Morgunblaðið - 30.10.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 30.10.2021, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Vandlega klæddir menn í þjónustu rússneska neyðarástandsráðuneytisins sótthreinsa Save- lovsky-brautarstöðina í Moskvu á þriðjudaginn til að draga eftir föngum úr smithættu kórónu- veirunnar. Þennan sama dag greindust 36.446 ný smit í landinu, auk þess sem 1.106 létust af völdum pestarinnar, sem nú hefur krafist tæp- lega 240.000 mannslífa frá upphafi heimsfarald- ursins, og ákváðu stjórnvöld að loka á alla starf- semi, aðra en bráðnauðsynlega, tímabilið 28. október til 7. nóvember. Í dag hefst einnar viku launað frí vinnandi fólks í sóttvarnaskyni. AFP „Mál es vílmögum at vinna erfiði“ Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Fulltrúar nokkurra af stærstu olíu- framleiðendum Bandaríkjanna, þar á meðal Exxon Mobil, Chevron, BP og Shell, komu fyrir þingnefnd í Washington á fimmtudaginn og sátu þar fyrir svörum í sex klukkustundir um raunveruleg umhverfisáhrif vinnslu jarðefnaeldsneytis auk þess sem bornar voru undir fulltrúana grunsemdir um að fyrirtækin hefðu með vitund og vilja veitt almenningi villandi upplýsingar um áhrif starf- seminnar á umhverfið. Það var eftirlits- og umbótanefnd fulltrúadeildar þingsins, sem yfir- heyrði fulltrúa orkuframleiðend- anna, en fundurinn á fimmtudaginn var hluti umfangsmikillar rannsókn- ar á starfsháttum fyrirtækjanna, sem fulltrúar demókrata á banda- ríska þinginu hafa látið í veðri vaka að muni standa yfir að minnsta kosti næsta árið. Færi sig nær hreinni orku „[Orkuframleiðendurnir] hafa um of langt skeið komist undan ábyrgð sinni á sínum þætti í því að færa plánetuna nær stórslysi í loftslags- málum,“ sagði Carolyn B. Maloney nefndarformaður í inngangsorðum sínum áður en fulltrúar fyrirtækj- anna tóku að svara spurningum nefndarinnar og sóru þar af sér allan áburð um ranga upplýsingagjöf og umhverfisspjöll. Þvert á móti kváðu þeir það einmitt stefnu fyrirtækj- anna, að færast nær framleiðslu hreinnar orku og leggja þannig sitt lóð á vogarskál hreinna umhverfis framtíðarinnar. Darren Woods, stjórnarformaður Exxon Mobil, kvað stjórnendur fyrirtækisins hafa gert sér það ljóst fyrir margt löngu, að loftslagsbreyt- ingar væru raunverulegar og benti um leið á að ekki væru nein „auðveld svör“ á boðstólum. „Olía og gas munu áfram verða þarfaþing um ókomna framtíð,“ sagði Woods fyrir nefndinni. Greiðslur til „skuggahópa“ Maloney nefndarformaður lá fulltrúum orkufyrirtækjanna á hálsi fyrir að hafa ekki staðið skil á innan- hússgögnum, sem nefndin hefði þó farið fram á að fá afhent fyrir fund- inn á fimmtudag og átti þar við gögn sem tengdust „greiðslum til skugga- hópa“, almannatengslafyrirtækja og fleiri fyrirtækja auk samskipta milli æðstu stjórnenda fyrirtækjanna þar sem hlutur starfseminnar í loftslags- breytingum var til umræðu. „Ég hef gengið mjög hart eftir því að fá þessi gögn afhent, en olíufyrir- tækin leika þar sama leikinn og þau hafa gert um áratuga skeið þegar loftslagsmál hafa verið til umræðu – beita töfum og hindrunum,“ sagði Maloney, en talsmenn demókrata hafa borið loftslagsrekistefnuna gagnvart olíufyrirtækjunum saman við rannsókn neðri deildar þingsins á tóbaksframleiðendum á tíunda ára- tugnum, sem að lokum skilaði þeirri niðurstöðu, að framleiðendurnir hefðu gert sitt til að dylja hættu- og ávanaeiginleika sígarettunnar. Michael Wirth fulltrúi Chevron kvað það af og frá að fyrirtæki hans hefði vísvitandi slegið ryki í augu al- mennings til að fegra umhverfis- ímynd sína. „Þrátt fyrir að viðhorf okkar gagnvart loftslagsbreytingum hafi tekið stakkaskiptum á löngum tíma, eru allar ásakanir um að Chevron hafi viljandi dreift röngum upplýsingum og blekkt almenning í þessum efnum algjörlega úr lausu lofti gripnar,“ sagði Wirth. Olíufulltrúar báru af sér sakir - Nefnd bandaríska þingsins saumar að framleiðendum jarðefnaeldsneytis - Brigslað um að hafa gef- ið rangar upplýsingar um umhverfisáhrif - Líkt við mál tóbaksframleiðendanna á tíunda áratugnum AFP Edith Stærsti olíuborpallur Chevr- on undan strönd Suður-Kaliforníu. Margt norðlenskt hjartað í Noregi sló vafalítið hrað- ar í gær þegar nýbakaður fjár- málaráðherra, Trygve Slagsvold Vedum, tilkynnti að norðurfylkinu Troms og Finn- mark væri nú heimilt að fá skilnað og verða aftur tvö fylki, það er Troms annars vegar og svo Finn- mark, en fylkjasameiningarnar 1. janúar 2020, þegar fylkjum landsins var fækkað í 11, hafa mælst æði mis- jafnlega fyrir og víðar heyrst urgur, svo sem frá Viken, áður Akershus, Buskerud og Østfold, þar sem marg- ur vill gömlu fylkin aftur. Þeim var ekki skap- að nema að skilja Trygve Slagsvold Vedum ráðherra. NOREGUR Þrátt fyrir mishávær mótmæli og óánægjuraddir mega Evrópubúar reikna með því að kórónuvottorðin rafrænu verði hluti af félagslegum raunveruleika álfunnar að minnsta kosti fyrstu vetrarmánuðina, með kröfum um framvísun til að komast inn á söfn og veitingastaði víða. Ítalir þurfa vottorðið til að komast inn á vinnustaði og búa Austurrík- ismenn sig undir hið sama, en í Frakklandi er passe sanitaire löngu orðinn hluti af lífinu og framvísa Frakkar honum auk annars áður en þeir fara inn í lestir. Vottorðin áfram hluti lífsins í vetur EVRÓPA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.