Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 30 ÁRA Ingvar er Reykvíkingur og hefur búið í Árbænum frá 13 ára aldri. „Ég bý með fjórðu kynslóðar Árbæingi og er örugglega ekki á leiðinni héðan.“ Hann er með BA- próf í sagnfræði frá HÍ og MSc- gráðu í hagsögu frá London School of Economics. Ingvar er aðstoð- arritstjóri Viðskiptablaðsins og hefur kennt sögu hagfræðikenn- inga í HR. „Ég byrjaði í blaða- mennsku árið 2014 og ætlaði að vera í ár en það hefur verið svo skemmtilegt að ég hef ekki unnið við annað síðan.“ FJÖLSKYLDA Sambýliskona Ingvars er Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, f. 1989, blaðamaður á Morgunblaðinu og dansari. Foreldrar Ingvars eru Har- aldur Gunnarsson, f. 1960, viðskiptafræðingur hjá Íslandsbanka og Ingibjörg Gísladóttir, f. 1963, mannauðsráðgjafi. Þau eru búsett í Árbænum. Ingvar Haraldsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hugur þinn snýst of mikið um til- finningar sem ekki eiga heima á dagskrá þinni. Öfund er af hinu illa svo þú skalt var- ast að láta hana ná tökum á þér. 20. apríl - 20. maí + Naut Einhver ágreiningur gæti komið upp varðandi heimilisþrifin. Vertu óhræddur við að viðra hugmyndir þínar því það gæti borgað sig. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Gleymdu ekki að hlusta á sjón- armið annarra í umræðum í dag. Þegar upp er staðið ert það þú sem þarft að vega og meta hvað þér er fyrir bestu. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Reyndu að hafa alla þræði í hendi þér áður en þú ræðst í framkvæmdir sem þig dreymir um. Skemmtu þér ef þú getur. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú þarft fyrst að koma á jafnvægi í sjálfum þér áður en þú ferð að fást við aðra hluti. Taktu þér smáhvíld frá daglega amstrinu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er eins og allt sé á hreyfingu í kringum þig og þú eigir fullt í fangi með að fóta þig í straumnum. Vertu með fólki sem þú getur spjallað við um öll hjartans mál. 23. sept. - 22. okt. k Vog Til þess að geta hjálpað öðrum þarftu fyrst að öðlast frið með sjálfum þér. Skilin milli jákvæðni og bjartsýni og óraunsærra væntinga eru ekki alltaf skörp. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þér finnst allt vera í lukkunnar velstandi. Nú ætti fjárhagurinn að leyfa fjárfestingu fyrir framtíðina. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er upplagt að eyða smá tíma í það að sýna sig og sjá aðra. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður og þér er óhætt að ráðast í hlutina. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er í lagi að gefa öðrum ráð svo framarlega að þú lesir þeim ekki pist- ilinn. Brjóttu upp gráma hversdagsins og settu lit á dag þinna nánustu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Breyting á hugsunarhætti gerir þér kleift að ná skjótari árangri í fjár- málum. Sinntu þínu og þá muntu verða of- an á þegar vinda lægir aftur. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur æði margt á þinni könnu og spurning hvort þú sért ekki að færast of mikið í fang. Nú bjóðast þér ýmsir mögu- leikar svo þú skalt gefa þér tíma til að velja. togarann Hallveigu Fróðadóttur á síðustu stundu. „Faðir minn var einnig um borð og er þetta lífs- reynsla sem setið hefur í mér alla tíð síðan.