Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 ✝ Júlíana Kristín Jónsdóttir (Stella) fæddist 12. september 1928 í Feitsdal í Arn- arfirði. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eyri 20. október 2021. Foreldrar Stellu voru Jón Magnússon skó- smiður á Flateyri, f. 22.4. 1895, d. 29.4. 1957, og Elín María Jónsdóttir húsmóðir, f. 24.12. 1903, d. 16.11. 1977. Systkini Stellu: Björg, f. 2.8. 1924, d. 2.10. 1998, maki Óskar Ketilsson, lést 11.5. 1993; Ásta, f. 5.7. 1926, d. 27.8. 2013, maki Sigurmundur Þóroddsson, d. 15.4. 1975; Guðjón, f. 1.8. 1927, d. 29.12. 1992, maki Jóhanna B. Snæfeld, d. 5.9. 2014. Hinn 17.4. 1949 giftist Stella Guðna Alberti Guðnasyni frá Botni í Súgandafirði, f. 3.4. 1928, d. 23.1. 2018. Börn: 1) Birgir Davíðsson, f. 26.5. 1946, d. 1. október 2005, og óskírð, f. 26.5. 1946, d. samdægurs. Birgir kvæntist Ingu Jónsdóttur, börn: Selma Gísladóttir, f. 7.8. 1969, gift Gunnari Kristjánssyni, börn 1999. 3) Guðni Albert Guðnason, f. 6.9. 1949, d. 17.4. 1950 4) Rósa María Guðnadóttir, f. 15.2. 1952, d. 13.9. 2009, gift Kristjáni Stef- ánssyni, f. 2.6. 1950, d. 29.6. 1994. Saman áttu þau dæturnar Stellu Guðnýju, f. 22.5. 1974, frá- skilin, dætur: Ronja Rós, f. 19.6. 2009, og Stephanie Mist, f. 10.10. 2012, og Stefaníu, f. 5.9. 1977, sambýlismaður Gary Orri Tay- lor. 5) Alda Sigríður Guðnadótt- ir, f. 2.5. 1960, var gift Kristjáni B. Snorrasyni, saman eiga þau börnin Margréti Helgu, f. 17.2. 1983, gift Cédric H. Roserens, fyrir á Margrét dótturina Arn- dísi Öldu, f. 30.12. 2007, Guðna Albert, f. 2.7. 1984, í sambúð með Hildi Tryggvadóttur, fyrir á Guðni börnin Söru Rós, f. 1.3. 2013, og Brynjar Loga, f. 27.8. 2015, barnsmóðir Jóhanna Lind Brynjólfsdóttir, og Bjarka, f. 21.12. 1989, í sambúð með Lillian A. Rading, barn þeirra Júlíana Siv, f. 21.1. 2021. Alda er í sam- búð með Aðalgeiri Finnssyni. Stella bjó alla sína búskap- artíð á Flateyri uns hún fluttist til Ísafjarðar fyrir aldurs sakir. Stella var húsmóðir ásamt því að gegna ýmsum störfum, lengst af sem aðstoðarmaður á sjúkra- skýlinu á Flateyri og skrif- stofumaður hjá Kaupfélagi Ön- firðinga. Útför Stellu fer fram frá Flat- eyrarkirkju í dag, 30. október 2021, klukkan 11. Eydís, f. 14.8. 2004, og Birgitta, f. 11.10. 2005. Sigurjón Birgisson, f. 9.5. 1972, kvæntur Sig- ríði M. Atladóttur, börn: Sæunn Júlía, f. 17.4. 1998, Birgir Freyr, f. 26.9. 2005, og Atli Hrafn, f. 3.2. 2007. María Birg- isdóttir, f. 31.8. 1977, gift Ásmundi Gíslasyni, börn Sunna Móey, f. 17.8. 2002, Inga Dís, f. 18.1. 2006, og Eldey Lilja, f. 16.2. 2013. 2) Guðbergur Guðnason, f. 22.10. 1947, fv. eiginkona Jóna Her- bertsdóttir, saman eiga þau dæt- urnar Ástu Maríu, f. 18.3. 1983, gift Brynjari Steinarssyni, börn: Karlotta Karitas, f. 17.6. 2009, og Berglind Sóllilja, f. 29.4. 2021, og Margréti Ósk, f. 20.5. 1985, fv. eiginmaður Númi Aðalbjörns- son, saman eiga þau Herbert Snæ, f. 1.12. 2007, Alexander Berg, f. 28.12. 2016, og Hugrúnu Örnu, f. 23.11. 2019. Fyrir átti hann dótturina Írisi Ósk, f. 22.8. 1972, gift Ólafi Jakobssyni, börn: Jakob, f. 28.3. 1994, Helgi, f. 1.8. 1995, og Elísabet Alda, f. 2.11. Yndislega mamma mín er borin til grafar í dag. Hún upplifði tím- ana tvenna eins og margir af hennar kynslóð. Hún fæddist í Feitsdal í Arnarfirði og fluttist fljótlega til Bíldudals og ólst þar upp til fimm ára aldurs en þá flutt- ist fjölskyldan í Önundarfjörðinn og lengst af bjó hún á Flateyri. Nú þegar komið er að leiðarlokum er margs að minnast og mikið þakk- læti er mér efst í huga. Hún var einstök kona og móðir sem gaf mér og mínu fólki ómælda umhyggju og ást. Hún var alltaf til staðar, ekki síst þegar gaf á bátinn, þá sýndi hún styrk og hafði áhrif til góðs með nær- veru sinni og félagsskap. Mamma er dáin 93 ára gömul. Það verður seint sagt að lífshlaup hennar hafi verið einfalt og átakalítið; mátti sjá á bak fjórum af sex börnum sínum sem hún fæddi í þennan heim, en nú er hún búin að öðlast langþráða, kærkomna