Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 30
L
eiðir Laufeyjar Birkisdóttur snyrtifræðings og
Friðriks Karlssonar tónlistarmanns lágu fyrst
saman fyrir fimm árum þegar þau voru stöðugt
að rekast hvort á annað í sundi eða úti í búð á
Seltjarnarnesi. Á þeim tíma þekktust þau lítið,
en Laufey hafði verið með brúðarmynd Friðriks
fyrir augum sér úti í glugga á ljósmyndastúdíói
Bonna, fyrrverandi eiginmanns síns til fjölda
ára, og kannaðist að sjálfsögðu við hann úr hljómsveitinni
Mezzoforte eins og við hin. Friðrik vissi hver Laufey var líka,
enda fáar konur jafn heillandi og hún er, og kviknaði strax for-
vitni innra með honum að fá að kynnast henni betur. Á þessum
tíma bjuggu þau hvort í sinni íbúð á Seltjarnarnarnesinu, Lauf-
ey á Rekagranda með börnum sínum tveimur og Friðrik á
Eiðistorgi með sínu barni.
Í dag búa þau í rúmgóðu huggulegu húsi sem stendur á sjáv-
arlóð á Seltjarnarnesi þar sem pláss er fyrir alla á heimilinu,
ásamt því sem snyrtistofan Leila Boutique er á fyrstu hæð
hússins þar sem gestir stofunnar fá fyrsta flokks húðmeðferðir
og slökun sem náð er fram með nuddi og tónlist sem Friðrik
gerir úr hljóðverinu sínu á efri hæðinni.
„Við Friðrik eigum mjög margt sameiginlegt. Við höfðum
bæði dvalið um tíma í Bretlandi, erum skapandi og skemmtileg
og deilum mörgum sömu hugmyndum um lífið þótt ég hafi alls
ekki verið tilbúin í samband fyrir fimm árum þegar við hittumst
fyrir alvöru fyrst.“
Ætli það sé til einn betri tími en annar þegar ástin bankar á
dyrnar?
„Nei greinilega ekki þegar maður er með mann eins og Frið-
rik fyrir framan sig. Það er svo mikill eldur í honum og það sem
heillaði mig strax við hann var hversu mikla hæfileika hann er
með, og þá ekki bara í tónlistinni heldur einnig þegar kemur að
lífinu sjálfu. Ég segi stundum að hann sé mitt andlega gúrú,
hann er mín stoð og stytta og saman stöndum við traustum fót-
um þótt á móti blási,“ segir Laufey og Friðrik tekur við: „Já
ætli lífið hafi ekki kennt manni að það á ekki bara að vera auð-
velt. Lífið er alls konar og það er einmitt það sem er svo
heillandi við það.“
Stórhuga afi sem sendi börnin út í heim
Laufey var sautján ára að aldri þegar hún flutti til Bretlands
fyrst þar sem hún skráði sig í menntaskóla. Hugmyndina átti
afi hennar, Skarphéðinn Ásgeirsson, frumkvöðull og stofnandi
klæðagerðarinnar Amaro á Akureyri á fimmta áratug síðustu
aldar.
,,Klæðagerðin framleiddi meðal annars nærföt sem voru seld
um land allt. Hann byrjaði á því að smíða leikföng í kjallaranum
á húsinu sínu og reisti síðan í upphafi sjöunda áratugarins vöru-
hús á Akureyri að erlendri fyrirmynd með ólíkum deildum og
alls konar varningi. Við fjölskyldan fengum fljótt áhuga á við-
skiptum og vildi afi að við færum öll út í heim til að kynnast
öðru tungumáli og fleira fólki. Dvöl mín í Bretlandi náði yfir sex
ára tímabil. Ég kom heim eftir eitt ár í menntaskóla en fór svo
aftur út þar sem ég fékk mér vinnu við að tína jarðarber áður
en ég settist svo aftur á skólabekk í Bretlandi þar sem ég lærði
snyrtifræði, leikhús- og kvikmyndaförðun og nudd. Eftir námið
hóf ég störf fyrir Guerlain þegar það var fjölskyldufyrirtæki, og
rak ég snyrtistofuna Guerlain á Óðinsgötu í 10 ár og hef ég
haldið tryggð við vörumerkið allt frá þeim tíma,“ segir Laufey.