“ Árið 1961 keypti Sævar 56 tonna vinna við hafnargerðina á Rifi 15 ára gamall og þegar höfnin var fullgerð fór hann til sjós. Nítján ára var hann ráðinn á Hafdísi SH sem sökk eftir nokkra róðra, en öllum skipverjum var bjargað í S ævar Friðþjófsson fædd- ist 30. október 1936 á Landspítalanum í Reykjavík en var fluttur heim í Rif með skipi sjö daga gamall. „Engin höfn var á Rifi á þeim tíma og kom skipið að landi á Hell- issandi. Aðstæður voru þannig að skipið komst ekki upp að bryggju heldur lagðist að legunni sem svo var kallað sem þýðir að Friðþjófur faðir minn og Steingrímur bróðir hans komu á litlum báti út að leg- unni. Koma þurfti hvítvoðungnum og Halldóru móðurinni úr skipinu og í litla bátinn sem þeir bræður voru á. Ungbarnið var sett í slæðu sem hnýtt var saman á hornunum. Móðir mín rétti síðan slæðuna með barninu yfir í litla bátinn. Þótti foreldrum mínum tilhlýðilegt að ég fengi nafnið Sævar eftir þessa fyrstu sjóferð. Í landi biðu hestar tilbúnir til reiðar og þá var riðið inn í Rif með nýbakaða móður og barn 3,5 km leið.“ Sævar hefur búið alla tíð síðan á Rifi fyrir utan einn vetur í Stýri- mannaskólanum í Reykjavík árin 1956-57. Á uppeldisárunum Sævars var Rif sveitabær með hefðbundin húsdýr s.s. kýr, kindur, hesta og hænur. Meðfram sveitastörfum frá unga aldri var róið á árabát til að sækja fisk fyrir heimilið og einnig var seldur saltfiskur. „Guðmundur föðurafi kenndi mér heima, það var kallað að vera í læri. Þegar hann lést var ég 10 ára gamall og þá fór ég í grunn- skólann á Hellissandi, skólagangan var ekki löng eða þrjú ár. Gekk ég á milli Rifs og Hellissands þessa 3,5 km leið að hausti og vori en um hávetur var ég í fóstri á Hellis- sandi. Þegar svokölluð landshafnarlög voru samþykkt á Alþingi urðu miklar breytingar á Rifi, en þar var ákveðið að byggja eina af þremur höfnum sem byggðar voru á landsbyggðinni. Friðþjófur faðir minn átti stóran þátt í að höfn var byggð á Rifi en hann gaf ríkinu hluta af jörðinni undir hafnar- framkvæmdir.“ Sævar byrjaði að bát með bróður sínum Jóni og föð- ur og þá varð til Útnes hf. sem er því 60 ára í ár. Á árunum 1967 til 1969 var byggður stálbátur í Stál- vík í Garðabæ fyrir Útnes sem fékk nafnið Saxhamar. Útgerðin hefur vaxið og dafnað síðan. „Frið- þjófur sonur minn er skipstjóri í dag og dóttursonurinn Sævar Freyr stýrimaður. Sjálfur fór ég í land í febrúar 1980 eftir sjóslys og þá var mín skipstjórnartíð búin en ég stýrði útgerðinni úr landi ásamt konu minni Helgu. Þegar ég var kominn í land gafst svigrúm til að sinna öðrum hugðarefnum t.d. tók ég til við að sinna bústörfum, tók við búi af föð- ur mínum og móður sem voru komin á efri ár. Ég hef haft mikla unun af þessum störfum með sauð- kindina.“ Einnig tók Sævar að sér ýmis trúnaðarstörf, en hann sat í hreppsnefnd utan Ennis í 12 ár, hafnarnefnd Rifshafnar í 20 ár, var í stjórn Hraðfrystihúss Hellis- sands, sat á fiskiþingi hjá Fiski- félagi Íslands, stofnandi og stjórn- armaður í Fiskmarkaði Íslands í 20 ár og sat í sóknarnefnd Ingj- aldshólskirkju svo eitthvað sé nefnt. „Ég hef afskaplega mikið yndi af því að spila á píanó og harmoniku, ég legg mig fram um að æfa mig reglulega og hef nokkrum sinnum komið fram á viðburðum og spilað á nikkuna. Ég er mikill reglumað- ur og fer í göngutúr á hverjum degi sama hvernig viðrar og tel að það haldi heilsunni við.“ Fjölskylda Eiginkona Sævars er Helga Hermannsdóttir, f. 16.3. 1937, fv. skrifstofumaður. Þau búa á Rifi. Foreldrar Helgu eru hjónin Her- mann Hermannsson, f. 29.7. 1893, d. 7.11. 1979, og Ágústína Ingi- björg Hermannsdóttir, f. 5.8. 1892, d. 17.2. 1979, þau bjuggu á Hellis- sandi. Börn Sævars og Helgu eru: 1) Halldóra Guðríður, f. 14.8. 1958, stjórnarformaður Útness, búsett á Rifi, gift Reyni Rúnari Reynissyni Sævar Friðþjófsson, útvegsbóndi á Rifi – 85 ára Fjölskyldan Sævar, Helga og börn á Laugarvatni á sjötugsamæli Sævars. Fyrirtækið orðið 60 ára Afmælisbarnið Sævar að skemmta á harmonikunni. Kristján Arnfjörð Guðmundsson á 70 ára afmæli í dag. Hann er fædd- ur og uppalinn í Reykjavík og á sex börn og 12 barnabörn. Síðustu ár og áratugi hefur hann starfað sem hópferðabílstjóri ásamt því að reka söluturn hér áður fyrr. Árnað heilla 70 ára Til hamingju með daginn Við Hækk um í gleð inni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.