Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 29

Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 29
var vont þennan dag, og þess vegna seinkaði bílfarinu. Á með- an fékk ég að bíða á Kaupfélags- skrifstofunni á Flateyri, þar sem móðursystir mín vann, í heilan dag. Þetta þótti mér alveg stór- kostlegt. Ég man að ég lá á mag- anum á gólfinu og fékk að leika mér með prentvél og kalkipappír og stimpla. Það sem gerði þennan draum minn um að vera skrifstofustúlka svo sérstakan þarna varst þú amma. Þú vannst líka á Kaup- félagsskrifstofunni. Ég vissi ekki hver þú varst, en þú vissir að ég væri barnabarn þitt. Ég man svo vel eftir vinalegu konunni sem horfði á mig í heilan dag og gat eiginlega ekki sinnt starfi sínu, því það var eitthvað annað sem átti huga hennar. Ég hef oft síðan reynt að setja mig í þín spor. Þú hafðir barnabarn þitt hjá þér í heilan dag án þess að geta leyft þér að vera amma barnsins. Ég átti dásamlega æsku og dásamlega fjölskyldu. Ég vissi ekki að mig vantaði neitt. Það var fyrst þegar ég kynntist þér, elsku amma, að ég vissi hvað mig hafði vantað. Mig hafði vantað að vera lík einhverjum, eins mikið og mér finnst við tvær vera líkar. Að upp- lifa að ég og amma höfum átt sömu drauma, ekki að vinna á kaupfélagsskrifstofu heldur að vera leikkonur! Og allt sem því fylgir. Við tvær hefðum sómt okkur vel á sviði saman og hneigt okkur fyrir klappandi áhorfend- um. Mig vantaði líka að vera lík einhverjum í útliti, og þegar ég hitti þig amma, gat ég ekki annað en hlakkað til að eldast. Ég sé al- veg að ég sæki svo margt í þig, bæði útlit, manngerð og upplag. Flott hár, naglalakk og svolítið glimmer er mikilvægt fyrir okkur báðar. En ég flutti til Danmerkur skömmu eftir að við kynntumst, svo samverustundirnar voru allt- of fáar. En þær stundir sem við áttum með ykkur afa eru okkur ómetanlegar. Þið voruð frábært par, samheldin og augljóslega enn þá skotin og ástfangin. Núna þegar þið eruð bæði farin héðan finn ég aftur fyrir einhverju sem ég vissi ekki að mig vantaði. Ég sakna þess núna að hafa ekki þekkt ykkur alla mína ævi. Að hafa verið lítil stelpa hjá afa og ömmu. Með hjartans þökk, ástar- og saknaðarkveðja til þín og afa. Íris Ósk Oddbjörnsdóttir. Elsku Stella móðursystir mín hefur kvatt okkur. Mamma Björg bjó undir Eyjafjöllum og Stella á Flateyri og samgangur ekki tíð- ur. Oftar kom Stella suður en mamma vestur. Ég fór þó með mömmu á Flat- eyri þegar ég var 11 ára og var um vikutíma hjá henni og Guðna. Mér fannst ég hafa lítið fyrir stafni en Stella sá það og fann mér verkefni, að mála grindverk sem ég veit nú ekki hvort þurfti að mála, en ég var sæll og glaður með það. Ég kom svo við 2003 hjá þeim Stellu og Guðna, og þá hafði hún á orði að ég þyrfti nú að fara að ná mér í konu. Mér fannst því vænt um það að fá að hitta hana á Eyri með konu og börnum þegar við fórum vest- ur fjölskyldan 2019. Hún var dugleg að hringja í okkur systkinin hver jól og sýna þannig elsku og umhyggju fyrir sínum. Ég þakka samfylgdina og votta börnum, barnabörnum og fjölskyldum þeirra innilega sam- úð. Minningin um elskulega frænku lifir. