Morgunblaðið - 30.10.2021, Page 40
HANDBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ekki upplifir maður það sem svo
að línur séu að skýrast í efri hluta
Olís-deildar karla í handknattleik
en flest liðin hafa nú leikið sex
leiki. Er þetta sett fram í jákvæðri
merkingu en litlu munar á sjö
efstu liðunum sem stendur.
Íslands- og bikarmeistarar Vals
teljast besta liðið á meðan Vals-
menn eru handhafar þessara bik-
ara en Garðbæingar mega eiga að
þeir hafa unnið alla fimm leiki sína
og unnu Val á fimmtudaginn.
Stjarnan og Valur eru með 10
stig en Haukar eru stigi á eftir, en
þeir unnu í gær sannfærandi sigur
á HK 30:24. Sigurinn vafðist ekki
fyrir Hafnfirðingum sem höfðu
komið sér upp tíu marka forskoti
þegar tuttugu mínútur voru eftir.
Stefán Rafn Sigurmannsson er
smám saman að nálgast fyrra form
og skoraði 7 mörk í kvöld úr níu
tilraunum. Var hann markahæstur
Hauka en Geir Guðmundsson
skoraði 6 mörk. Kristófer Ísak
Bárðarson, Sigurvin Jarl Ár-
mannsson og Einar Bragi Að-
alsteinsson skoruðu 4 mörk hver
fyrir HK.
FH og ÍBV skammt undan
Tveir leikir voru í hand-
boltabænum Hafnarfirði í gær en
FH tók á móti KA í Kaplakrika og
vann býsna öruggan sigur 28:21.
FH er með 8 stig eftir sex leiki en
KA er með 4 stig eftir sex leiki.
Markverðir FH vörðu 20 skot í
leiknum. Phil Döhler 18 skot og
Svavar Ingi Sigmundsson 2. Annað
var uppi á teningnum hjá KA.
Nicholas Satchwell varði 6 skot og
Bruno Bernat 1.
KA mætti með þrjá leikmenn
sem leikið hafa með FH. Ólaf
Gústafsson sem er þar uppalinn,
Einar Rafn Eiðsson sem lék lengi
með FH og Óðinn Þór Ríkharðs-
son sem var um tíma í Kaplakrika.
Óðinn var markahæstur KA-
manna með 8 mörk en Ásbjörn
Friðriksson sem á hinn bóginn er
Akureyringur skoraði 8 fyrir FH.
Eyjamenn eru öflugir í upphafi
tímabilsins og eru með 8 stig eftir
fimm leiki. ÍBV vann Fram í Safa-
mýri 32:28 í gær. Fram er einnig
með 8 stig en eftir sex leiki.
Daði Arnarsson, Sigtryggur
Rúnarsson og Rúnar Kárason
skoruðu allir sjö mörk fyrir ÍBV
en Vilhelm Poulsen var enn og aft-
ur markahæstur hjá Fram. Nú
skoraði hann 9 mörk.
Áhugaverð
toppbarátta
- Tvö stig á milli 1. sætis og 7. sætis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Móttökur Jón Bjarni Ólafsson stöðvar Einar Rafn Eiðsson í gær.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
Nebojsa Knezevic hefur verið ráð-
inn þjálfari kvennaliðs Skallagríms
í körfuknattleik. Knezevic þekkir
vel til í Borgarnesi en hann var að-
stoðarþjálfari Goran Miljevic sem
lét af störfum í vikunni. Þá er
Knezevic leikmaður karlaliðs
Skallagríms í 1. deild karla en hann
hefur skorað 13 stig og tekið fimm
fráköst að meðatali í deildinni í vet-
ur. Kvennalið Skallagríms hefur
ekki byrjað tímabilið vel í úrvals-
deild kvenna en liðið er án stiga í
neðsta sæti deildarinnar eftir
fyrstu sex umferðirnar.
Ráðinn þjálfari
Skallagríms
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Skot Maja Michalska og samherjar
hennar eru komnar með þjálfara.
Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan
Þórhallsson er genginn í raðir
Breiðabliks frá Mjöndalen í Noregi.
Dagur Dan lék með Fylki síðasta
sumar og var þá lánaður frá norska
liðinu. Hann hefur nú félagaskipti í
Breiðablik og skrifaði undir
þriggja ára samning samkvæmt til-
kynningu frá Breiðabliki. Dagur
Dan er 21 árs og lék í yngri flokk-
unum með Fylki og Haukum. Hér
heima hefur hann einnig leikið með
Keflavík en erlendis með Gent og
Mjöndalen. Dagur hefur leikið þrjá
leiki með U21 árs landsliðinu.
Liðstyrkur í
Kópavoginn
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traust.
Kópavogur Dagur Dan lék 20 leiki
með Fylki í efstu deild í sumar.
Olísdeild karla
Fram – ÍBV........................................... 28:32
FH – KA................................................ 28:21
Haukar – HK ........................................ 30:24
Staðan:
Stjarnan 5 5 0 0 157:140 10
Valur 6 5 0 1 179:148 10
Haukar 6 4 1 1 176:154 9
ÍBV 5 4 0 1 144:138 8
Afturelding 6 3 2 1 175:163 8
FH 6 4 0 2 161:145 8
Fram 6 4 0 2 162:157 8
KA 6 2 0 4 153:171 4
Selfoss 5 1 0 4 116:134 2
Grótta 5 0 1 4 121:133 1
HK 6 0 0 6 152:176 0
Víkingur 6 0 0 6 132:169 0
Grill 66-deild karla
Þór – Afturelding U ............................. 32:26
Vængir Júpíters – Berserkir............... 26:24
Staða efstu liða:
ÍR 3 3 0 0 106:83 6
Hörður 3 3 0 0 108:78 6
Þór 5 3 0 2 153:141 6
Afturelding U 3 2 0 1 81:80 4
Haukar U 3 2 0 1 81:72 4
Grill 66-deild kvenna
Víkingur – Fjölnir/Fylkir .................... 24:15
ÍR – Grótta............................................ 25:20
Staða efstu liða:
ÍR 5 3 1 1 130:116 7
FH 4 3 0 1 103:68 6
Selfoss 4 3 0 1 115:106 6
Fram U 3 2 0 1 75:79 4
Stjarnan U 4 2 0 2 97:116 4
Víkingur 4 2 0 2 92:96 4
Danmörk
Ringköbing – Skanderborg ............... 28:20
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 12 skot í
marki Ringköbing.
- Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir
Skanderborg.
Svíþjóð
Guif – Redbergslid .............................. 29:27
- Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði 11
skot í marki liðsins.
Alingsås – Skövde ............................... 26:32
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 7
mörk fyrir Skövde.
Austurríki
Alpla Hard – Linz ................................ 31:27
- Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard.
Frakkland
B-deild:
Tremblay – Nice .................................. 25:24
- Grétar Ari Guðjónsson varði 20 skot í
marki Nice. 48% markvarsla.
%$.62)0-#
Subway-deild karla
KR – Njarðvík ...................................... 91:75
Þór Ak. – Stjarnan................................ 68:94
Staðan:
Keflavík 4 4 0 377:343 8
Grindavík 5 4 1 409:381 8
Njarðvík 5 3 2 469:421 6
Tindastóll 4 3 1 356:347 6
Þór Þ. 4 3 1 384:369 6
Stjarnan 4 2 2 364:347 4
KR 4 2 2 381:365 4
Valur 4 2 2 287:316 4
Breiðablik 4 1 3 447:447 2
Vestri 4 1 3 331:352 2
ÍR 4 0 4 360:414 0
Þór Ak. 4 0 4 297:360 0
1. deild karla
Álftanes – Fjölnir ................................. 96:79
Hamar – Sindri ..................................... 70:97
Höttur – ÍA ......................................... 114:74
Selfoss – Haukar .................................. 88:87
Staðan:
Haukar 6 5 1 633:423 10
Höttur 5 5 0 524:376 10
Sindri 6 5 1 541:478 10
Álftanes 6 4 2 556:484 8
Selfoss 6 4 2 545:535 8
Hamar 6 2 4 466:517 4
Hrunamenn 5 2 3 426:499 4
Fjölnir 6 1 5 481:589 2
Skallagrímur 4 0 4 289:380 0
ÍA 6 0 6 451:631 0
Danmörk
Falcon – Wolfpack Herlev.................. 75:62
- Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 11 stig,
gaf 5 stoðsendingar og tók 4 fráköst fyrir
Falcon.