hvíld í faðmi látinna ástvina. Smekkleg var hún og vandvirk í því sem hún tók sér fyrir hendur og alltaf vel tilhöfð og fram á síð- asta dag þegar hún þurfti orðið mikla aðstoð við daglegar þarfir hafði hún alltaf hugsun á að spyrja hvort pilsið væri ekki örugglega niður að aftan og ekki vildi hún hafa salernispappírinn í eftir- dragi. Sérstakt lag hafði hún á börnum og hændi þau gjarnan að sér. Barnabörnin fengu að njóta þess, ekki síst stelpurnar; á með- an hún fléttaði á þeim hárið og greiddi runnu upp úr henni heilu og hálfu sögurnar, heimatilbúnar, sem þau muna enn þann dag í dag og kunna að segja frá. Mamma fór ung kona ásamt systur sinni til Reykjavíkur til að vinna fyrir sér sem vinnukona á góðu heimili. Fljótlega sneri hún aftur til Flateyrar og vann þar við ýmis störf, fyrst og fremst sem góð húsmóðir, einnig fékkst hún við afgreiðslustörf, aðstoðarmað- ur á sjúkraskýlinu á Flateyri og skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Önfirðinga. Árið 1948 duttu þau foreldrar mínir í lukkupottinn þegar þau hittust á dansleik á Flateyri og pabbi bauð henni upp í dans sem þau dönsuðu saman allt til ævi- loka. Þau voru virk í samfélaginu á Flateyri utan heimilis, voru um árabil umboðsmenn fyrir flug- félagið Vængi, síðar Arnarflug, og höfðu einnig umsjón með fé- lagsheimilinu á Flateyri þar sem haldnir voru dansleikir og bíó. Hún tók þátt í ýmsum félagsstörf- um í gegnum tíðina; gegndi stjórnarstörfum fyrir kvenfélagið Brynju, oft steig hún á svið með leikfélagi Flateyrar sem síðan gerði hana að heiðursfélaga, sóknarnefnd Flateyrar naut krafta hennar, hún var formaður slysavarnadeildarinnar Sæljóss um skeið. Slysavarnafélag Ís- lands sæmdi hana gullmerki fé- lagsins á sínum tíma fyrir störf að slysavarna- og björgunarmálum. Björgunarbátur sem björgunar- sveitin Sæbjörg tók í notkun 2018 fékk nafnið Stella henni til heið- urs og heitir húsnæði sveitarinn- ar Guðnabúð sem skírð var í höf- uðið á pabba og efast ég ekki um að Stella er vel geymd í Guðna- búð. Guð geymi elsku mömmu, verndi og vaki yfir henni. Hún lif- ir áfram í hjarta mínu. Alda Sigríður Guðnadóttir. Elsku amma mín, takk fyrir samfylgdina í gegnum lífið, nú ertu búin að hitta prinsinn þinn aftur sem hefur beðið eftir að taka á móti þér í tæp fjögur ár. Einnig hefur þú nú sameinast þeim fjórum börnum sem þú hef- ur þurft að kveðja. Stella amma var glæsileg kona og í mínum augum var hún Holly- wood-stjarna; hún elskaði bíó- myndir og lék stórleik í leikhúsi vestur á Flateyri. Amma vissi allt um alla helstu leikara heimsins og fylgdist náið með aðalsápuóper- unum sem voru stór hluti af henn- ar lífi. Ég man einu sinni að við vorum að koma í heimsókn á Flat- eyri og ég var búin að hringja og láta vita af áætluðum komutíma. Þegar við komum voru Bold and the beautiful að byrja, vídeóið var tilbúið á upptöku og afi setti tækið í gang og svo var slökkt á sjón- varpinu og gestunum sinnt, en amma horfði svo á sinn þátt þegar við vorum farin að sofa. Ég man ekki eftir að amma hafi nokkurn tímann farið út í búð án þess að setja á sig varalit og efast ég um að hún hafi farið út á snúru án þess að hafa sig til. Þeg- ar amma tók á móti gestum var fínasta stellið alltaf tekið fram, en amma sat til hliðar í eldhúsinu á kolli og drakk kaffi úr glasi, þetta skildi ég aldrei enda fannst mér ekki sæma svona hefðarkonu að drekka kaffi úr glasi þegar gest- irnir drukku úr fínum postulíns- bollum. Elsku amma við hittumst síð- ar, takk fyrir samfylgdina. Selma. Elsku Stella amma mín. Nú ertu farin héðan, þú ert farin til að hitta afa á ný og börnin ykkar sem fóru á undan ykkur. Ég veit að þú ert hvíldinni fegin, þú ert búin að upplifa og reyna svo margt, bæði margt svo gott og dásamlegt, en líka svo margt sem er ótrúlega erfitt. Saga mín og þín sem barna- barn og amma er um margt óvenjuleg. Við kynntumst fyrst þegar ég var orðin fullorðin. Ég var 17 ára þegar ég fékk að vita að ég ætti blóðföður sem er ekki sá pabbi sem ól