Morgunblaðið - 30.10.2021, Qupperneq 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 2021
Hönnunarverðlaun Íslands fyrir árið
2021 voru afhent við hátíðlega athöfn í
Grósku í gær og hlutu þau grafíski
hönnuðurinn Sigurður Oddsson,
myndhöggvarinn Matthías Rúnar
Sigurðsson og þrívíddarhönnuðurinn
Gabríel Benedikt Bachmann fyrir
verkefnið Hjaltalín - 8, hljómplötu
hljómsveitarinnar Hjaltalín sem ber
titilinn 8.
Segir í tilkynningu að um sé að
ræða „tímalaust tímamótaverk í
myndrænni og þrívíðri nálgun“ og að
við hönnun plötunnar hafi Sigurður,
grafískur hönnuður og listrænn
stjórnandi verksins, velt upp hug-
myndum um varanleika og hlutgerv-
ingu tónlistar í samtali og samvinnu
við myndhöggvarann Matthías Rúnar
Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn
Gabríel Benedikt Bachmann.
„Í meðförum teymisins er hljóð-
heimur sköpunar hlutgerður sem
úlfabarn, höggmynd úr basalti sem er
jafnframt teiknuð og vistuð í þrívíðu
stafrænu formi til þess að hámarka
endingartíma og auðvelda birting-
armynd þess á ólíkum miðlum. Úlfa-
barninu er ætlaður endanlegur hvílu-
staður hjá Úlfarsfelli, sem þrívíður
minnisvarði um tilvist útgáfunnar,
sem nær langt umfram þá sem tíðk-
ast hefur í plötuútgáfu til þessa,“ seg-
ir í tilkynningu og að það sé mat dóm-
nefndar verðlaunanna að hönnun
plötuumslags og heildarútfærsla 8 sé
einstaklega sterkt heildrænt verk og
metnaðarfullur minnisvarði um sam-
spil tónlistar og hönnunar til fram-
tíðar.
Fögur form og næmni
Heiðursverðlaunahafi ársins er
Gunnar Magnússon, húsgagnahönn-
uður og innanhússarkitekt, og tóku
afkomendur hans á móti verðlaunum
fyrir hans hönd þar sem hann átti
ekki heimangengt.
Í umsögn dómnefndar segir að höf-
undareinkenni Gunnars séu fögur
form og næmni fyrir efnisnotkun í
bland við notagildi og vandaða smíð,
snilldarlausnir sem byggi á einfald-
leika og virðingu fyrir efninu. Verk
Gunnars eru sögð auðþekkjanleg,
geometrísk form áberandi og gleði og
leikur skíni gjarnan í gegn. Yfir fjöru-
tíu ára starfsferill Gunnars spannar
afar fjölbreytt verk að umfangi og
skala og má af einstökum verkum
nefna skákborðið sem hann hannaði
fyrir einvígi Fischer og Spasskíj árið
1972. Gunnar hefur tekið þátt í fjölda
sýninga og unnið til alþjóðlegra verð-
launa á farsælum ferli sínum.
Viðurkenning fyrir bestu fjárfest-
ingu í hönnun var einnig veitt í gær
og hlaut hana fyrirtækið CCP Games
sem hefur gefið út margverðlaunaða
fjölspilunarleiki á borð við EVE On-
line og Dust 514.
8 hlaut Hönnunarverðlaun Íslands
- Gunnar Magnús-
son hlaut heiðurs-
verðlaun og CCP
viðurkenningu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hátíðarstund Verðlaunahafar í Grósku í gær þar sem Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent.
Þriðji dagur tónlistarhátíðarinnar WindWorks er í dag,
laugardag, og verða haldnir tónleikar kl. 16 í Safnahúsinu á
Hverfisgötu. Tríó mun þar flytja klassískar perlur fyrir óbó,
klarinett og fagott eftir Gordon Jacob og Jacques Ibert.
Flytjendur eru þau Eydís Franzdóttir á óbó, Ármann
Helgason á klarínett og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fa-
gott. WindWorks er ný tónlistarhátið helguð blásturs-
hljóðfærum og skipulögð af tónlistarhópnum Aulos Flute
Ensemble.
Listrænn stjórnandi og stofnandi er flautuleikarinn Pa-
mela De Sensi.
Perlur fyrir óbó, klarinett og fagott
Pamela De Sensi
Sýningin Abrakadabra – töfrar sam-
tímalistar verður opnuð í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag, laug-
ardag, kl. 14. Segir á vef safnsins að sjá
megi töfra samtímalistar á skemmti-
legri sýningu fyrir alla sem vilji sjá ný
og spennandi verk eftir núlifandi lista-
menn. Markmiðið sé að gera heim sam-
tímalistar aðgengilegan og unglingar,
ungmenni og allir sem séu forvitnir um
samtímalist því sérstaklega velkomnir.