Rúmenía
Ol. Brasov – Phoenix Constanta........ 60:78
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 7 stig og
tók 6 fráköst fyrir Constanta.
NBA-deildin
Philadelphia – Detroit...................... 110:102
Washington – Atlanta ...................... 122:111
Chicago – New York ........................ 103:104
Houston – Utah .................................. 91:122
Dallas – San Antonio .......................... 104:99
Golden State – Memphis.................. 101:104
4"5'*2)0-#
KR vann sinn annan leik á tíma-
bilinu í úrvalsdeild karla í körfu-
knattleik, Subway-deildinni, þegar
liðið tók á móti Njarðvík á Meist-
aravöllum í Vesturbæ í fjórðu um-
ferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 91:75-sigri
Vesturbæinga sem voru með yf-
irhöndina í leiknum allan tímann.
KR-ingar leiddu með fimm stigum
etir fyrsta leikhluta og var staðan
49:41 í hálfleik, KR í vil.
Njarðvíkingar minnkuðu forskot
Vesturbæinga í fimm stig í þriðja
leikhluta, 67:62, en KR-ingar voru
mun sterkari í fjórða leikhluta sem
þeir unnu með 24 stigum gegn 13
stigum Njarðvíkur.
Þórir Guðmundur Þorbjarnason
og Adama Darbo skoruðu báðir 19
stig fyrir KR og þá tóku þeir báðir
átta fráköst. Shawn Glover skoraði
17 stig.
Fotios Lampropoulos var besti
maður Njarðvíkur með 21 stig og 16
fráköst. Mario Matasovic skoraði 20
stig og tók tólf fráköst.
KR fer með sigrinum upp í sjö-
unda sæti deildarinnar og er með 4
stig en KR-ingar voru án sigurs í
síðustu tveimur deildarleikjum sín-
um fyrir leik gærdagsins.
Á sama tíma var Njarðvík að tapa
sínum öðrum leik í röð en liðið er í
þriðja sætinu með 6 stig eftir fimm
leiki, tveimur stigum minna en
Keflavík og Grindavík en Keflavík á
leik til góða á bæði lið.
_ Þá skoraði David Gabrovsek 20
stig og tók ellefu fráköst fyrir
Stjörnuna þegar liðið vann afar
þægilegan sigur gegn Þór frá Ak-
ureyri í Höllinni á Akureyri.
Leiknum lauk með 94:68-sigri
Stjörnunnar sem leiddi með þremur
stigum í hálfleik, 37:34.
Nokkuð jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik en Garðbæingar voru
mun sterkari í síðari hálfleik.
Gunnar Ólafsson skoraði 14 stig
og tók sjö fráköst í liði Stjörnunnar
og Shawn Hopkings skoraði 12 stig.
Atle Ndiaye skoraði 16 stig fyrir
Þórsara ásamt því að taka níu frá-
köst og þá skoraði Eric Fongue 11
stig.
Garðbæingar eru með 4 stig í
sjötta sæti deildarinnar, líkt og KR
og Valur, en Þórsarar eru án stiga í
neðsta sætinu ásamt ÍR.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Vesturbænum Þórir Guðmundur Þorbjarnarson sækir að körfu Njarðvík-
inga í DHL-höllinni í gær en hann skoraði 19 stig í leiknum.
KR á beinu
brautina
- Þægilegt hjá Stjörnunni fyrir norðan