Sókn - 19.04.1934, Síða 3

Sókn - 19.04.1934, Síða 3
V leya nauðsynlegt bæði vegna ólöglega afengisins og eins al- menns öryggis í umferðinni, skal ég geta þess, að s. 1. sunnu- dag var ég að skoða nokkra bila.atbuga ökuskírteini, hemlu- útbúnað bílanna o. fl. Af 80 bilum, sem skoðaðir voru, varð að vísa 61 heim aftur. Af sér- stökum orsökum var leitað að áfengi í tveim bílum og fannst heimabruggað áfengi i öðrum, sem kom austan af Stokkseyri. — Þetta eina dæmi sýnir á- þreifanlega, hvað þörfin krefur í þessum efnum. Ástandið í Rangárvallasýslu. Er yðar kunnugt um hvern- ig ástandið er í Rangárvalla- sýslu og Skaftafellssýslum ? »Eitthvað mun vera um bruggstaði í Vestur-Skaftafells- sýslu. Að minnsta kosti var kvartað, og það ekki svo lítið, um drykkjuskap við Markar- fljótsbrúna í fyrra, á meðan verið var að byggja hana, og var kennt um heimabruggi, sem þangað væri flutt úr Vestur- Skaftafellssýslú. en þó einkurn úr Rangárvallasýslu. — í Rang- árvallasýslu er óhætt að segja að ástandið sé mjög slæmt og margir hrepparalgerlega í hönd- um bruggaranna. Enda er þar ekkert gert til þess að afstýra þvi. Bruggið þrifst þar svo að segja undir handarjaðri sýslu- mannsins, og þó einhver brugg- ari sé tekinn, þá er eins og ekkert verði úr neinu — þann- ig var tekinn maður þar í haust, en hvort það mál hefir fengið afgreiðslu, og þá hverja, er ókunnugt. Eins og nú stend- ur þar i sýslunni, þýðir líka mjög lítið fyrir löggæzlumann að fara þangað, sökum þess að sýslumaður virðist helzt SÓKN ekkert vilja gera — né láta gera — til þess að eyða því ástandi, sem þar er í þessu efni. Hvernig er það annarsstaðar á landinu ? Er yður kunnugt um, hvernig tekið er á þessum málum ann- arsstaðar í landinu? í Borgarfirði er talið að brugg- staðir séu þó nokkrir. 1 vetur (um miðjan febr.) tók lögr. á Akranesi menn i bíl, sem höfðu áfengisflösku meðferðis, sögð- ust þeir hafa fengið hana í Hvítanesi. Lögreglustjóri gerði þá húsrannsókn þar eftir um- boði frá sýslumanni og fann afengisflösku. Annars er sagt likt at eftirliti þar og í Rang- árvallasýslu. Og lögæzlumaður hefir ekki starfað þar. Sama mun vera að segja um Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýslu. Þar vita menn lika um brugg, t. d. á Búðum o. fl. st. í Dala- sýslu hafa einhverjir menn verið teknir og dæmdir, en talinn misbrestur á, að dóm- unum sé fullnægt. Vesturkjálkinnhefiralltafver- ið talinn góður í þessum mál- um, eiginlega hefir aldrei verið neitt verulegt um brugg þar, nema helzt eitthvað á Patreks- firði. Á Norðurlandi mun á- standið vera líkt og í fyrra- haust. Einhverjir bruggstaðir eru til í Húnavatnssýslu — einkum i Vestursýslunni — og í Skagafírði nokkrir. 1 Fijótun- um komst eins og kunnugt er upp um bruggara um nýárs- leytið í vetur. Talið er að brugg hafi farið stór-minnkandi á Akureyri og i Eyjafirði, og stendur það vitanlega í sam- bandi við aukna árvekni i lög- gæzlunni þar um slóðir. Af Austfjörðum hefir ekkert heyrst 63 um brugg nema ósannaður orðrómur um að það eigi að vera til á Seyðisfirði og Norð- firði. En aftur á móti hefir verið talsvert um smygl þar eystra og eins norðanlands, þar sem engin tollgæzla er. Það sem hægt er að gera. Hvað álítið þér nú að gera megi, fram yfir það, sem nú er gert, til að upprœtta leyni- brugg og tollsvik ? »Að skerpa eftirlitið, eink- um með farartækjum. Það er nauðsynlegt að skoðun fari fram á strandferðaskipunum, því með þeim er sent bæði á- fengi og aðrar tollsviknar vör- ur, t. d. frá Norðurlandi og hingað, eða vestur á firði, sömuleiðis er heimabruggað á- fengi sent með strandferða- skipunum. Og það þarf að koma inn í lögin ákvæði um, að löggæzlu- menn geti framkvæmt rann- sókn í bílum og öðrum farar- tækjum, þegar þeim finnst á- stæða til, án þess að fyrir liggi dómsúrskurður fyrir hvert ein- stakt tilfelli eins og nú er. Og í sumum héruðum að minnsta kosti þurfa sýslumenn og hrepp- stjórar að láta málin meira til sín taka og framfylgja fyrir- mælum Iaganna til þessýtrasta«. Horfur. Hvernig segir yður hugur um framlíðina, ef áfengislög- unum verður breytt og y>sterku drykkirnira verða fluttir inn í landið ? »Eitt er víst í því sambandi: Eftirlitið verður margfalt erfið- ara viðureignar. — Eg gæti að vísu hugsað mér, að leyni- bruggið hyríi, bæði við það, og líka sökum þess, sem þegar er i

x

Sókn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.