Sjálfsbjörg - 29.11.1995, Blaðsíða 1
Varnarbarátta
Vonandi tekst okkur að koma vitifyrir stjómvöld, segir
Guðríður Ólafsdóttir, formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
Guðríður Ólafsdóttir: „Við verðum að reyna að sannfœra stjómmálamenn um að þetta
sé ekki rétta leiðin til spamaðar. “
Guðríður Ólafsdóttir, formaður Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra, er fædd
á Hlíðarenda i Ölfusi árið 1946 og ólst þar
upp til 18 ára aldurs. Pá fór hún í
endurhæfingu á Reykjalundi og síðan út á
vinnumarkaðinn. Hún gekk í skóla í
Hveragerði og einn vetur í Hlíðardalsskóla.
Guðríður er spastískt lömuð frá fæðingu.
Hún er gift Viðari Hörgdal Guðnasyni og eiga
þau eina uppkomna dóttur, Kristínu Björk.
Árið 1963 gekk Guðríður í Sjálfsbjörg í
Reykjavík og í maí 1967 byrjaði hún að vinna
á skrifstofu landssambandsins, sem fulltrúi
fyrir Reykjavíkurfélagið, eftir að hafa leyst af
i sumarleyfi þar árið áður. „Það tognaði nú úr
þessu starfi,“ segir Guðríður. „Ég vann sam-
fleytt í 22 ár hjá Sjálfsbjörg, fyrst í fjórtán ár
hjá landssambandinu og svo rak ég skrifstofu
Sjálfsbjargar í Reykjavik í átta ár.“
Árið 1988 hætti hún störfum hjá
Sjálfsbjörg og réðist til starfa hjá Félagi eldri
borgara stuttu síðar. Guðríður er fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Enginn í sporin hans
Jóhanns Péturs
Hún sat í stjórn Sjálfsbjargar í Reykjavik
frá 1971 og um árabil eftir það, með hléum.
Eftir að hún hætti störfum hjá Sjálfsbjörg
1988 var hún kosin vararitari landssam-
bandsins og síðar varaformaður. Þegar
Jóhann Pétur Sveinsson lést í fyrrahaust tók
Guðríður við formennsku Sjálfsbjargar.
- Var ekki erfitt að taka við formennsku á
slíkum tímamótum?
- Það fetar enginn í fótsporin hans
Jóhanns Péturs, segir Guðríður. - Ég held að
það hafi verið huggun mín, að ég reyndi
aldrei að keppa að því að standa jafnfætis
honum.
Sjálfsbjörg er auðvitað fyrst og fremst
hagsmunasamtök. Skyldi Guðríður hafa
orðið vör við miklar breytingar á þeim drjúga
tíma, sem hún hefur starfað í þágu
Sjálfsbjargar?
-Já, hinn almenni félagsmaður er farinn
að sækja félagsstarf sitt miklu víðar í
þjóðfélaginu en áður var. Þegar ég var að
byrja að starfa fyrir samtökin, þá voru
samkomur hjá Sjálfsbjörg oft einu viðburðir
sem hreyfihamlaðir sóttu. Margir þeirra fóru
ekkert annað.
- Eru hreyfihamlaðir allflestir í Sjálfs-
bjðrg?
- Nei, stór hópur þeirra er ekki í
Sjálfsbjörg, þvi miður. Ástæðan er m.a. sú, að
sprottið hafa upp fleiri félög hreyfihamlaðra,
eins og MS-félagið, SEM-samtökin og MND-
félagið. Nú fyrir skömmu voru einmitt
stofnuð ný samtök í Sjálfsbjargarhúsinu,
Samtök Perthes-sjúklinga. Sum þessara sam-
taka eru að hugleiða samstarf við Sjálfsbjörg.
Ekki lengur þjóðarsátt
Ég tel að öll þessi félög verði að taka
höndum saman t hagsmunabaráttunni. Það
sem af er þessum áratug hafa hreyfihamlaðir
orðið að þola æðimikla réttindaskerðingu og
hækkun þjónustugjalda, bæði af hálfu rik-
isins og margra sveitarfélaga. Þar má nefna
tekjutengingu á heimaþjónustu og ýmislegt
fleira.