Hvernig var að læra í Bretlandi og eru þeir duglegir að sækja
sér þjónustu snyrtifræðinga?
,,Já. Bretar eru miklu opnari fyrir því að fara í snyrtingu og
eru á undan okkur þegar kemur að því að gefa sér tíma í að
sinna sjálfum sér. En þetta er allt að koma hjá okkur. Ég mæli
með því fyrir alla að fara í snyrtingu í það minnsta einu sinni í
mánuði og að líta á snyrtidaginn sem eins konar hvíld eða slök-
un, með góðum kremum og alls konar tækjum og tækni sem
viðhalda unglegu útliti án skurðaðgerða.“
Laufey er með einstaka húð sjálf og aðhyllist heildrænni
meðferð þegar kemur að húðinni. Þar sem farið er ofan í alla þá
þætti sem skipta máli til að líta vel út.
,,Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að við þurfum að huga að
því hvað við setjum ofan í okkur, ekki síður en hvað við setjum á
húðina okkar.
Hvað við borðum og hvað við drekkum mikið af vatni, hvern-
ig við sofum og ekki síst hvernig við ræktum sálina. Við getum
ræktað okkur andlega með því að fara í ræktina, í sund, upp á
fjöll og svo get ég seint hætta að mæla með því að leita til sér-
fræðinga til að vinna úr flóknum tilfinningum sem koma upp
reglulega í lífinu.“
Vönduð krem setja svo punktinn yfir i-ið eins og Laufey
orðar það.
„Sjálf er ég alltaf með tvö krem í gangi í einu. Ég nota serum
með kremunum mínum, bæði morgna og kvölds. Ég er mikil
Guerlain-kona, svo get ég ekki mælt nægilega mikið með
CACI-húðmeðferðinni sem er fyrir átján ára og eldri. Það var í
raun Friðrik sem benti mér á CACI-vörumerkið fyrst út á sýn-
ingu í Bretlandi, en ég býð upp á CACI-meðferð sem er
stjörnumeðferð með vél sem styrkir húðina og vöðvana undir
henni. Andlitið fær á sig unglegra form og mæli ég með allt að
tíu tímum í vélinni sem hæglega breytir útlitinu þannig að fólk
lítur út fyrir að vera fimm árum yngra.“
Trúir ekki á skyndilausnir í lífinu
Hvorki Laufey né Friðrik eru á því að hægt sé að afgreiða
hlutina í lífinu í skyndi.
,,Við trúum því að kórónuveiran hafi kennt okkur öllum að
leita meira inn á við í lífinu. Við finnum það hér á snyrtistofunni
hvað fólk kann meira og meira að meta nuddið og þá slökun
sem fylgir með meðferðunum. Það er búið að hægja á okkur og
við sitjum nú meira með okkur sjálf en áður. Við þurfum eins að
rækta samböndin í lífinu og forgangsraða svo við séum að gera
það sem færir okkur hamingju,“ segja þau sammála.
Hver er uppskriftin að góðu sambandi að ykkar mati?
„Það er eldur í
ástinni okkar“
Laufey Birkisdóttir snyrtifræðingur og
Friðrik Karlsson tónlistarmaður eru
par sem eftir er tekið. Þau búa í fallegu
húsi á Seltjarnarnesi þar sem hún rekur
snyrtistofu og hann hljóðver. Þau taka líf-
inu með stóískri ró og leyfa sér að þrosk-
ast fallega með árunum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
5SJÁ SÍÐU 32
Laufey og Friðrik hittust fyrst fyrir alvöru í
sundi og í búðinni á Seltjarnarnesi. Þau
urðu strax miklir vinir og búa nú saman í
fallegu húsi á sjávarlóð á Seltjarnarnesi.
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022