mig upp. Ég fékk líka að vita að ég ætti ömmu og afa á Flateyri og þau væru ynd- isleg, bæði tvö. Það liðu 10 ár þangað til ég tók af skarið og ákvað að nú vildi ég kynnast blóð- föður mínum og ömmu minni og afa. En mín fyrstu kynni af þér, elsku amma mín, sem ég man eft- ir, eru frá desember 1983. Ég hafði dvalið hjá móðursystur minni í Önundarfirði fyrir jólin, og fékk far með mjólkurbílnum frá Flateyri til Ísafjarðar. Veðrið Júlíana Kristín Jónsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SKÚLI LÝÐSSON, bóndi á Keldum á Rangárvöllum, lést á Hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu 19. október. Útförin fer fram frá Keldnakirkju laugardaginn 6. nóvember klukkan 14. Drífa Hjartardóttir Lýður Skúlason Una Guðlaugsdóttir Hjörtur Skúlason Ragna Sól V. Steinmüller Skúli Skúlason Melkorka Mjöll Kristinsdóttir Viktor Berg, Drífa, Guðmundur, Jón Ari, Viktoría, Eyjólfur Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, SNORRI KRISTINN ÞÓRÐARSON, Ársölum 1, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 20. október. Útförin fer fram mánudaginn 1. nóvember frá Lindakirkju klukkan 13. Brynja Böðvarsdóttir Böðvar Snorrason Kristín V. Jónsdóttir Þórður Snorrason Herdís Sigurðardóttir Ingibjörg Halldóra Snorrad. Páll Ólafsson Sigríður Brynja Snorradóttir Sveinn Daníel Arnarson Jóna Maggý Þórðardóttir Haukur Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA SESSELJA FRÍMANNSDÓTTIR, áður kennari á Hvolsvelli og í Hveragerði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 23. október. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 3. nóvember klukkan 13. Matthías, Ragnheiður, Málfríður Klara og Kolbrún Kristiansen tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓSTEINSDÓTTIR, Núpalind 6, Kópavogi, sem lést 9. október, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. nóvember klukkan 13. Ingibjörg Björgvinsdóttir Hörður Ingi Jóhannsson Brynja Björgvinsdóttir Vilbergur Magni Óskarsson Svandís B. Björgvinsdóttir Þórir Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, vinur og bróðir, ÖRN KRISTINSSON mjólkurfræðingur, Hjallalundi 20, Akureyri, lést á heimili sínu 21. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Andri H. Arnarson Drífa S. Sveinsdóttir Hafþór Ingi Lind Marija Lind Jóakim Lind, Elísa Anna Lind Ragnheiður Tryggvadóttir Árni, Þórdís, Kristinn, Svanur og fjölskyldur Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS SCHEVING ARNFINNSSON múrarameistari, áður Vesturgötu 155, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða laugardaginn 23. október. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 4. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða. Athöfninni verður einnig streymt af vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Ingunn Hjördís Jónasdóttir Magnea Sigríður Jónasdóttir Ragnheiður Jónasdóttir Eiríkur Þór Eiríksson Ingunn Dögg Eiríksdóttir Jón Ingi Þórðarson Jónas Kári Eiríksson Rakel Rósa Þorsteinsdóttir Ilmur, Eldon og Ragnheiður Marey Elsku besta mamma mín, tengdamamma, dóttir og amma, ANNA ÞÓRDÍS OLGEIRSDÓTTIR Akranesi, lést á hjúkrunarheimilinu Höfða þriðjudaginn 19. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 2. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Kristín Margrét Gísladóttir Júlíus Heiðarsson Arndís Daðadóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SONJA GUNNARS KAMILLUDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 13. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. nóvember klukkan 13. Innilegar þakkir til starfsfólks á Asparhlíð fyrir hlýhug og umhyggju í hennar garð. Guðrún Friðjónsdóttir Aðalsteinn Árnason Gunnar Jónsson Sigrún Gunnarsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir Auðun Benediktsson Sigtryggur Ragnarsson Kamilla Ragnarsdóttir Ragnar Þór Björnsson Hermann Lýður Ragnarsson Elín Björg Ragnarsdóttir Borgar Ragnarsson Hulda Katrín Hersteinsdóttir ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.