Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021 AF BÓKMENNTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Alls eru fjórtán bækur á átta nor- rænum tungumálum tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs í ár, en verð- launin verða afhent við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn þriðjudag- inn 2. nóvember í tengslum við 73. þing Norðurlandaráðs. Í blaðinu á fimmtudag var sjónum beint að framlagi Álendinga, Grænlendinga, Norðmanna, Sama og Svía. Í dag er komið að framlagi Dana, Finna, Færeyinga og Íslendinga. Rýnir las tilnefndu bækurnar á frummálinu nema annað sé tekið fram. Þess má geta að í blaðinu í gær var fjallað um bækurnar sem tilnefndar eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs þetta árið sem einnig verða af- hent á þriðjudaginn kemur. Eldsumbrot í sálinni Danir tilnefna annars vegar ung- lingabókina Vulkan (Eldfjall) eftir Zakiyu Ajmi og hins vegar mynd- lýstu barnabókina Ukrudt (Illgresi) eftir Adam O. Zakiya Ajmi skrifar af góðu innsæi og miklu næmi um þær áskoranir sem unglingsstúlkan Anna stendur frammi fyrir. Þær snúa að ástinni og fyrstu kynlífs- reynslunni, fikti við vímuefni, kynferðisofbeldi og vanda þess að eignast vini í nýj- um skóla. Auk þess burðast Anna með erfiða fortíð í farteskinu þar sem hún hef- ur ásamt móður sinni þurft að flýja ofbeldisfullan föður út af heim- ilinu og búið í kvennaathvarfi um skeið áður en bókin hefst. Það er því ekki skrýtið að Anna skuli strax á upphafssíðum bókarinnar velta þyngdaraflinu fyrir sér og þá sér- staklega hvort það sé alltaf lögmál að eplið falli nálægt eikinni eða hvort það gæti hreinlega svifið burt. Með frumlegum og áhrifaríkum hætti notar höfundur orðfæri vísind- anna um jarðhræringar og kviku- streymi til að lýsa upplifunum og til- finningum Önnu. Í samskiptum við bekkjarfélagann Idris finnur Anna fyrir ákveðnu þyngdarleysi sem kallast á við ástarfiðringinn í mag- anum og parkour-loftfimleikana sem hann stundar og vill gjarnan kenna henni. Á yfirborðinu er Vulkan sósíalrealísk unglingasaga, en frá- bær úrvinnsla höfundar er í senn symbólísk og ljóðræn. Brotajárn í menguðum heimi Ukrudt er síðasta bókin í fram- tíðarþríleik er nefnist Den rustne verden (Ryðgaði heimurinn) sem hófst með bókinni Flugten fra Dan- mark (Flóttinn frá Danmörku) og fylgt var eftir með Motorhjerte (Vélhjarta) sem báðar komu út 2019. Bókaflokk- urinn gerist í fjarlægri framtíð þar sem jörðin er illa leikin af áhrif- um loftlagsbreyt- inga af mannavöldum, en engan skal undra að það efni brenni á mörgum höfundum sem skrifa fyrir börn og ungmenni, því hvers konar heimur bíður lesenda? Saga Adams O. hverfist um fjögur systkini og baráttu þeirra við stór- fyrirtækið Atlas sem sölsað hefur undir sig völdin í samfélaginu. Þegar síðasta bókin hefst stendur það upp á hina sex ára gömlu Ramonu að frelsa systkini sín og foreldra (sem vinna bæði hjá jákvæðniráðuneyt- inu) úr prísund Atlas. Ramona nýtur aðstoðar vélmennisins Skrot en þau eru í kapphlaupi við tímann þar sem síðasta rafhlaðan hans er að klárast. Vísanir höfundar í samtímann eru skýrar allt frá gegndarlausri arð- semiskröfu stórfyrirtækisins til svo- nefndra speglabóka sem allir verða að eignast. Framtíðarsýn höfundar kallast á við bækur eftir Orwell og Huxley sem og vinsælar teikni- myndir á borð við WALL-E, The Michaels vs. The Machines og Big Hero 6. Hver kafli hefst á glæsilegri myndaopnu sem gefur tóninn fyrir það sem koma skal. Vel er hægt að lesa Ukrudt eina og sér, en auðvitað vantar samt ýmis púsl inn í myndina sem fæst aðeins með því að lesa all- an flokkinn. Það er því alltaf vanda- samt að tilnefna einungis eina bók í seríu og spurning hvort ekki hefði verið betra að tilnefna heildina. Vonarglæta á botninum Að vanda tilnefnda Finnar eina bók sem skrifuð er á sænsku og aðra á finnsku. Þetta eru myndabókin Mitt bottenliv – av en ensam axolotl (Mitt