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fyrir hönd systkina, Steinar Kristján Óskarsson. Nú hefur heiðurskonan Júlíana Jónsdóttir – eða Stella eins og hún jafnan var nefnd – kvatt fjöl- skyldu og okkur samferðafólkið sitt. Allt frá bernskuárum mínum hefur Stella og fjölskylda hennar verið inni í myndinni sem ég á af fólkinu á Flateyri og mannlífinu þar. Þar var Stella þó ekki fædd, en hún sagði mér oftar en einu sinni frá komu fjölskyldunnar til Flateyrar þegar hún var barn að aldri: Lítill fiskibátur lætur úr höfn á Bíldudal og er ferðinni heitið til Flateyrar. Það eru hjónin María Jónsdóttir og Jón Magnússon með börn sín og búslóð sem ætla að freista gæfunnar á nýjum slóð- um. Þótt siglingin sé ekki ýkja löng á fjölskyldan erfitt með að verjast ágjöfinni. Þau koma þreytt og blaut á land og halda til þess staðar þar sem þau höfðu leigt herbergi og aðstöðu meðan beðið var eftir íverustað til fram- búðar. Stella er vafin inn í hlý ull- arteppi í stað blautu fatanna og allt varð svo miklu betra; nýr tími í lífi fjölskyldunnar að hefjast. Endurtekning minninga Stellu um komuna var líklega vegna þess að hún vissi að hendurnar sem vöfðu hana í hlýja teppið voru hendur sem ég þekkti betur en flestar í minni barnæsku. Fyrsta heimili Stellu á Flateyri var nefnilega hjá Guðrúnu ömmu minni og Ástríði systur hennar í Litla-býli á Sólbakka. Frá því ég fór að muna eftir mér í Litla-býli, sem þá hafði verið flutt niður á eyrina, bjó fjölskylda Stellu á Eyrarvegi 5. Jón faðir hennar auk starfa sinna traustur meðhjálpari í kirkjunni til margra ára. Maríu móður Stellu kynntist ég vel í frystihúsi Ísfells. Mér fannst ég detta í lukkupottinn í hvert sinn er ég fékk að vinna á borði með Maríu því gáturnar sem hún kunni, vísurnar og gamanmálin styttu svo mjög stundirnar í ann- ars tilbreytingasnauðri vinnunni, blautum og oft köldum vinnslu- salnum. Um tíma bjuggu Stella og öll systkini hennar á eyrinni með sín- ar fjölskyldur. Stella tók virkan þátt í félagsstörfum, meðal ann- ars í kvenfélaginu, slysavarna- deildinni og leikfélaginu. Þrjú systkinanna byggðu saman húsið á Hrannargötu 3 sem nú er Drafnargata 4. Síðar byggðu þær systur Stella og Ásta ásamt eig- inmönnum sínum, Guðna og Sig- urmundi, húsin við Eyrarveg 7 og 9. Í hið síðarnefnda fluttist móðir mín, María Jóhannsdóttir, árið 1977 og varð þá ekki bara næsta nágrannakona Stellu og Guðna heldur líka með árunum góð vin- kona. Þegar ég kom á æskustöðv- arnar á ný fyrir 30 árum átti ég því láni að fagna að kynnast Stellu og Guðna nánar sem persónum. Samskipti okkar urðu margvísleg og ævinlega góð og gefandi. Ég hafði mikla samúð með þeim hjónum þegar ljóst var að draum- ur þeirra um að geta í ellinni flutt sig yfir götuna og fengið skjól á öldrunarheimilinu Sólborg myndi ekki rætast, en heimilið var lagt niður 2013. Ég saknaði þeirra mjög er þau þurftu að flytjast brott af eyrinni og kveðja fjörðinn sem myndað hafði umgjörðina um líf þeirra og starf og þau unnu svo mjög. Að leiðarlokum þakka ég ljúfar stundir á heimilum okkar og sam- fylgdina að öðru leyti. Fjölskyld- unni votta ég innilega samúð. Jóhanna Kristjánsdóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 Elsku yndislega mamma okkar er fallin frá eftir erfiða baráttu við krabbamein. Það var svo ólýsan- lega sárt að kveðja þig, að vita að það væri komið að kveðjustund- inni sem enginn vill nokkru sinni upplifa en á sama tíma var svo dýrmætt að geta verið til staðar og að fá að halda í heita hönd þína síðasta spölinn. Þú sem gafst okkur lífið og komst okkur í þennan heim þó svo heilsa þín hafi brugðist og þú hafir misst okkur þegar við vorum börn, þá varstu ávallt með okkur. Fjarri okkur í nokkur ár en gafst aldrei upp. Hlýir straumar frá þér skil- uðu sér alltaf á einn eða