Morgunblaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 H jörvar Steinn Grétarsson er meðal 108 keppenda sem taka þátt í FIDE Grand Swiss-mótinu sem hófst í Riga í Lettlandi á mið- vikudaginn. Hjörvar og fáeinir aðrir komust inn í mótið eftir að nokkrir keppendur hættu við þátttöku vegna Covid-19-faraldursins. Sá nafntog- aðasti í þeim hópi var bandaríski stórmeistarinn Hikaru Nakamura. Þetta er langsterkasta mót sem Hjörvar hefur tekið þátt í. Verður gaman að fylgjast með frammistöðu hans í Riga en stigahæstir keppenda eru Caruana, Aronjan, Firouzja og Vachier-Lagrave. Stigalægsti kepp- andinn er með 2.467 elo-stig. Tefldar verða 11 umferðir og er keppt um tvö sæti í áskorendakeppninni sem fram fer á næsta ári. Þess má geta að REK/EM-mót einstaklinga, sem fram fór á Hotel Natura á dögunum, gaf 23 sæti. Mótshaldið er á undan- þágu frá stjórnvöldum en 21. októ- ber sl. gengu í gildi afar strangar sóttvarnareglur í Lettlandi en í gildi er útgöngubann í 10 klst. hvern sól- arhring. Hjörvar gerði jafntefli við Úkra- ínumanninn Andrei Volotkin í 1. um- ferð en tapaði fyrir Norðmanninum Aryan Tari í 2. umferð. Í 3. umferð, sem fór fram í gær, átti Hjörvar að tefla með svart við Amin Tabatabaei frá Íran. Eftir fyrstu tvær umferð- irnar voru þrír skákmenn búnir að vinna báðar skákir sínar: Alireza Firouzsja frá Íran, Rússinn Alex- andr Predke og Ivan Saric frá Kró- atíu. 42 skákmenn voru með 1½ vinning. Vignir Vatnar iðinn við kolann Vignir Vatnar Stefánsson varð í 3. sæti á afmælismóti Örebro- skákklúbbsins í Kaupmannahöfn sem lauk um síðustu helgi. Vignir hlaut sex vinninga af níu mögulegum og varð einn í 3. sæti en Vladimir Hamievici frá Moldóvu varð efstur með 7½ vinning. Vignir gerði stuttan stans hér heima, tefldi eina skák í 2. umferð á hinu svonefnda Yfir 2.000 elo-móti TR, boðaði ½ vinnings yfir- setu í næstu umferð og hélt í bítið til Uppsala í Svíþjóð til að tefla þar á opnu móti skipuðu nokkrum af bestu ungu skákmönnum Norður- landanna, þ.á m. Hilmi Frey Heim- issyni og Alexander Oliver Mai. Eins og sakir standa beinist at- hyglin að Vigni og Hjörvari og ekki úr vegi að rifja upp viðureign þeirra frá Íslandsmótinu í mars sl. Hún var tekin til meðferðar á vefsíðu Chess- base á dögunum: Skákþing Íslands 2021 Vignir Vatnar Stefánsson – Hjörvar Steinn Grétarsson Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 a6 Óvenjulegur leikur sem Magnús Carlsen hefur gert vinsælan. 5. c5 b6 6. cxb6 cxb6 7. Bf4 Bd6 8. Bxd6 Dxd6 9. e3 Rbd7 10. Bd3 Bb7 11. Hc1 0-0 12. 0-0 b5 13. Rd2 e5 14. dxe5 Rxe5 15. Rf3 b4 16. Re2 Rxf3+ 17. gxf3 Spurning er hvað best sé að að gera við hinni stöðulegu hótun 18. Rd4. Hjörvar fann svarið. 18. … d4! Lætur peð af hendi en opnar fyrir biskupinn. 18. Rxd4 Hfe8 19. Be2 Rd5 20. Kh1 Had8 21. Hg1 Df6 22. Hg4 Vigni hefur varla geðjast að 22. Hg3 sem má svara með 22. … Rf4! t.d. 23. Bf1 Re6! o.s.frv. 22. … h5 23. He4 Hxe4 24. fxe4 24. … Dxf2! 25. Rf3 Eða 25. exd5 Hxd5! og vinnur. Meira viðnám fólst í 25. Rc6 þó að svartur eigi rakinn vinning með 25. … Bxc6 26. Hxc6 Rxe3! 27. Dxd8+ Kh7 28. Dg5 De1+! 29. Dg1 Dxe2 30. h3 Df3+ 31. Kh2 Df4+! o.s.frv. 25. … Dxe3 26. Hc4 He8 27. exd5 Dxe2 28. Dxe2 Hxe2 29. Hd4 Hf2 30. Hd3 Hxf3! – og hvítur gafst upp. Sterkasta mót Hjörvars Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða FIDE Þungt hugsi Hjörvar Steinn við taflið í Riga. Aldraður arkitekt með aldursfordóma hefur nú komið fram fyrir skjöldu fyrir hönd „borgarinnar“, lesist Reykjavík- urborg, og forsmáð aldurshóp sinn og fólk þaðan af eldra sem tók stóran þátt í að byggja upp frá- bært samfélag í því sem „borgin“ kallar nú Háaleiti og Bústaði. „Borgin“ hélt kynningarfund um fyrirhugaðar breytingar í hverfinu þar sem meðal annars er gert ráð fyrir tveimur nýjum íbúðarhúsa- lengjum sitthvorumegin við Bú- staðaveg og lækka í raun umferð- arhraða um Bústaðaveg um það svæði niður í 15 km á klukkustund. Gera það með því að setja upp „torg“ norðan megin við Grímsbæ þar sem hraðinn verður 15 km á klukkustund, sem þýðir að það verður umferðarhraðinn í götunni og mun hefta verulega eðlilegt flæði til og frá íbúðarhverfunum í Fossvogi, Bústaðahverfi og Smá- íbúðahverfinu. Bendi á að gönguleið aldraðrar konu búandi neðst í Foss- vogi sem þarf göngugrind að borg- arlínu er um það bil 2,4 kílómetrar. Á fundinum