Fyrir nokkrum árum ríkti þjóðarsátt um
að fólk ætti að greiða til samneyslunnar á
meðan það væri heilbrigt, en síðan fengi það
stuðning ef eitthvað bjátaði á í lífinu.
Þessi sátt er ekki lengur fyrir hendi. Nú
er rætt um að eðlilegt sé að þjónustugjöld séu
greidd. Hreyfihamlaðir hafa viljað fá stjórn-
völd til að viðurkenna þann umframkostnað,
sem af fötlun þeirra hlýst og er býsna mikill.
Það þykir ekki lengur sjálfsagt að svo sé gert.
Fyrir síðustu Alþingiskosningar sendi
Sjálfsbjörg öllum stjórnmálaflokkum bréf
með nokkrum spumingum. I svömm allra
flokka kom skýrt fram, að það bæri að taka
tillit til þess umframkostnaðar sem fatlaðir
yrðu fyrir.
Eftir að fjárlög vom lögð fram nú í haust,
sendum við mótmælaályktanir til allra
Alþingismanna og annarra, sem málið varðar.
Baráttunni verður haldið áfram með við-
ræðum og samningaumleitunum við stjórn-
vðld.
Fjárlög skerða tekjur
- Hvar bitnar skerðingin helst á Sjálfs-
bjargarfélögum?
- Ef við tökum það sem kemur fram í
fjárlögum, þá er fyrst að nefna aftengingu
bótagreiðslna við almenn laun í landinu. Með
því móti verða tekjur lífeyrisþega skertar um
samtals 450 milljónir króna og lækka
fjárhæðir eingreiðslu jafnframt.
í öðru lagi boðar frumvarpið skertar
tekjur lífeyrisþega um samtals 285 milljónir
með því að fjármagnstekjur skerði tekju-
tengdar bætur og með sérstakri skerðingu hjá
þeim sem ekki hafa greitt í lífeyrissjóð eftir að
það varð lagaskylda. Þar óttumst við um
lítinn hóp fatlaðs fólks, sem hefur aldrei
fengið leyfi til að greiða í lífeyrissjóði, en
þetta er fólk sem hefur unnið á vernduðum
vinnustöðum.
í þriðja lagi er ætlunin að lækka
heimildarbætur lifeyrisþega um samtals 250
milljónir króna. Þessi áform munu, ef þau
komast til framkvæmda, skerða tekjur
lífeyrisþega um nær einn milljarð króna, eða
sem svarar ríflega 7% af heildarupphæð til
bótaþega.
Þetta þrennt kemur fram í fjárlagafrum-
varpinu, en auk þess hefur heilbrigðisráð-
herra lýst yfir, að lækka eigi styrki hreyfi-
hamlaðra til bifreiðakaupa og lengja úthlut-
unartíma úr þremur til fjórum árum í fimm.
Bifreiðalán burt?
Á fundi tryggingaráðs 5. október sl. var
samþykkt að hætta að lána til bifreiðakaupa
fatlaðra. Við, sem erum hreyfihömluð, höfum
kallað þetta endurkræfan styrk. Fyrir þennan
styrk höfum við borgað 1% vexti til þriggja
ára og hann er verðtryggður. Nú hefur trygg-
ingaráð ákveðið að óeðlilegt sé að það sjái um
bifreiðalán og vísar okkur út á almennan
markað, sem er mun dýrari. Við óttumst að
margir muni freistast til þess að taka hærri
lán en þeir ráða við af sínum litlu tekjum.
Heilbrigðisráðherra hefur nú reyndar beðið
tryggingaráð að endurskoða afstöðu sína í
þessu máli, en þó er enn óvíst hvort lánin
verði áfram við lýði til frambúðar.
Niðurskurður bílastyrkja
Heilbrigðisráðherra hefur viðurkennt, að
fyrirhugað sé að skera heildarfjárhæð
bilastyrkja niður um 100 milljónir, úr 160
milljónum í 60 milljónir króna. Á sama tíma
er það ljóst, að ef styrkir til bílakaupa væru
framreiknaðir samkvæmt þeim hækkunum
sem orðið hafa á verði bifreiða undanfarin
tvö ár, þyrfti hærri styrkurinn að hækka um
136 þúsund og lægri styrkurinn um 46
þúsund kr. til þess að halda verðgildi sínu frá
árinu 1993. Á þessum tíma hafa bílar hækkað
í verði um 19,5%.
