Morgunblaðið - 30.10.2021, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
Ýmsar gerðir af heyrnar-
tækjum í mismunandi
litum og stærðum.
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki fást
í vefverslun heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
2007
HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600
HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS
Heyrðu
umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
„HANN VERÐUR 42 ÁRA Í NÆSTA MÁNUÐI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að fá fótanudd.
GOTT KVÖLD,
KETTLINGAROG KISUR!
HVAÐ KALLIÐ ÞIÐ KÖTT SEM
HEFUR BLUNDAÐ Í TÍU TÍMA?
VANSVEFTA!
TAKK! TAKK! TAKK!
BEST AÐ BÆTA
LURKUM Á ELDINN!
Ó, HVAÐ ÞÚ ERT
HUGULSAMUR!
JÁ, SMJÖRIÐ VAR AÐ VERÐA OF KALT TIL AÐ
HÆGT VÆRI AÐ SMYRJA MEÐ ÞVÍ!
„ÓKEI, ÉG ER BÚINN AÐ MISSA
LÍFSVILJANN. ERTU LOKSINS ÁNÆGÐ?“
vélstjóra. Börn þeirra eru Sævar
Freyr, f. 1980, stýrimaður og af-
leysingaskipstjóri, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Írisi Jónas-
dóttur, dóttir þeirra er Karen, og
Árný Sif, f. 1985, leikskólastjóri
Reykjavík, sambýlismaður Pétur
Fjeldsted Þorsteinsson; 2) Sæunn,
f. 22.9. 1964, skrifstofumaður, bú-
sett í Hafnarfirði, gift Geir Jóni
Karlssyni kerfisfræðingi. Börn
hennar eru Heiðdís Anna, f. 1992,
forritari, gift Alexander Miguel
Salvador, dóttir þeirra er Kría
Rut, og Kristleifur, f. 1995, stuðn-
ingsfulltrúi, búsettur í Hafnarfirði;
3) Friðþjófur, f. 9.10. 1967, fram-
kvæmdastjóri Útness og skipstjóri,
búsettur á Rifi, fv. kona er Sigríð-
ur Margrét Vigfúsdóttir. Börn
þeirra eru Helga Páley, f. 1987,
myndlistarmaður, búsett í Reykja-
vík, sambýlismaður er Loji Hös-
kuldsson; Sindri Hrafn, f. 1992,
vinnur við liðveislu, og rekur gisti-
hús á Rifi, búsettur í Reykjavík;
Brimrún Birta, f. 1997, myndlist-
armaður, búsett í Reykjavík, sam-
býlismaður er Viktor Ingi Guð-
mundsson; Ástrós Una, f. 2012,
nemi, búsett í Reykjavík.
Systkini Sævars: Ester Úranía,
fv. póstafgreiðslukona, f. 11.10.
1933, bjó lengst á Rifi en er nú í
Reykjavík; Svanheiður Ólöf verka-
kona, f. 8.9. 1939, d. 30.10. 2020;
Kristinn Jón útgerðarmaður, f.
24.7. 1941. Fósturbræður Sævars
eru Sæmundur Kristjánsson, leið-
sögumaður á Rifi, f. 24.8. 1943, og
Hafsteinn Björnsson, vélstjóri á
Rifi, f. 19.5. 1949.
Foreldrar Sævars voru hjónin
Friðþjófur Guðmundsson útvegs-
bóndi, f. 27.10. 1904, d. 3.9. 1987,
og Halldóra G. Kristleifsdóttir
húsfrú, f. 27.11. 1912, d. 8.6. 1999.
Þau bjuggu á Rifi.
Sævar
Friðþjófsson
Kristrún Birgitta Oddsdóttir
húsfreyja í Holti í Fróðárhreppi
Árni Árnason
bóndi í Nýlendu í
Fróðárhreppi, síðar í Holti
Soffía Guðrún Árnadóttir
húsfreyja í Efri-Hrísum
Kristleifur Jónatansson
bóndi í Efri-Hrísum í Fróðárhreppi
Halldóra Guðríður Kristleifsdóttir
húsfreyja á Rifi
Halldóra Daníelsdóttir
húsfreyja á Mýrum
Jónatan Jónsson
bóndi á Mýrum í Eyrarsveit
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja í Undirtúnum
Jón Oddsson
bóndi í Undirtúnum við
Helgafell í Helgafellssveit
Jófríður Jónsdóttir
húsfreyja á Rifi
Guðmundur Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Guðbjörg Stefánsdóttir
húsfreyja í Ólafsey og á Ósi
Guðmundur Björnsson
bóndi í Ólafsey á Hvammsfirði, síðar á Ósi á Skógarströnd
Úr frændgarði Sævars Friðþjófssonar
Friðþjófur Baldur Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Skafbylur nú skellur á.
Skáldkona var bænum frá.
Í flekknum þennan finna má.
Fræðasetur þekkt er sá.
Bergur Torfason frá Felli svarar:
Garður skafbyls skellur á,
skáld var Þura Garði frá,
Flekk í garða gera á,
Garði-fræða kynnast má.
Hér er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Í norðan garð hann genginn var.
Frá Garði Þura nokkur var.
Fólk að garða flekkinn var.
Fræðasetur Garður var.
Helgi R. Einarsson svarar:
Á þorra garðar guma hrjá.
Garði skáldið Þura’ er frá.
Í flekknum garða finna má.
Fræðasetur Garði’ er á.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Með þræsingsgarði gekk hér á.
Í Garði mátti Þuru sjá.
Í garða heyi hrófað er.
Hugnast fræðagarður mér.
Þessi er skýring Guðmundar:
Skæður garður skellur á.
Skáld var Þura Garði frá.
Í flekknum rifgarð finna má.
Fræðasetur Garður sá.
Þá er limra:
Hólmsteinn í Holtagörðum
og Hjörvar úr Jökulfjörðum
urðu úti
ásamt hrúti
á göngu í Gönguskörðum.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Úti er hráslaga hregg,
nú hausinn í bleyti ég legg,
mér leyfist ei lengur bið
að ljúka gátuna við:
Ég hygg þar sé heyrandi nær.
Á héraði er þessi bær.
Í flaustri ég verkið vann.
Ég vafra um melhrygg þann.
Þessi staka Þuru í Garði varð
fleyg:
Varast skaltu vilja þinn;
veik eru manna hjörtu.
Guðaðu samt á gluggann minn,
en gerðu það ekki í björtu.
Um „Ótíð“ yrkir Þura:
Ennþá rignir, úti um frið
og yndi sólskinsvona;
nú eru ekki gefin grið.
Guð vill hafa það svona.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrir ofan og neðan garð