Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 18

Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 18
18 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnar segir mikinn þunga þessi misserin í málaflokknum hjá seðla- bönkum. Nokkur þemu „Þessu hefur verið skipt upp í nokkur þemu af BIS, Alþjóða- greiðslubankanum í Basel í Sviss. Í fyrsta lagi fjártækni í fjármálaeftirliti og hvernig hægt er að einfalda og efla eftirlit með fjármálamarkaðnum. Þar kemur peningaþvætti, gagnanotkun, markaðssetning og gagnasöfnun við sögu. Næsti vinkill eru næstu kyn- slóðir fjármálainnviða og greiðslu- miðlunar. Þar með talið snýr þetta að hraðari og hagkvæmari millifærslum milli reikninga sem bæði evrópski og bandaríski Seðlabankinn leggja mikla áherslu á, til að lækka kostnað og auka öryggi. Þetta snýr einnig að auðkenningarmálum og greiðslum yf- ir landamæri, sem er mjög mikilvægt mál þegar kemur að því að lækka kostnað í viðskiptum milli landa. Inn- an Evrópu er hægt að millifæra fé á vini og ættingja fyrir lítinn sem engan kostnað, en ef það er t.d. gert á aðila í Bandaríkjunum borgarðu kannski 2-3% gengismun fyrir hverja færslu,“ útskýrir Gunnar. Stafrænt seðlabankafé Þriðja atriðið sem Gunnar nefnir er stafrænt seðlabankafé, bæði til heild- sölu og til almennra nota. „Þarna koma inn bálkakeðjur og seðlabanka- krónur, en mörg slík verkefni eru í gangi hjá seðlabönkum og í samstarfi við Alþjóðagreiðslubankann.“ Opin bankastarfsemi, sbr. tilskip- un ESB um greiðsluþjónustu (PSD2), er fjórða þemað að sögn Gunnars en það snýr að því að þriðji aðili geti nýtt sér samband við við- skiptavini og viðskiptabanka til að veita þjónustu. „Þriðji aðili semur við þig sem einstakling um að sinna fjár- málaþjónustu, greiða reikninga og millifæra fjármuni. Þú gefur þá við- komandi aðgang að reikningum þín- um hjá bankanum. Þá eru þessir að- ilar orðnir eins konar allsherjar fjármálastjórar fyrir þig.“ Fimmti þátturinn er tölvuöryggi en netárásir eru vaxandi vandamál fjármálafyrirtækja og neytenda. Græn fjármál Sjötta atriðið segir Gunnar að séu græn fjármál. „Það eru mörg áhuga- verð verkefni í gangi á því sviði. Í Hong Kong er til dæmis verið að gera tákngreiningu (e. tokenizion), sem er auðkenning á skuldabréfum þannig að skuldabréf á bálkakeðju uppfæri kolefnisspor útgefandans sjálfkrafa og jafnóðum í rauntíma.“ Eins og Gunnar bendir á er farið að nota sambærilega tækni á mynd- listarmarkaði þar sem hægt er að kaupa brot (e. token) af stafrænu listaverki, sem svo gengur kaupum og sölum. „Annað verkefni sem nýsköpunar- miðstöðin í Hong Kong er að gera er að velta fyrir sér hvernig hægt er að tengja saman greiðslukerfi ólíkra þjóða yfir landamæri. Við þekkjum þetta í ESB en þeir eru að hugsa þetta þvert yfir Asíu þar sem er ekki sams konar samstarf fyrir hendi.“ Vinna með einkageiranum Eins og Gunnar útskýrir byrjaði Alþjóðagreiðslubankinn með nýsköp- unarmiðstöðvar sínar árið 2019, og fyrstu miðstöðvarnar voru settar á stofn í Hong Kong, Singapúr og Sviss. „Þetta hefur farið vel af stað. Það hefur í sjálfu sér ekki verið sett mikið fjármagn í verkefnið. Hug- myndin er frekar að laða einkageir- ann að því og sinna ákveðnu frum- kvæðishlutverki seðlabanka. Hlutverk seðlabanka er samt fyrst og fremst á þessu sviði að tryggja öryggi og skilvirkni í greiðslumiðlun hag- kerfisins. Hugmyndin er að láta þetta opinbera hlutverk seðlabankanna mæta lausnum og hugmyndum úr einkageiranum.“ Tvær nýsköpunarmiðstöðvar bætt- ust í hópinn á þessu ári að sögn Gunn- ars. Önnur er hjá Englandsbanka og búið er að tilkynna opnun miðstöðvar í Stokkhólmi í Svíþjóð. „Það er sam- vinnuverkefni Íslands, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Svo stendur til að opna sambærilegar miðstöðar í To- ronto í Kanada, í Frankfurt í Þýska- landi og í París í Frakklandi. Þá er Al- þjóðagreiðslubankinn búinn að skrifa undir samstarfssamning við banda- ríska seðlabankann. Þessar miðstöðv- ar skipta með sér verkum og deila þekkingu. Þetta er mjög áhugaverð hugmynd. Tíminn mun skera úr um hvort þetta verður árangursríkt og leiðir til tækniframfara í bankastarf- semi, en það er vel þess virði að vera með. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir lítinn seðlabanka eins og þann íslenska að eiga í svona samstarfi. Við græðum hlutfallslega meira á sam- starfinu en stóru bankarnir sem geta gert þetta meira á eigin vegum.“ Ræða áherslur Gunnar segir að þessa dagana sé rætt um þær áherslur sem Seðla- banki Íslands hyggist koma með inn í norrænu nýsköpunarmiðstöðina. „Svíar hafa verið mjög framarlega í rafrænu seðlabankafé og það kæmi ekki á óvart að við myndum skoða það betur. Greiðslumiðlun á milli Norður- landanna er svo í skoðun á öðrum vettvangi, sem snýr að því að lækka viðskiptakostnað fyrir atvinnulíf og almenning á milli landa. Það er nokk- uð sem við gætum líka sett á oddinn.“ Svíar munu sjá um rekstur mið- stöðvarinnar sem verður í Stokk- hólmi. Starfsfólk mun koma frá seðla- bönkunum fjórum. „Til að byrja með deilum við einum starfsmanni með Dönum en Svíar sjá um að manna það sem eftir stendur. Tíminn mun leiða í ljós hversu mikinn viðbótarmannafla þarf.“ Efla þekkingu í Seðlabanka Morgunblaðið/Golli Þróun Gunnar segir mikilvægt fyrir lítinn seðlabanka eins og þann íslenska að eiga í samstarfi um fjártækni. - Ýmis verkefni á sviði fjártækni í nýsköpunarmiðstöðvum - Mikill þungi í málaflokknum hjá seðla- bönkum - Skuldabréf uppfæri kolefnisspor í rauntíma - Sambærileg tækni á myndlistarmarkaði Nýsköpun » Alþjóðagreiðslubankinn í Basel í Sviss setti árið 2019 á laggirnar nýsköpunarmiðstöð um áhrif tækniþróunar á störf og ábyrgðarsvið seðlabanka. » Fleiri nýsköpunarmið- stöðvar opnaðar víðs vegar um heiminn. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Innan veggja Seðlabanka Íslands er rekinn fjártæknihópur og málefni fjártækni eru sífellt viðameiri í starfi bankans, sem rekur meðal annars sérstakt þjónustuborð fyrir fjár- tæknifyrirtæki. Gunnar Jak- obsson varaseðla- bankastjóri fjár- málastöðugleika segir í samtali við Morgunblaðið að eitt af hlutverkum SÍ sé að tryggja heilbrigði fjár- málamarkaðar á Íslandi. Hluti af því sé tæknihliðin við greiðslumiðlun og innviðir fjármálamarkaða, þar á meðal málefni fjártækni. Efla samtalið „Fjártæknihópur bankans er hugs- aður til að efla þekkingu innan Seðla- bankans og efla samtalið við kollega okkar í Evrópu og á Norðurlöndum. Við þurfum að fylgjast vel með því hvert stefnir í þessum efnum. Þjón- ustuborðinu er svo ætlað að vera í samtali við aðila á íslenskum markaði. Við sinnum þjónustuveitendum sem eru að koma nýir inn, til dæmis með ýmis smáforrit sem hafa verið að hasla sér völl, en einnig verkferla og annað í sambandi við peningaþvætti og tölvuöryggi m.a.