Þá á að taka upp innritunargjald á
sjúkrahús. Slík ráðstöfun bitnar mjög illa á
öryrkjum og lífeyrisþegum.
- Hvað getur Sjálfsbjörg gert til að spyma
viðfótum?
- Við verðum að reyna að sannfæra
stjórnmálamenn um að þetta sé ekki rétta
leiðin til sparnaðar. Vonandi tekst okkur að
koma vitinu fyrir stjórnvöld í þessum efnum,
áður en skaðinn er skeður.
Fatlaðir og ófatlaðir félagar
í Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, eru
rúmlega 3000 félagsmenn, fatlaðir og ófatl-
aðir. Þeir síðarnefndu voru áður kallaðir
styrktarfélagar, en eru nú réttir og sléttir
félagsmenn. „Við höfum verið að þokast í átt
til þess, að allir hafi jafnan rétt innan sam-
takanna, hvort sem um fatlaða eða ófatlaða er
að ræða,“ segir Guðríður.
Hún segir að nú sé að koma upp mjög
sterk og öflug ungliðahreyfing innan
Sjálfsbjargar. „Þetta er fólkið sem tekur við af
okkur sem höfum verið í fremstu víglínu og
það er afar mikilvægt að fá það inn í starfið
með okkur,“ segir Guðríður.
- Er Sjálfsbjargarhúsið orðið úrelt að ein-
hverju leyti?
- Stjórn Vinnu- og dvalarheimilisins
hefur unnið að því að gera húsið heimilis-
legra en það var. Auðvitað er húsið bam síns
tíma, en við verðum að reyna að laga það að
þróuninni.
Ríkið greiddi okkur húsaleigu í sautján
ár. Það var gert með vitund og vilja heil-
brigðisráðuneytisins og samþykkt, að það
væri rekstrarkostnaður heimilisins, en leigan
gekk til Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
Við höfum ekki fengið þessa húsaleigu nú í
nokkur ár og af þeim sökum hefur ríkinu
verið stefnt fyrir dóm. Málið verður tekið
fyrir fljótlega. Við vonum að þar getum við
sótt sanngjarnan rétt okkar.
- Hvernigfer fjáröflun Sjálfsbjargar fram?
- Aðalfjáröflunin er happdrættismiða-
sala. Síðan erum við að byggja upp holl-
vinakerfi, þar sem fólk styður við bakið á
okkur með mánaðarlegum eða árlegum fram-
lögum. Loks erom við með klemmusölu einu
sinni á ári. Þá höfum við fengið fjárveitingu á
fjárlögum undanfarin ár, rúmar þrjár
milljónir króna.
Varnarbarátta • algleymingi
- Hver eru helstu framtíðarverkefnin?
— Sjálfsbjörg er fyrst og fremst hags-
munafélag og fjárráðin eru takmörkuð. Við
verðum að leggja aðaláherslu á baráttumálin
og getum þar af leiðandi lagt rainna su rf i að
byggja samtökin upp innan frá. Varnar-
baráttan er í algleymingi hjá Sjálfsbjörg núna.
- Að lokum, Guðriður, - af því að þú ert að
starfa bœði fyrir aldraða og öryrkja; nú, þegar
ráðist er á kjör þessara hópa, er hugsanlegt
eitthvert samstarf meðal þeirra og jafnvel fleiri
um aðgerðir eða þrýsting á stjómvöld?
- Landssamband aldraðra, sem hefur 38
félagsdeildir innan sinna vébanda, Öryrkja-
bandalag íslands, ASÍ, BSRB og BHM hafa
samstarf sín á milli og við bindum miklar
vonir við það hvað varðar kjarabaráttuna.
Formenn þessara samtaka eiga sæti í sam-
starfsnefnd og hittast reglulega. Haldreipi
okkar er innan verkalýðshreyfingarinnar og
samtakamátturinn skiptir öllu máli.