botnlæga líf – saga einmana tálknamöndru) eftir Lindu Bonde- stam og unglingabókin Kesämyrsky (Sumarstormur) eftir Siiri Enor- anta, sem rýnir las í sænskri þýð- ingu Mattiasar Huss. Líkt og titillinn gefur til kynna beinir Bondestam sjónum sínum að raunum einmana tálkna- möndru sem í upp- hafi bókar er sú eina úr 987 eggjum sem klakist hefur út og spyr sig eðli- lega hvort hún sé mögulega sú síð- asta í heiminum. Meginþráðurinn snýr að leit dýrsins að öðrum sínum líkum, en í leiðinni nær höfundur – ekki síst í frábærum myndum – að miðla heilmiklum upplýsingum um stöðu heimsins þar sem hættulegir skógareldar brenna, mengun ógnar lífríkinu og sjórinn er fullur af rusli. Húmor er notaður markvisst til að vinna á móti myrku umfjöllunarefn- inu eins og sést skýrt í því hvernig sjávardýrin nýta ruslið sem ratað hefur á botninn. Sterkir litir í ásjónu sögupersóna vinna einnig vel á móti dökkum bakgrunni. Vonin ræður ríkjum undir lok bókar þar sem botnlíf tálknamöndrunnar hefur breyst í topplíf. Áfallasaga ungrar stúlku Skáldsagan Kesämyrsky gerist á einu sumri í bænum Queensbridge. Sögutíminn er óræður þar sem margt í þjóðfélagsumgjörðinni virð- ist vísa aftur til iðnbyltingarinnar á meðan annað vísar til framtíðar þar sem farsímalaust fólk fer á milli staða í flugvélum knúnum hinu dularfulla indígó-efni. Beislun efnis- ins hefur nýst fámennum hópi sam- félagsins til velsældar en samtímis aukið misskiptinguna. Á yfirborðinu er frásögnin knúin áfram af dular- fullu morði sem hin 12 ára Penelope varð vitni að, en getur lítið tjáð sig um. Auðugir foreldrar hennar hafa ráðið barnageðlækni til að dvelja á herragarði fjölskyldunnar sumar- langt til að hjálpa dótturinni. Með lækninum í för er Andrew, 13 ára sonur hans, sem er skólabróðir Josh, eldri bróður Penelope. Frá- sögnin er ekki línuleg og sjón- arhornið flakkar sífellt milli barn- anna þriggja og því þurfa lesendur að hafa sig alla við til að reyna að skilja orsakasamhengið. Hér er á ferðinni myrk saga þar sem lygar, svik og ofbeldi í sam- skiptum barna mynda lykilþræði í flóknum vef. Þetta er annað árið í röð sem Finnar tilnefna bók þar sem skrifað er af miklu næmi um sam- kynhneigð aðalpersóna. Enoranta beinir sjónum líka með afar góðum hætti að sálarkreppu stúlku sem orðið hefur fyrir ítrekuðum áföllum. Aðgerðaleysið vekur reiði Yfirvofandi loftslagsbreytingar af mannavöldum eru lykilþema í ung- lingabókinni Sum rótskot (Eins og rótarskot) eftir Marjun Syderbø Kjelnæs sem er framlag Færeyinga í ár og rýnir las í danskri þýðingu Jennyjar Johannessen. Sögumaður er innhverfa menntaskólastúlkan Fríða, sem óttast það helst að líkjast föður sínum sem drakk frá sér konu og börn. Mikilvægasta manneskjan í lífi hennar er æskuvinkonan Miriam sem á ekki langt eftir þar sem hún er smám saman að kafna af völdum slímseigju- sjúkdóms (Cystic Fibrosis). Þegar Miriam er lögð inn á spítala felur hún Fríðu að geyma dagbóka sína og í gegnum hana fá lesendur innsýn í fallega vináttu þeirra og baráttu fyrir bættum heimi. Þær eru innblásnar af Gretu Thunberg og reiðar yfir andvara- og aðgerðaleysi hinna fullorðnu. Höfundur brennur greinilega fyrir umfjöllunarefni sínu og vonast til að geta haft áhrif til góðs með skrifunum. Á mörkum staðleysunnar Framlag Íslendinga þetta árið eru unglingabækurnar Blokkin á heims- enda eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur og Grísafjörður: Ævintýri um vináttu og fjör eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdótt- ur sem myndlýsir eigin bók. Blokkin á heimsenda gerist í nálægum hliðarraunveruleika og er á mörkum staðleysunnar. Dröfn verður, ásamt foreldrum sínum og eldri bróður, innlyksa á afskekktri eyju þar sem föðuramma barnanna ræður ríkjum og allir íbúar búa í einu blokkinni sem á eyjunni er. Eyjan einangrast á veturna vegna loftslagsbreyt- inga og því ljóst að Dröfn og fjöl- skylda hennar þurfa að þreyja þorrann við