Víkurfréttir - 27.10.2021, Blaðsíða 6
augNablik Með JóNi SteiNari
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Í þessum pistlum mínum þá
hef ég skrifað mikið um veiðar
báta frá þessum helstu stöðum á
Suðurnesjum, þ.e.a.s Sandgerði,
Grindavík og Keflavík.
Það er reyndar einn staður í
viðbót sem líka á sér útgerðarsögu á
Suðurnesjum þótt að það hafi ekki
verið landaður afli þar síðan 2015.
Þetta er Vogar á Vatnsleysuströnd.
Lítum aðeins á útgerð frá Vogum
því hún tengist Sandgerði og
Keflavík varðandi bátana. framan
af öldum var mest um landbúnað
á Vatnsleysuströndinni og þeir
sem réru til fiskjar voru að mestu
bændur sem réru á árabátum sínum
og fóru þá stutt út og þá aðalega í
grásleppuna. Þegar togarnir fóru
að koma til Íslands voru t.d nokkrir
þeirra mannaðir með mönnum sem
voru frá Vatnsleysuströndinni, og
t.d togarinn Baldur RE sem var
gerður út frá Reykjavík á árunum
1921 til 1941 var mannaður að
mestu með mönnum frá Vatns-
leysuströnd.
En uppúr 1928 var farið að ræða
það að hvort hægt væri að stunda
vélbátaútgerð frá Vogum og var
í framhaldinu af því stofnað Út-
gerðarfélag Vatnsleysustrandar
(ÚV) árið 1930. Var samið við
skipasmíðastöð í Fredrikssund í
Danmörku um að smíða tvo báta
og fengu þeir nafnið Huginn GK
og Muninn GK. Huginn GK kom
til landsins snemma árs 1931 og
Muninn GK kom í maí 1931. Á
sama tíma og samið var um smíði
bátanna var bryggja smíðuð í
Vogum og var hún 84 metrar á
lengd og 3 metrar á breidd. Fyrstu
vertíðina árið 1931 var Huginn GK
gerður út og aflaðist vel á bátinn en
erfiðlega gekk að selja saltfiskinn
því mikið verðfall var á verkuðum
saltfiski og líka það að Muninn GK
kom mun seinna en áætlað var
gerði það að verkum að rekstur ÚV
varð mjög erfiður.
Annað áfall kom fyrir árið 1933
en þá var aftakaveður úr vestri
og á fjörunni tóku bátarnir niðri í
Vogum og skemmdist hæll Hugins
GK nokkuð mikið en Muninn GK
brotnaði mikið, báðir bátarnir fóru
í slipp en vegna þess hversu margir
bátar skemmdust í þessu veðri
dróst viðgerð á Muninn GK nokkuð.
Vegna þess hversu erfiðlega gekk
fyrsta árið hjá ÚV árið 1931, þá
hafði það áhrif á reksturinn hjá
fyrirtækinu og fór svo að lokum að
félaginu var slitið árið 1935.
Af bátunum er það að segja
að Huginn GK var seldur árið
1935 en þó innanbæjar í Vogum
og fékk nafnið Jón Dan GK. Var
hann gerður út með því nafni frá
Vogum til ársins 1945. Þaðan var
hann seldur til Grundarfjarðar
og fékk nafnið Farsæll SH, árið
1950 var hann seldur til Grinda-
víkur og fékk nafnið Sæborg GK.
Jón Dan fór aftur í Breiðafjörðinn
árið 1953 og fékk nafnið Sæborg
BA skráður í Flatey. Árið 1956
kom hann til Reykjavíkur og fékk
nafnið Sæborg RE 328 og var með
það til árins 1964 þegar báturinn
kom til Keflavíkur og fékk þar
nafnið Sæborg KE. Var hann með
því nafni í þrettán ár, fram til ársins
1977 þegar Magnús Þórarinsson
kaupir bátinn og gaf honum nafnið
Bergþór KE 5. Magnús var mikill
aflaskipstjóri á bátunum sem voru
með þessu nafni, enn hann fórst
í hörmulegu sjóslysi á vertíðinni
árið 1988 en með honum um borð
var sonur hans, Einar Magnússon,
sem bjargaðist. Einar gerði í fram-
haldinu út í mörg ár báta sem hétu
Ósk KE og meðal annars er nú-
verandi Maron GK, gamla Ósk KE.
En áfram með Huginn GK.
Magnús átti bátinn í tvö ár þegar
hann var seldur til Grindavíkur
og fékk þar nafnið Ingólfur GK
125 en árið 1988 var hann seldur
innanbæjar í Grindavík og fékk
nafnið Fengsæll GK. Árið 1991 var
báturinn seldur til Súðavíkur og
fékk nafnið Fengsæll ÍS og það er
nokkuð merkilegt að báturinn var
gerður þar út til ársins 2003 og fór
3 róðra árið 2005. Hann liggur nú
í fjörunni í Súðavík og er orðinn 91
árs gamall og útgerðarsaga bátsins
var því alls 73 ár sem er nú með því
mesta sem gerist á Íslandi. Þessi
bátur er í dag með elstu bátum sem
eru ennþá á skrá á Íslandi.
Ég þarf að skrifa þessa sögu
í nokkrum hlutum um útgerð í
Vogum og læt því þessum fyrsta
hluta sögu útgerðar lokið enn í
næsta pistli þá höldum við áfram
með söguna og munum þá byrja á
Muninn GK, sem var hinn báturinn
sem að ÚV átti.
aFlaFrÉttir á SuðurNeSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgerð í Vogum á Vatnsleysuströnd
Himbriminn bar höfuðið lágt þegar ég læddist að honum þar sem hann lá á hreiðri
sínu og hélt ég sæi hann ekki. Þegar ég var kominn svo nálægt honum að enginn
vafi var á að ég sæi hann ekki reisti hann höfuðið upp og horfði á mig með sínum
djúprauðu og seiðandi augum. Engu líkara en hann væri að segja við mig: Ég óttast
þig ekki karlskarfur!
Margir fuglar helga sér óðal í kringum varpstað sinn. Þeir þurfa ákveðið rými
fyrir búið sitt. Á meðan t.d. bjargfuglar sitja þétt, en passa engu að síður sitt þá
er himbriminn þekktur fyrir að verja óðal sitt af mikilli hörku. Til eru sögur af
himbrimum ráðast á tófur á sundi og stinga álftir á hol við að verja óðalið sitt.
Oft er það þannig að það er aðeins eitt par himbrima á nokkuð stóru vatni.
Jón Steinar Sæmundsson
Himbrimi á óðali sínu
FIMMTUDAG KL. 19.30
HRINGBRAUT OG VF.IS
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár