Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, +354 525 4000, www.hi.is
Háskóli Íslands leitar að öflugum leiðtoga fyrir Heilbrigðisvísindasvið sem er eitt af fimm
fræðasviðum háskólans. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er
æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess.
Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Ráðið verður í starfið til fimm ára frá 1. júlí 2022. Á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera
háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu
forseta fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni
umsögn sérstakrar nefndar um ráðninguna.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Stjórnun, útfærsla og framkvæmd stefnu
Háskóla Íslands, HÍ26, á vettvangi fræðasviðs.
· Fjármál og rekstur fræðasviðs og stofnana
sem undir það heyra.
· Gæði kennslu, rannsókna og þjónustu.
· Starfsmannamál.
· Stuðla að og styðja við öfluga liðsheild og
faglegt samstarf.
· Tengsl við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
· Stjórnsýsla og stoðþjónusta fræðasviðsins.
Hæfniskröfur
· Dósentshæfi skv. formlegu mati.
· Þekking og reynsla á alþjóðlegu
háskólaumhverfi.
· Leiðtogahæfileikar.
· Metnaðarfull og skýr framtíðarsýn.
· Rík samskiptahæfni.
· Farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála-
og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð
um framtíðarsýn umsækjanda og hvernig hann hyggst vinna
samkvæmt stefnu HÍ 2021-2026.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningu í störf við HÍ er tekið mið af jafnréttisáætlun
skólans: hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu HÍ: hi.is/haskolinn/malstefna_
haskola_islands.
Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2022
Nánari upplýsingar veitir: Ragnhildur Ísaksdóttir,
525 4355, ragnhildurisaks@hi.is.
Forseti
Heilbrigðisvísindasviðs
Langar þig að vinna á nýju og glæsilegu hjúkrunarheimili HSU á Selfossi,
þar sem allur aðbúnaður er eins og best verður á kosið?
31 #! 2( !'(2 0@4/!#&<< ><@!" ) >6#11<;4#?:1 %? 1#<.2(2!":44:1 8;..:><2(, *2! >#1
4@?( #! )=#!>42 ) #;.><264;.?>/:.-.2 :1@..:. 5/72, "2?1#..>6:, :1=&??9: %? 8;!(;.?:
"&!;! >69$4><'(;.?:1+
Við erum að leita að hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og ófaglærðum til starfa
frá og með 1. mars. Umsóknir á starfatorg.is.
Framtíðarstarf á nýjasta hjúkrunarheimili landsins
Skaftfell, myndlistarmiðstöð
Austurlands, auglýsir eftir
einbeittum, sjálfstæðum og
drífandi forstöðumanni með
brennandi áhuga á myndlist.
Skaftfell er ein af elstu og öflugustu stofnunum
um nútímamyndlist á landsbyggðinni. Starf-
semi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og
framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim
markmiðum framfylgt með öflugri og faglegri
sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og
fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðung-
num.
Starfið felur í sér yfirumsjón með sýningardagskrá,
almenna stjórnun, daglegan rekstur og ábyrgð á
starfsemi miðstöðvarinnar. Nauðsynlegt er að nýr
forstöðumaður hafi búsetu á Seyðisfirði.
Hæfniskröfur:
• Góð fagþekking á innlendum sem erlendum
myndlistarheimi
• Reynsla á sviði menningarstjórnunar
• Þekking og reynsla af menningarmálum almennt
• Frjó og skapandi hugsun
• Góð samskiptafærni og forystuhæfileikar
• Vönduð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
• Sveigjanleiki og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
BHM.
Allar frekari upplýsingar veitir Hanna Christel
Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður, í síma 472 1632
eða á netfanginu skaftfell@skaftfell.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2022.
Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá og stutt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
í starfið. Umsóknir berist á netfangið
admin@skaftfell.is