
hafa verið hvattir til að upplýsa börn
sín. Gangbrautarvarsla verður á
morgnana út allan verktímann.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/sisi
Gatnamótin Starfsmenn Loftorku vinna að endurbótum og lagfæringum.
Helstu gatnamót á
Nesinu endurbætt
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Audi A8 4 2 Quattro
• Ný smurður af Heklu
• Ný skoðaður án athugasemda
• Ný 19“ Toyo heilsársdekk
• Fullkomið viðhald
• Einstakt tækifæri
• Fjórhjóladrifinn
• Stillanleg loftpúðafjöðrun
• 6 þrepa sjálfskipting
• 335 hestöfl (0-100 km 6,3 sek.)
• Álbíll
,
Árgerð 2003
Ekinn aðeins 180 þús.
VERÐ 1.490.000