þröngan kost og erfið skilyrði. Íbúar blokkarinnar eru skilgreindir út frá störfum sínum og þar er ekki pláss fyrir þá sem þiggja meira en þeir leggja til samneyslunnar. Þegar skemmdarverk eru unnin liggja nýbúarnir undir grun og því brenn- ur á Dröfn að komast að því hver það sé sem vilji henni og fjölskyldu hennar illt. Framvindan er grípandi og frásögnin lifandi. Höfundar vinna með góðum hætti úr efnivið sínum þar sem náttúruvernd, neyslu- hyggja, stjórnarfar, sjálfstæði og uppreisn í víðu samhengi eru til skoðunar. Víkkar sjóndeildarhringinn Grísafjörður: Ævintýri um vináttu og fjör er hjartahlý og húmorísk bók þar sem sjónum er beint að hamingj- unni sem leynist í hversdeginum og litlu hlutunum. Hér kynnumst við tvíburunum Ingu og Baldri sem eiga traust og dýrmætt samband þótt þau séu skemmti- lega ólík, hún hvatvís og uppá- tækjasöm en hann kvíðinn og mun varfærnari. Bókin hefst í upphafi sumars þar sem systkinin láta sig hlakka til þess að geta slappað af og horft á teiknimyndir. Sólarlandaferð er aðeins fjarlægur draumur þar sem fjárhagsstaða heimilisins býður ekki upp á það á kennaralaunum móðurinnar. Hlut- irnir taka óvænta stefnu þegar Albert, nágranni þeirra á efstu hæð blokkarinnar þar sem þau búa, kem- ur í óvænta heimsókn og deilir sorg- um sínum. Í ljós kemur að Alma, tví- burasystir hans, sem siglir um heimsins höf, er horfin. Eina vís- bendingin sem hann hefur er póst- kort þar sem Alma sagðist á leið til Grísafjarðar. Litla fjölskyldan getur ekki stillt sig um að hjálpa Alberti og við tekur ævintýralegur sögu- þráður sem víkkar sjóndeildarhring- inn og skapar mikilvægar tengingar milli einstaklinga. Í myndefni sínu einskorðar Lóa Hlín litapallettu sína við fimm liti, en samt virkar bókin einstaklega litrík og lífleg. Myndirnar búa iðulega yfir óvæntum upplýsingum sem ekki er beint að finna í textanum og bæta því miklu við lestrarupplifunina. Bækur sem eiga erindi Rétt er að geta þess hér í lok seinni greinarinnar um tilnefndar barna- og unglingabækur ársins að þær eru allar, ásamt öllum vinnings- bókunum frá upphafi, aðgengilegar almenningi á frummálunum á bóka- safninu í Norræna húsinu. Vonandi mun einhver hluti þeirra rata til les- enda hérlendis í íslenskri þýðingu, en frá því að Barna- og unglingabók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt 2013 hafa aðeins fjórar þeirra rúmlega hundrað bóka sem tilnefndar hafa verið á öðrum tungumálum en íslensku komið út í íslenskri þýðingu. Þetta eru Öll með tölu eftir Kristin Roskifte frá Noregi (vann 2019), Tréð eftir Bárð Oskars- son frá Færeyjum (vann 2018), Brúnar eftir Håkon Øvreås frá Noregi sem Øyvind Torseter mynd- lýsti (vann 2014) og Flata kanínan eftir Bárð Oskarsson (tilnefnd 2014). Yfirlýst markmið verðlauna Norð- urlandaráðs er að auka áhuga á nor- rænu menningarsamfélagi með því að vekja athygli á listaverkum sem skarað hafa fram úr auk þess sem umhverfisverðlaunin eru veitt fyrir sérstakt framlag til þess að auka sjálfbærni á Norðurlöndum. List- verðlaununum er þannig ætlað að vekja athygli á kvikmyndum, tónlist, bókmenntum og tungumálum grannþjóðanna sem og menningar- legri samkennd þeirra. Tónlistina má oftast nálgast á streymisveitum og Bíó Paradís á hrós skilið fyrir að hafa á umliðnum árum sýnt til- nefndu kvikmyndirnar textaðar. Bækur rata hins vegar sjaldnast til lesenda utan síns málsvæðis nema fyrir tilstilli vandaðra þýðinga. Því er enn fullt tilefni til að skora á jafnt ráðamenn og útgefendur að huga betur að þessum málum, enda hafa á umliðnum árum verið tilnefndar fjöl- margar afburðabækur sem ættu fullt erindi við íslenska lesendur. Seinni kynningin á tilnefndum bókum til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021 Hvað ber framtíðin í skauti sér? Ævintýraför Ramona og Skrot bjarga málum. Hjartahlý Nágrann- inn í heimsókn hjá litlu fjölskyldunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.