annan hátt í formi sem var ósýnilegt en áþreifanlegt. Þú varst trúuð og það hefur eflaust hjálpað þér í gegnum tíðina. Það sem ein- kenndi þig einna helst var sterk- ur karakter, góður húmor, smit- andi hlátur og seigla til að halda áfram. Þú hafðir glaða lund og varðst alltaf fyrri til að slá á létta strengi þegar við hittumst, sagðir eitthvað fyndið og þar sem við erfðum þinn góða húmor (algjör- lega hlutlaust mat okkar) þá fékkstu okkur alltaf til að hlæja í byrjun heimsóknar. Þessi eigin- leiki kom þér býsna langt og hlý nærvera þín umvafði svo húmor- inn. Að geta hringt í fólk og feng- ið það strax til að hlæja getur ekki annað en verið góður grunn- ur fyrir samtalið. Við fundum fyr- ir ást þinni og umhyggju alla okk- ar tíð, þú varst ætíð tilbúin að rétta hjálparhönd ef eitthvað bjátaði á og þú hreinlega dýrk- aðir barnabörnin þín. Þér var mjög umhugað um að líta vel út um hárið eins og þú sagðir svo oft og straukst því alltaf á eftir- minnilegan hátt, sama hvernig það var. Þú sagðir svo oft „lít ég ekki vel út?“ og svo fylgdi í kjöl- farið beinhörð staðhæfing „já það segja það allir“. Þetta var svo ein- lægt hjá þér að það gat ekki ann- að en fengið mann til þess að brosa og finnast það líka. Það Guðrún Þóranna Ingólfsdóttir ✝ Guðrún Þór- anna Ingólfs- dóttir fæddist 15. maí 1955. Hún lést 21. september 2021. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey 30. september 2021. skipti þig máli að ilma vel enda var alltaf góð lykt af þér og þú kallaðir ilm- vötn ætíð „vellykt- andi“. Þú málaðir þig aldrei en vara- salvinn var aldrei langt undan. Það var óþarfi að vera að flækja hlutina, þæg- indi og einfaldleiki númer eitt. Þú hafð- ir líka afar gaman af að kíkja á „fréttaveituna“ (Facebook) og talaðir um að hafa „nikkað“ (læk- að) á hitt og þetta sem þér fannst skemmtilegt að sjá og þar fylgd- ist þú grannt með öllu og hafðir gaman af. Þú hafðir alltaf allt svo hreint og fínt á heimilinu ykkar Agnars og var mjög umhugað um að hafa allt í röð og reglu, hvort sem var á eldhúsbekknum eða eldhúsborðinu. Hlutunum var raðað í ákveðna röð og eftir að þú varst aðeins búin að hagræða þá straukstu eftir borðinu á ákveð- inn hátt. Þú hafðir sterkar skoð- anir á ýmsu og oft á tíðum steytt- irðu hnefann í loftið og sagðist ætla að kæra hitt og þetta órétt- læti og svo fylgdi smitandi hlát- urinn í kjölfarið, þannig að hót- unin varð að engu um leið. Þessar og svo ótalmargar góðar minn- ingar um þig ylja okkur um hjartaræturnar því þú varst ein- stök kona, með erfiða fortíð en ótrúlega hlýtt hjarta. Hlýtt hjarta þitt áorkaði ýmsu þrátt fyrir erfiðleika. Við munum alltaf minnast þín og hugsa bara um allar góðu minningarnar sem við eigum með þér, þær eru okkur dýrmætar. Það er svo sárt að kveðja þig í síðasta sinn, hvíldu í friði elsku mamma okkar. Megi allar góðar vættir vaka yfir barnabörnunum þínum. Við mun- um alltaf elska þig. Meira á www.mbl.is/andlat Þín Ingólfur, Halldóra Kristín, Guðný, fjöl- skyldur og barnabörn. Nú er höggvið skarð í systk- inahópinn frá Hellissandi sem kenndi sig við Nýborgina. Guð- rún systir mín var þriðja elst af okkur systkinum. Fallega ljósið hennar Gunnu systur minnar er slokknað eftir erfiða baráttu við krabbamein en hún fór allt of snemma frá okkur, aðeins 66 ára gömul. Hún bar ekki alvarleg veikindi sín á torg, vildi ekki að fjölskyldan væri áhyggjufull og við vissum ekki að hún væri orðin svona mikið veik fyrr en undir lokin. Hún