Morgunblaðið - 30.10.2021, Síða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef fylgst með tónlistarferli Ólafs frá
upphafi og rakst meðal annars á nítján
ára gamalt viðtal sem ég átti við hann fyr-
ir blað þetta, ungur blaðamaðurinn eða a.m.k.
yngri. Ólafur yngri líka en við erum á svipuðu
reki. Tilefnið var önnur plata Stafræns Hákons, Í
ástandi rjúpunnar, en … eignast jeppa hafði þá
komið út árinu á undan. Báðar plöturnar press-
aðar á heimagerða „brennda“ diska. Á þessum ár-
um, um og upp úr 2000, var hið svofellda síðrokk í
algleymingi fyrir tilstuðlan hljómsveita eins og
Godspeed you black emperor! og Mogwai og Ólaf-
ur hjó í þann knérunn.
Það er falleg einlægni,
jafnvel sakleysi, í þessu við-
tali: „Ég hef lengi verið að
smíða eitthvað niðri í kjall-
ara … Síðan kom bara ein-
faldlega að því að ég ákvað
að gera eitthvað úr þessu og
dúndra þessu út. Í stað þess
að leyfa félögunum að heyra þetta helgi eftir
helgi,“ segir hann m.a. og lýsir fyrirmyndum allt
frá Phil Collins til Glenns Branca. „Svo er ég mjög
hrifinn af sveimtónlist; Aphex Twin er náttúrlega
frábær. Svo eru Sonic (Youth) auðvitað goðin.“
Eftir þessar tvær plötur hrúgaði Ólafur út
plötum og á einum tímapunkti breyttist verkefnið
í fullskipaða sveit. Hann hefur líka gefið út undir
nöfnum eins og Calder og Per: Segulsvið og sveifl-
ast á milli hreinnar „ambient“-tónlistar og
stemma sem eru rokkbundnari, alveg í stíl við þá
áhrifavalda sem hann nefnir.
Ólafur ákvað svo að blása í alla lúðra varð-
andi endurútgáfuna á … eignast jeppa, merkir
þessi fyrstu tónlistarspor sín með afgerandi hætti.
Snotri heimalagaði geisladiskurinn er nú orðinn
að glæstri þriggja platna vínilútgáfu en auk þess
er hægt að nálgast allt heila klabbið stafrænt.
Umslagið er með þykkum kili, einfalt, og þar inni
eru þrjár plötur í einföldum nærbuxum. Á fyrstu
plötunni er upprunalega platan sem tekin var upp
á Tascam 424MKII seint á árinu 2000 og snemma
árs 2001. Á plötu tvö er svo sama plata, endur-
hljóðrituð tuttugu árum síðar í heimahljóðveri
Ólafs, Vogor Studios. Þriðja platan inniheldur svo
nýjar hljóðritanir á lögum sem aldrei voru kláruð
á sínum tíma auk þriggja laga frá 2001 sem er
bara leyft að standa. Ekki nóg með það, heldur
lúrir líka sjö laga endurhljóðblöndunarútgáfa
(„remixed“) af plötunni í netheimum hvar aðilar
eins og Futuregrapher, Kippi Kaninus og Ruxpin
véla um lögin.
Svona æfingar, að taka upp eigið efni á nýjan
leik áratugum síðar eins og Ólafur gerir, er gert
annað slagið í poppheimum. Útkoman er alls
kyns. Stundum óþarfi þar sem engu er bætt við.
Stundum verða lögin sprúðlandi fersk við þetta en
á sama tíma æmta aðdáendur og skræmta og vilja
ekki að hróflað sé við frumgerðunum. Merkileg
… gefur út plötu
þessi krafa neytenda að höfundar eigi helst ekki
að fikta í verkum sem eru þó þeirra hugarsmíð.
Í tilfelli Ólafs er þetta bara mjög dægilegt,
jafnvel notalegt. Það fyrsta sem ég tek eftir er að
hljómurinn á upprunalegu plötunni er fínn og lög-
in hin bestu. Platan hefur staðist tímans tönn og
er ágætis birtingarmynd þeirra strauma sem í
gangi voru í bílskúrum Íslands á þessum tíma.
Nýju útgáfurnar eru þá ekki það ólíkar. Jú, enn
betri hljómur vissulega, feitari og áhrifameiri. Og
svo er eins og Ólafur svona leyfi sér að leika sér að
þessum smíðum sínum, án þess þó að fara of ræki-
lega út af sporinu. Þetta er eins og að fylgjast með
manni velta eigin sköpunarverki á milli fingra sér
löngu síðar, glotta í kampinn og minnast.
Ég hlakka mikið til þegar fimmfalda útgáfan
af Í ástandi rjúpunnar kemur út!
»
Þetta er eins og að fylgjast
með manni velta eigin sköpun-
arverki á milli fingra sér löngu síð-
ar, glotta í kampinn og minnast.
Síðrokkari Ólafur Örn Josephsson hefur
verið iðinn við kolann undanfarin 20 ár.
Stafrænn Hákon er sólóverkefni og stundum hljómsveit Ólafs Arnar Josephssonar. Vegleg afmælisútgáfa af
fyrstu plötu hans, … eignast jeppa, kom út fyrir stuttu þar sem öll platan er meðal annars endurhljóðrituð.
„Ó, veður“ er heiti einkasýningar á
verkum Hrafnhildar Ingu Sigurð-
ardóttur sem verður opnuð í Gallerí
Fold við Rauðarárstíg í dag, laug-
ardag, kl. 14.
Í verkunum á sýningunni fer
Hrafnhildur „um nýjar og gamlar
slóðir í verkum sínum; sem eins og
veðrið koma sífellt á óvart“, segir í
tilkynningu. Þetta er fimmta sýn-
ing hennar í Gallerí Fold en hún
hefur líka haldið fjölda annarra
sýninga. „Sjónarmiðja Hrafnhildar
Ingu er íslenskt veður, oftast í sín-
um fegursta og hættulegasta ham
þegar kulvindar geisa og nepjan
blæs. Haf, himinn, land. En stund-
um heldur grandvör nálægð við
landið um pensilfax gæðingsins,“
segir meðal annars um verkin.
Morgunblaðið/Eggert
Listakonan Hrafnhildur Inga Sigurðar-
dóttir sýnir ný málverk í Gallerí Fold.
Veðurhamur í verk-
um Hrafnhildar
Eygló Harðar-
dóttir mynd-
listarmaður á
stefnumót við
sýningarrými og
verkstæði gull-
smiðanna í
Smiðsbúðinni,
Geirsgötu 5a, á
sýningu sem
verður opnuð
þar í dag, laugardag, kl. 14.
Frá opnun Smiðsbúðarinnar
hafa myndlistarmenn reglulega
tekið yfir rýmið, sýnt verk og átt
samtal við umhverfi gullsmið-
anna.
Eygló hefur haldið fjölda sýn-
inga, hér heima og erlendis, en
hún tekst í sínum verkum á við
hefðbundnar hugmyndir um mál-
verkið þar sem tvívíðir fletir
verða að þrívíðum formum.
Eygló sýnir í
Smiðsbúðinni
Eygló Harðardóttir