Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC 2 fyrir1 af margskiptum glerjum TILBOÐ J anúar og febrúar geta verið frekar erfiðir mánuðir þar sem lítið er um að vera og skammdegið, óveðrið og lægðir ríkjandi. Mér finnst æðislegt að við erum strax farin að sjá bjarta og litríka förðun sem sýnir sig oft ekki fyrr en yfir hásumar. Það sem heillar mig er að það þarf alls ekki að hafa mikið fyrir förðuninni, ljómagefandi farði, náttúrulegar freknur, litaður augnblýantur og bjart gloss. Meira þarf ekki til,“ segir Björg. Hún segir að áherslan sé á bjarta og náttúrulega húð og segir enn- fremur að förðunin verði aldrei góð ef fólk hugsi ekki vel um húðina sjálfa. „Í þessum miklu veðrabreytingum sem við búum við er mik- ilvægasta skrefið í förðuninni að gefa húðinni dúndurraka sem endist allan daginn og heldur förðuninni ferskri og fallegri. Eitt af mínum uppáhaldskremum þessa stundina er Ultra Facial frá Kiehl‘s sem ver húðina fyrir rakatapi yfir daginn svo förðunin helst lýtalaus þar til þú þrífur húðina að kvöldi. Touche Éclat-ljómafarðinn frá YSL er minn „go to“ og hefur verið síðan hann kom endurbættur í fyrra. Hann hefur miðlungs og út í fulla þekju sem er samt svo náttúruleg og ljóm- andi á húðinni. Fyrir jafnari húðlit í kringum augun og á þeim svæðum sem þurfa meiri þekju nota ég Touche Éclat-hyljarann, formúlurnar renna full- komlega saman og gefa þetta unglega og bjarta ljómaútlit,“ segir hún. Fyrir þá sem vilja enn meiri frískleika í húð og leggja aðaláhersluna á hana mælir Björg með Teint Idole Ultra Wear skyggingar- og kinnalita- stiftunum frá Lancôme. „Kremuð formúlan bráðnar inn í húðina sem verður lýtalaus og heilbrigð. Toppurinn yfir i-ið finnst mér svo vera að búa til smá freknur með Brow Blade-augabrúnapennanum frá Urban Decay, húðin lítur út fyrir að vera svo sólkysst og lífleg með nokkrum freknum,“ segir hún. TIPS: Þú getur líka notað skyggingar- og kinnalitastiftin sem augnskugga og augabrúnapennann í blautan, vatnsheldan og endingargóðan eyeliner. „Þar sem ég legg oft mikla áherslu á lýtalausa húð finnst mér ekki nauð- synlegt að bæta miklu á augun og með tísku 2022 í huga er nóg að nota einn augnblýant til að ramma inn augun eða nota jafnvel sem augnskugga. Lancôme kom með nýja vatnshelda, smitfría og silkimjúka augn- blýanta fyrir nokkrum mánuðum sem eru löngu orðnir uppáhalds. Drama Liquid-augnblýantarnir renna auðveldlega á augun án þess að erta og eru auðveldir í notkun og blöndun. Dragðu blýantinn eftir augnháralínunni út í vængjaða línu, teiknaðu mjóa línu í glóbuslínuna og tengdu við línuna við augnhárin eða blandaðu formúluna upp frá augnhárum fyrir „smokey“ lúkk. Það eru engar reglur um hvernig eigi að nota augnblýantinn, prófaðu þig áfram! Toppaðu augnförðunina með úfnum, nátt- úrulegum augabrúnum og léttum maskara.“ TIPS: Notaðu augnblýantinn líka í efri vatnslínu fyrir skarpara augnaráð. „Nú fer að detta í tímann þar sem margir leggja dökku, möttu og vel þekjandi varalitunum fyrir léttari og litlausari gloss. Breyttu til með björtum lit, kóral og bleiku litirnir eru að koma sterkir inn með háglans og léttri þekju. Ég nota alltaf varablýant með glossum og varalitum, bæði til að ramma varirnar betur inn, koma í veg fyrir að glossið eða varaliturinn renni til og fyrir betri endingu. Lip Styler-varablýantar frá YSL í hlutlausu litunum, nr. 20 og 70, eru mínir uppáhalds og má nota með hvaða varalit sem er. Toppaðu með glossuðum varalitum í Mademoiselle Shine-línunni frá Lancôme eða Rouge Volupté Shine frá YSL fyrir næringu, þægindi og þrýstnari varir. Ég enda hverja einustu förðun á því að setja All Nighter Setting-spreyið frá Urban Decay yfir allt andlitið. Ef þú vilt að förðunin þín endist allan daginn án þess að eyðast, bráðna eða smita mæli ég með þessu vinsæla spreyi.“ TIPS: Blandaðu einni gusu af setting-spreyinu við smábút af augnblýantinum þínum og blandaðu fyrir kremaðan, vel þekjandi og endingargóðan eyeliner eða augnskugga. Vel mótaðar auga- brúnir, þó ekki eins og teiknaðar, mikill mask- ari og ljósar varir verða áberandi núna. Ljósir varalitir í berja- lit eru vinsælir núna. Þessi ljómafarði frá YSL er í miklu uppáhaldi hjá Björgu. Teint Idole Ultra Wear skyggingar- og kinnalitastiftin frá Lancôme gefa mikinn ljóma. Þessi vara- litur frá Lancôme er með sér- lega fallegri áferð. Björg Alfreðsdóttir, förðunarfræðingur YSL á Íslandi, er ánægð með náttúrulega en litríka förðunartísk- una 2022. Hún segir um að gera að stytta biðina eftir sól og sumri með björtum og skemmtilegum litum! Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Prófaðu að setja á þig augnlýant eins og gert er á þessari mynd. Tískustraumar í förðun 2022 Björg segir að teiknaðar freknur eigi upp á pallborðið núna. Til þess er gott að nota þennan blýant frá Urban Decay. Það er nauðsynlegt að eiga vatnsheldan augnblýant eins og þessa sem eru frá Lancôme. Svona eiga varirnar að vera núna! Glans- andi og þrystnar. Þessi varalitablýant- ur frá YSL mótar var- irnar og gerir það að verkum að varalit- urinn helst betur á. Styttu biðina eftir sumrinu með björtum augnblý- öntum og berjalit- uðum varalitum Þetta krem er nýkomið til Íslands og gerir mikið fyrir húðina. Förðunin verður ekki góð nema undirlagið sé upp á 10. Þetta krem getur hjálpað til við það. Þú getur skyggt andlitið með ljómapennanum. Ljómapenninn frá YSL stendur alltaf fyrir sínu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.