upplifði ég stemn- ingu sem ég hef ekki upplifað áður á minni lífstíð þrátt fyrir að hafa verið viðloðandi meðal annars mál- efni aldraðra í áratugi sem fram- kvæmdastjóri heilbrigðis-, skóla- og félagsmála í sveitarfélagi sem tók einnig að sér þjónustu við fatlaða með þjónustusamningi við ríkið, fulltrúi í svæðisstjórn fatlaðra á Austurlandi og sem varaformaður velferðarráðs Reykjavíkur. Þar fékk ég oftar en ekki fyrirlestur skjólstæðinga sem vildu á stundum réttilega betri þjónustu. Stemningin var heilög reiði og ég horfði á konu, sem ég veit nú að er rúmlega áttræð, titrandi af reiði yf- ir fyrirliggjandi tillögum, en ekki síður því viðhorfi sem sumir, en ekki allir, embætt- ismenn og kjörnir fulltrúar viðhöfðu gagnvart þeim og skoðunum þeirra. Og réttmæt reiði gagnvart formanni borgarráðs, sem gekk hart fram í að verja fyrirliggjandi tillögur nánast á dóna- legan hátt gagnvart þeim eldri borgurum hverfisins sem dirfðust að tjá sig. Nú ætti kjarni málsins að vera heilbrigð umræða um fyrirliggj- andi tillögur sem liggja frammi og ég hef rakið hér að framan. Eðli- lega eru um þær tillögur skiptar skoðanir. Í eðlilegu samfélagi væri sú umræða tekin áfram og fundin viðunandi lausn á heilbrigðan máta. En það er ekki í boði hjá aldr- aða arkitektinum með aldurs- fordómana sem segist vera „borg- in“. Því hann segir að „borgin“ ætli ekki að hlusta á fólk sem er 60+ eins og hann sjálfur, heldur halda áfram að „telja“ eins og hjá Stalín, þar til „rétt“ niðurstaða næst. Væntanlega með stuðningi formanns borgarráðs sem studdi svo vel við bakið á aldraða arki- tektinum í orrahríð gagnvart eldri borgurum og fleirum í Réttó um daginn. Er þetta virkilega sú stjórnsýsla sem við viljum, óháð afstöðu okkar til þeirra tillagna sem liggja fyrir? Aldraður arkitekt með aldursfordóma Eftir Hall Magnússon » Formaður borgar- ráðs varði á dónaleg- an hátt vafasamar fyr- irliggjandi tillögur gegn andmælum þeirra eldri borgara hverfisins sem dirfðust að tjá sig. Hallur Magnússon Höfundur er fyrrverandi varaborg- arfulltrúi og fyrrverandi embætt- ismaður hjá ríki og sveitarfélagi. hallur@spesia.no Sigurður Samúelsson fædd- ist 30. október 1911 á Bíldudal. Foreldrar hans voru hjónin Samúel Pálsson, f. 1878, d. 1946, skósmiður og kaup- maður, og Guðný Árnadóttir, f. 1890, d. 1960, húsfreyja. Sigurður var læknir og sér- fræðingur í hjartasjúkdómum í Reykjavík 1947-1968 og var prófessor í lyflæknisfræði við HÍ og yfirlæknir við Landspít- alann frá 1955-1982. Sigurður stofnaði Hjarta- vernd, samtök hjarta- og æða- verndarfélaga á Íslandi, 1966, og formaður framkvæmda- stjórnar þeirra til 1992. Hann stofnaði m.a. Gigtsjúkdóma- félag Íslands 1963 og var for- maður þess til 1973. Formaður læknafélagsins Eirar frá stofn- un þess 1948-50, sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur 1950-53. Í læknaráði Land- spítalans 1955-82. Stofnandi Lyflæknafélags Íslands 1957, og formaður þess til 1961. Hann sat í lyfjaskrárnefnd frá stofnun hennar 1963-76. Sig- urður var formaður Laxár- félagsins 1968-85. Fyrri kona Sigurðar var Lovísa Möller, f. 1914, d. 1966. Þau eignuðust þrjú börn. Seinni kona Sigurðar var Hólmfríður Stefánsdóttir, f. 1928, d. 2018. Sigurður lést 26.1. 2009. Merkir Íslendingar Sigurður Samúelsson Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Nýskráður 01/2021, ekinn 7 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69 km drægni), sjálfskiptur. Night pack (Næturpakki) - AMG line innan og utan - Edition pakki innan og utan - Leðurklætt mælaborð og hurðaspjöld. Raðnúmer 253247 M.BENZ A 250E AMG LINE EDITION AUDI A3 40 TFSIE NEW Nýskráður 11/2020, ekinn aðeins, 4 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid), sjálfskiptur. Stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi, S-line, 18“ álfelgur, S-line sportsæti og stýri, NMI Navigation plus MMI touch. Raðnúmer 253126 0 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Kíktu við, hringd eða sendu okkur skilaboð! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson u SKODA SUPERB IV SPORTLINE COMBI Nýskráður 01/2020, ekinn 13 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid), sjálfskiptur - Canton hljóðkerfið - Stóri skjárinn - Bakkmyndavél - Glerþak. Þessi er hreinlega með öllu! Raðnúmer 253010 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.