Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 22
É
g er stöðugt í fjársjóðsleit og gæti búið til
listaverk úr nánast hverju sem er. Þessi list-
ræna hugsun leiðir mig áfram í hönnun og
fyrirtækjarekstri.
Ég stofnaði hönnunarstofuna Karousel á
sínum tíma, einnig Reykjavík Art Print sem
er útgáfa með samtímalist. Nýjasta verk-
efnið er mitt eigið vörumerki sem heitir
MXIA.org þar sem ég hanna skartgripi úr rekjanlegum eð-
almálmum. Ég bý til alls konar vörur sem eru að mínu mati
„betri vörur“. Mín skoðun er sú að við þurfum ekki fleiri
vörur, heldur betri vörur með áherslu á vinnsluferlið og
endingu. Við eigum að kaupa minna og nýta betur að mínu
mati.“
Örlagaríki kuldagallinn og sagan á bak við hann
María klæðir sig í kuldagalla við hin ýmsu tækifæri. Nú
er hún búin hanna sína eigin útgáfu á þessum galla sem hún
segir vera ómissandi í fataskáp hverrar konu á umbreyt-
ingaskeiði hennar í lífinu.
„Ég vaknaði einn morguninn heima hjá Rebekku frænku
minni á Norður-Jótlandi með hræðilegt kvíðakast. Mér
fannst eins og heil hersveit væri sest ofan á hjartað mitt og
var hrædd um líf mitt í sannleika sagt. Ég var að fara í
gegnum sambandsslit og ýmislegt fleira. Þar sem klukkan
var einungis fimm að morgni gat ég ekki farið til læknis eða
vakið mannskapinn sem ég var að gista hjá, svo það eina
sem mér datt í hug var að bjarga mér með því að fara út að
ganga. Frænka mín hafði keypt flottan mosagrænan kulda-
galla sem hékk í anddyrinu, ég greip hann og stakk mér í
stígvél af syni hennar og svo fór ég bara út. Ég man ekki
hvaða árstími var, en ég man að ég hugsaði að ég þyrfti að
halda á mér hita en gat ómögulega fundið fleira til að klæða
mig í.
Ég gekk út úr hverfinu hennar og fann lítinn moldarstíg
sem ég fylgdi, inn á milli akranna. Allt í kringum mig var
enn þá regnvott eftir nóttina og fylgdist ég með sólinni
koma upp yfir skóginn í fjarska. Þetta varð björgunin mín
og seinna þennan dag keypti ég svona kuldagalla á netinu
og hef verið í honum annan hvern dag síðan. Ég fer í hann
yfir náttfötin þegar ég keyri börnin í skólann, yfir skrif-
stofufötin þegar ég fer út með hundinn og hef ég meira að
segja opnað „pop up“-verslun í honum á Laugaveginum. Það
er alveg hægt að gera hann fínan með því að vera í háum
hælum og hafa hárið flott. Svo er þessi kuldagalli alveg ein-
staklega þægilegur.“
Lét draum fjölskyldunnar rætast
María hefur ekki setið auðum höndum þegar kemur að
heimilinu og hefur verið að gera fjölskylduhúsið upp í mið-
borginni.
„Það hefur lengi verið draumur fjölskyldunnar, það er
mín og foreldra minna, að búa í einu stóru húsi saman, en
hvor í sinni íbúðinni.
Það hefur verið mjög erfitt að finna hús þar sem íbúð-
irnar eru sambærilegar en oft er ein íbúð-
in í kjallara sem þá er töluvert minni. Það
var óneitanlega skrítið að stíga skrefið
þegar við loksins fundum húsnæði sem
hentaði en ég sé ekki eftir því og mæli
einlægt með þessu. Það er svo margt já-
kvætt við að búa nálægt sínum nánustu.“
Kaupir nánast allan fatnað notaðan
Hvernig lýsir þú smekknum þínum
heima?
