Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 22.09.2021, Qupperneq 1
Grísalæri 598KR/KG ÁÐUR: 1.495 KR/KG Nautalundir Danish Crown - frosið 2.999KR/KG ÁÐUR: 4.999 KR/KG 60% AFSLÁTTUR 40% AFSLÁTTUR GOTT FYRIR HELGINA 23.--26. SEPTEMBER 32 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM ALLT FYRIR ÞIG ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR ASTA@ALLT.IS 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR UNNUR@ALLT.IS 560-5506 GUNNUR MAGNÚS DÓTTIR GUNNUR@ALLT.IS 560-5503 JÓHANN INGI KJÆRNESTED JOHANN@ALLT.IS 560-5508 DÍSA EDWARDS DISAE@ALLT.IS 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR ELINBORG@ALLT.IS 560-5509 PÁLL ÞOR­ BJÖRNSSON PALL@ALLT.IS 560-5501 Eldgosið í Fagradalsfjalli hefur staðið yfir í hálft ár en það hófst að kvöldi 19. mars. Í síðustu viku, skömmu fyrir hálfs árs afmælið, náði það einnig þeim áfanga að vera langlífasta eldgos á 21. öldinni þegar það hafði staðið í 181 sólarhring. Eldra met átti eldgosið í Holuhrauni sem stóð í 180 daga. Eldgosið er í bakgarði Grindavíkur og frá því það hófst hafa yfir 300.000 manns lagt leið sína að gosstöðvunum. Gosið hefur hegðað sér á ýmsa máta frá því það hófst. Á dögunum tók það níu sólarhringa hvíld er hófst svo að nýju með miklu hraunrennsli í Geldingadölum. Mælingar sýna að í síðustu viku var rennslið að jafnaði um 16 rúmmetrar á sekúndu. Eldgosið tók sér aftur hvíld á sunnudag og var enn í pásu þegar Víkurfréttir fóru til prentunar síðdegis á þriðjudag. Allra augu eru á því hvað er að gerast í Geldingadölum en þar eru miklar hrauntjarnir. Ef þær bresta getur orðið mikið framskrið á hrauni niður í Nátthaga og jafnvel yfir leiðigarð og í Nátthagakrika. Jón Steinar Sæmundsson, ljósmyndari Víkurfrétta í Grindavík, tók með- fylgjandi mynd af eldstöðinni í Fagradalsfjalli um nýliðna helgi með þéttbýlið í Grindavík, nafla alheimsins, í forgrunni. >> Sjá nánar á síðu 4 í blaðinu. Með eldgos í bakgarðinum í hálft ár Ökumaður sem lög- reglan á Suðurnesjum tók úr umferð vegna gruns um fíkniefna- akstur reyndist vera með hníf, hnúajárn og lyf í bifreið sinni. Sýnatökur staðfestu neyslu fíkni- efna. Sami ökumaður hafði verið tekinn úr umferð í gærmorgun af sömu sökum. Í bifreið hans þá fann lögregla meint fíkniefni. Annar ökumaður, grunaður um fíkniefnaakstur fyrr í vikunni, reyndist vera með kannabisefni og neyðarblys í bifreið sinni. Hann hafði áður verið sviptur ökurétt- indum ævilangt. Þriðji ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum kannabis- efna. Hann var með kannabis í fórum sínum. Dópaður með hníf og hnúajárn Leit var gerð að manni við gos- stöðvarnar í síðustu viku. Tveir erlendir ferðamenn voru saman á svæðinu. Þegar annar þeirra skilaði sér ekki á bílastæðið við Fagradalsfjall eftir þriggja stunda bið hins var haft samband við lög- reglu. Sá sem saknað var hafði verið illa klæddur og lítt búinn í langa göngu í slæmu veðri. Meðal annars var hafin neyðarleit á far- síma hans. Maðurinn fannst svo nokkru síðar heill á húfi á farfugla- heimili á höfuðborgarsvæðinu. Hann botnaði ekkert í hvers vegna hans hefði verið leitað. Félaga hans var tilkynnt að hann væri kominn í leitirnar. Týndist við gosið en fannst á farfuglaheimili ára bið á enda16BIKARINN Í LJÓNAGRYFJUNA MIðvIKUdAGUR 22. septeMBeR 2021 // 35. tBL. // 42. áRG.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.