hafði fengið krabba- mein fyrir mörgum árum, það var skorið í burtu og hún hafði fengið bata um tíma. Gunna systir mín var sterkur karakter og hafði ákveðnar skoð- anir á mörgu. Hún gaf mikið af sér og hafði sérlega góða nær- veru. Alltaf stutt í grínið og hafði þennan skemmtilega húmor fyrir mönnum og málefnum. Það var svo gott að tala við hana, hún hafði líflega frásagnargáfu og var mikið hlegið þegar við hittumst. Við spjölluðum mikið um æsku- slóðirnar, Hellissand, og henni þótti svo gaman að segja sögur af mér þegar ég var lítil en það voru níu ár á milli okkar systra. Upp í hugann koma leiftur af minningabrotum. Ég man þegar ég fór suður til Reykjavíkur að- eins 11 ára gömul og bjó hjá henni um sumarið og var í vist að passa Ingólf, elsta barnið hennar, en þá var ýmislegt brallað. Svo man ég þegar ég fór með fjölskyldunni minni í sumarbú- stað á Vestfirði og hún og Aggi komu til okkar eina nótt en þau voru á ferðalagi um Vestfirðina. Við áttum yndislega samveru- stund, grilluðum, spiluðum og kveiktum varðeld í fjörunni. Einnig man ég eftir ferð sem við fórum í sumarbústað í Gríms- nesinu um páska eitt árið. Þá var Gunna og fjölskylda óvænt í bú- staðnum við hliðina á okkur. Við áttum notalega stund saman og elduðum saman, spiluðum á spil og spjölluðum fram á nótt. Já, það var sko mikið hlegið þessa páska. Gunna og Aggi komu alltaf í afmæli hjá barnabörnunum mín- um þegar heilsan leyfði og þótti mér mjög vænt um það. Börnin mín mynduðu sterk tengsl við þau Agga og barnabörnin sögðu að Gunna frænka væri svo skemmtileg og hress. Hún átti þrjú börn og fimm barnabörn sem henni var mjög umhugað um og elskaði mikið. Hún var svo stolt af þessum flottu afkomendum sínum og lof- aði ég henni undir lokin að ég skyldi passa upp á þau. Takk elsku systir fyrir alla samveruna, hlýjuna og kærleik- ann í minn garð og fjölskyldu minnar. Þín er sárt saknað en við vitum að þér líður betur í sum- arlandinu með Agga þínum sem kvaddi aðeins mánuði á undan þér. Minning þín lifir í hjarta okkar allra, fallega og góða syst- ir. Þín systir, Inga Ingólfsdóttir. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, tengdaömmu og langömmu, SÓLRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR, bókara og fv. bónda, Kirkjubæjarklaustri II. Guðrún Lárusdóttir Þórarinn Leifsson Fanney Ólöf Lárusdóttir Sverrir Gíslason Kristín Lárusdóttir Guðbrandur Magnússon barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLA JÖRUNDSSONAR frá Miðhrauni, lengst til heimilis á Sólvöllum 11, Selfossi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Kumbaravogs og Ljósheima fyrir hlýja og góða umönnun. Kristbjörg Óladóttir Gestur Haraldsson María Óladóttir Svanur Ingvarsson afabörn og langafabörn Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR S. INGIMUNDARSONAR blikksmíðameistara. Guðrún Þorbjörnsdóttir Stefanía Guðmundsdóttir Pálmi Þór Þorvaldsson Björn Guðmundsson Íris Ragnarsdóttir Bjarki Guðmundsson Halla Helga Jóhannesdóttir afabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR JÓHANNSSON bifvélavirki, frá Möðruvöllum í Eyjafirði, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð mánudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju 12. nóvember klukkan 13 og verður streymt. Gunnar Gunnarss. Norðfjörð Gréta Matthíasdóttir Jón Norðfjörð Ragnheiður Svavarsdóttir Jóhann V. Norðfjörð Linda Björk Rögnvaldsdóttir barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.