„Stíllinn heima hjá mér er margbreytilegur. Ég vel hluti
sem gera mig ánægða. Gæði hluta og saga þeirra skiptir
máli. Ég er mikið fyrir skálar fyrir öll tilefni, úr sem dæmi
ólífuviði og þá ímynda ég mér ólífutréð með daufgrænum
ílöngum blöðum á þurri sinnepsgulri hlíð á Sardiníu eða
Mallorca. Ég hef komist að því að það er langbest að kaupa
minjagripina í Góða hirðinum, þar hef ég fundið grímur frá
Feneyjum, suðuramerískt keramík, handmálaða diska frá
Ítalíu og útskornar myndir frá Afríku úr fílabeinsviði. Ég
kaupi líka húsgögn og lampa og geri að mínu. Ég hef keypt
um það bil sjö kristalskrónur úr Góða hirðinum núna nýlega
og búið til nokkrar nýjar úr þeim. Í borðstofunni er ég með
ljós sem er undir áhrifum frá marglyttu, en þetta er krist-
alslampi með gamalt bleikt tjull frá dóttur minni og rauðum
silkiborðum úr gömlu jólaskrauti, en mér finnst gaman að
búa til eitthvað listrænt úr „rusli“.
Hvað með þinn eigin persónulegan fatastíl?
„Hann er síbreytilegur og ég blanda öllu saman sem mér
dettur í hug. Ég elska að fylgjast
með tískunni, ef til vill því ég dáist
að alls konar hönnun og hef gam-
an að nýjungum, en ég kaupi mjög
lítið nýtt. Ég versla nánast allt
notað og þá helst úr Rauða kross-
inum og öðrum nytjaverslunum.
Móðir mín, ásamt öðrum sjálf-
boðaliðum, rekur nytjaverslunina
Allt er mögulegt sem ég og vin-
konur mínar stofnuðum saman hér
áður, en búðin er í kjallara kirkj-
unnar á Ingólfsstræti. Hún er opin
tvisvar í viku, á þriðjudögum og
fimmtudögum, frá klukkan tvö til
sex.“
Hefur fundið Chanel í verslunum
með tímabilsfatnað
Hvert er uppáhaldstískumerkið
þitt?
„Ég hef fundið Chanel í versl-
unum sem selja tímabilsfatnað,
sem er magnað. Ég hef gaman af
því að fylgjast með Miu Miu, Stine
Goya, Essentiel Antwerp, Balma-
in, Jil Sander og D&G, en myndi óska þess að merkin væru
umhverfisvænni. Mér finnst skemmtilegt að sjá ný og frum-
legri merki verða til og myndi vilja sjá flottu íslensku merk-
in framleidd hér heima, í það minnsta að hluta til.“
Hvað þarf maður að hafa í huga þegar maður setur saman
fallegan fatnað og skartgripi?
„Mér finnst mikilvægt að búa til minn eigin stíl og útlit
með því að blanda því saman sem ég á í skápnum. Mér líka
miklar andstæður í litum og formum. Ég nota langmest
skartgripi úr eðalmálmum eða náttúrulegum perlum og
steinum þannig að skartið er örlítið minna og kannski svolít-
ið „elegant“ og meira styðjandi við klæðnaðinn.“
María Ericsdóttir Panduro er
skemmtilega opin og hefur með
árunum lært að lækka aðeins
kröfurnar til lífsins, sem hefur
gert henni kleift að fara betur
með og endurnýta í innkaupum.
María Ericsdóttir Panduro viðskipta-
fræðingur bjargaði geðheilsunni með því að
fara út að ganga í kuldagalla um miðja nótt.
Nú hefur hún gert sína eigin útfærslu af
þessari flík sem hún mælir með fyrir allar
konur á umbreytingatímum í lífinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
„Ég var í
sannleika
sagt hrædd
um líf mitt“
Kuldagallinn frá MXIA
á sér skemmtilega
sögu, sem hefur með
ákveðið tímabil í lífi
Maríu að gera.
Heimili Maríu er líkt og listasafn, þar sem
hún hefur fundið alls konar verðmæta
muni á stöðum eins og Góða hirðinum.
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
2 fyrir1 af margskiptum glerjum
TILBOÐ