“ Eins og Gunnar útskýrir komi meginhluti regluverks bæði á fjár- málamarkaði og í fjártækni til Íslands frá ESB. „Það þarf að fylgjast vel með því og vinna náið með stjórnvöld- um. Þegar nýjar reglur eru innleidd- ar þarf að tryggja að það sé gert á réttan hátt.“ Gunnar Jakobsson 30. október 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.05 Sterlingspund 177.31 Kanadadalur 104.43 Dönsk króna 20.11 Norsk króna 15.349 Sænsk króna 15.006 Svissn. franki 140.39 Japanskt jen 1.1359 SDR 182.3 Evra 149.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.0079 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt sam- komulag borgarinnar við eiganda lóðarinnar Haukahlíðar 2 á Hlíðar- enda um heimild til að breyta land- notkun þannig að þar rísi hátt í 200 íbúðir en ekki allt að 19.100 m2 af atvinnuhúsnæði ofanjarðar. Fram kemur í greinargerð til borgarráðs að hámarksíbúafjöldi sé ekki skilgreindur en miðað við að íbúðirnar verði að meðaltali 90 til 100 m² megi ætla að 175-195 íbúðir muni geta risið á reitnum. Um er að ræða svonefndan G-reit en þar stóð til að reisa stærsta hótel landsins í herbergjum talið. Reykja- víkurborg á H-reitinn við hliðina en reitirnir eru vestan við nýju íbúa- byggðina á Hlíðarenda (sjá mynd). Þá segir í greinargerðinni að mið- að við fyrirliggjandi tillögu verði um 39 íbúðir, eða fimmta hver íbúð, skil- greindar sem leiguíbúðir, stúdenta- íbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Þá muni Fé- lagsbústaðir eiga kauprétt að níu þessara íbúða á umsömdu verði. Um 10 milljónir á íbúð Viðmælandi Morgunblaðsins sem starfar á fasteignamarkaði áætlaði að lóðaverð á íbúð væri um tíu milljónir króna á umræddum reit. Samkvæmt því gæti lóðarhafi – félagið S8 ehf., félag Jóhanns Hall- dórssonar fjárfestis – selt byggingarrétt fyrir um 200 íbúðir á tæpa tvo milljarða króna. Á móti kemur greiðsla fyrir breytingu á nýtingu byggingarheimilda að fjár- hæð rúmlega 248 milljónir króna og ýmis önnur gjöld, s.s. vegna innviða. Borgin heimilar íbúðir - Jóhann Halldórsson fjárfestir fær leyfi fyrir 195 íbúðum - Umrædd lóð á Hlíðarenda gæti skilað tveimur milljörðum Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftirsótt Fyrirhugað byggingarsvæði við Hlíðarenda í Reykjavík. STUTT « Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 67,6 milljarða króna. Inn- flutningur nam hins vegar 85,9 millj- örðum. Því voru vöruviðskipti við útlönd óhagstæð um 18,4 milljarða í mán- uðinum. Í september 2020 voru þau óhagstæð um 11,6 milljarða og hefur því staðan versnað um 6,8 milljarða milli ára. Litið aftur um tólf mánaða tímabil er vöruskiptajöfnuðurinn nei- kvæður um 207,6 milljarða og er það 55,4 milljörðum óhagstæðara en tólf mánuðina þar á undan. Vöruviðskiptin óhag- stæð um 18,4 milljarða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.