Meðal þeirra sem verk eiga á sýning-
unni eru Anna Júlía Friðbjörnsdóttir,
Anna Líndal, Egill Sæbjörnsson, Hildi-
gunnur Birgisdóttir, Hrafnhildur Arn-
ardóttir/ Shoplifter, Hreinn Friðfinns-
son, Karin Sander, Leifur Ýmir
Eyjólfsson, Margrét H. Blöndal, Ólöf
Nordal, Rúrí og Steingrímur Eyfjörð.
Töfrar samtímalistar á nýrri sýningu
Einn sýnenda Margrét H. Blöndal.
Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Tómas
Guðni Eggertsson píanóleikari munu í dag, laug-
ardag, halda ljóðatónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík
sem hefjast kl. 16. Á efnisskrá eru ljóðaflokkarnir
Frauenliebe und -leben op. 42 eftir Robert Schumann
við ljóð Adelberts von Chamisso og Haugtussa op. 67
eftir Edvard Grieg við ljóð Arnes Garborg. Miðasala
fer fram við innganginn og á tix.is og er aðgangs-
eyrir 3.000 kr. Hildigunnur kemur reglulega fram
sem einsöngvari og hefur verið áberandi í
kirkjutónlistarsenunni. Tómas hefur starfað víða
sem píanókennari, blásarakennari og organisti og er
nú tónlistarstjóri Seljakirkju. Hann hefur skipulagt
söngvahátíðir, samið tónlist og útsett.
Flytja verk eftir Schumann og Grieg
Hildigunnur
Einarsdóttir
Tónlistarmaðurinn Linus Orri Gunnarsson Ceder-
borg og söngkonan Ragnheiður Gröndal halda tón-
leika í dag, laugardag, í Borgarbókasafninu í Spöng-
inni og hefjast þeir kl. 13. Í tilkynningu segir að
Linus muni stinga kvæðalögum í samband og hræra í
vikivökum með fulltingi Ragnheiðar.
Linus leikur á fjölda hljóðfæra og hefur hann sjálfur
búið til sum þeirra en hann starfar sem
handverksmaður. Mun hann leika á nýsmíðuð hljóð-
færi úr tilraunastofu sinni á tónleikunum. Linus er í
stjórn Kvæðamannafélagsins Iðunnar og er auk þess
einn skipuleggjenda þjóðlagahátíðarinnar Vöku
Linus Orri
Gunnarsson
Kvæðalögum stungið í samband
Fimir tangódansarar svifu á fimmtudagskvöldið var
fram hjá listaverkum, sýnendum og gestum á Torgi –
listmessunni á hlöðulofti Korpúlfsstaða. Þessari fjöl-
breytilegu sýningu lýkur nú um helgina en þar má sjá –
og kaupa ef áhugi er á – verk eftir marga félaga SÍM,
Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lipur dansspor innan um listaverkin
Þegar níutíu ár
voru í fyrra frá
fæðingu Hall-
bergs Hallmunds-
sonar (1930-2011),
skálds og þýð-
anda, stóð til að
hafa dagskrá hon-
um til heiðus en
því var frestað
vegna veirufar-
aldursins. Nú er
komið að samkomunni sem verður á
morgun, sunnudag, kl. 14 í Gunn-
arshúsi, Dyngjuvegi 8.
Hallbergs verður minnst og lesin
ljóð, bæði ljóð eftir Hallberg sjálfan
og úrval úr þýðingum hans. Umsjón
með dagskránni hefur Árni Blandon.
Léttar veitingar verða í boði og þá
segir í tilkynningu að nokkrar af bók-
um Hallbergs fáist gefins á staðnum.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Minnast
Hallbergs í
Gunnarshúsi
Hallberg
Hallmundsson
Kór Breiðholtskirkju heldur í dag,
laugardag, tónleika undir yfirskrift-
inni „Andakt í tilefni allraheilagra-
messu“. Um er að ræða aðra tónleika
vetrarins í 15:15-tónleikasyrpunni í
Breiðholtskirkju. Auk kórsins koma
fram Ásta Sigríður Arnardóttir
sópran, Fjölnir Ólafsson barítón og
Steingrímur Þórhallsson orgelleik-
ari undir stjórn Arnar Magnússonar.
Raddþjálfari kórsins er Marta Guð-
rún Halldórsdóttir. Á dagskrá tón-
leikanna eru tvö verk sem tengjast
allraheilagramessu. Frumflutt verð-
ur mótettan Justorum animae eftir
Steingrím Þórhallsson, en verkið
samdi tónskáldið sérstaklega fyrir
kórinn. Einnig verður flutt Requiem
eftir Gabriel Fauré fyrir kór, ein-
söngvara og orgel.
Kór Breiðholtskirkju Frumflutt verður verk eftir Steingrím Þórhallsson.
Kór Breiðholtskirkju
á 15:15-tónleikum