Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 sem er eina leiðin til að sambúðin virki. Svo þeg- ar eitthvað kemur upp á þá leyfum við því ekki að grassera heldur leysum við það fljótt og vand- lega,“ segja þau. Friðrik bendir á að eitt af því sem honum finnst mikilvægast við sjálfsvinnu er að bera ekki áföll áfram til barnanna. „Foreldrar okkar voru auðvitað að gera sitt besta en þeim þótti mjög mikið mál að heim- sækja sálfræðing. Okkar kynslóð er ekki þannig, í það minnsta ekki við. Þegar tilfinningarnar þurfa að koma fram, þá bara koma þær og þá hefur maður val um að vinna í þeim eða deyfa þær. Við höfum ákveðið að takast á við málin en ekki flýja þau.“ Íslenskar konur blóðheitar eins og konurnar við Miðjarðarhafið Hugleiðslutónlistin sem Friðrik gerir hefur náð vinsældum hér á landi sem og erlendis og segir Laufey að það slokkni sérstaklega á kon- unum þegar þær hlusta á tónlistina. „Ég held að við íslenskar konur séum blóðheit- ar með miklar tilfinningar líkt og konurnar við Miðjarðarhafið og það er eitthvað sem er gaman að ná tökum á.“ Er tónlistin þín leið í að róa okkur konurnar, Friðrik? „Mér hefur alltaf þótt rosalega skemmtilegt að gera tónlist og hef fengið fleiri tækifæri til þess í lífinu en margir aðrir. Konur eru svo þær sem hlusta hvað mest á hugleiðslutónlistina, en ég held hún sé gerð jafnmikið fyrir mig sjálfan og aðra. Ég hef ver- ið fastur í sama farinu þegar kom að samböndum áður en ég kynntist Laufeyju og þurfti að vinna í því. Ég get alveg sam- þykkt að konur stjórnist meira af tilfinningum sínum en við karlar gerum, en við eigum að sjálfsögðu alltaf að vera að bæta okkur líka.“ Er þá sambandið ykkar þann- ig að þú ert kryddið í samband- inu, Laufey, og hann jarðteng- ingin? „Já kannski, en það er alveg fönk í honum líka. En hann er svo djúpur og mikið á andlegu nótunum að það er mjög róandi og gott að vera nálægt honum.“ Nú er áfengislaus lífsstíll að verða meira áberandi, hvernig er að vera par á þeirri braut? „Lífið kemur í alls konar tímabilum og nú erum við á þessu fallega tímabili í okkar lífi þar sem við veljum að gera vel við okkur. Fólk fær ákveðnar ranghugmyndir þegar það drekkur og á alltaf erfiðara með að fást við sjálft sig þegar það er að deyfa sig. Í raun býr áfengi til fleiri vandamál en það leysir. Friðrik hætti á undan mér og þótt ég hafi aldrei drukkið mikið þá valdi ég að fylgja honum eftir í því. Enda finnst okkur ekkert smart að geta ekki passað barnabörnin því amma og afi eru að fá sér í glas. Við viljum fjárfesta í okkur núna og gefa af því sem við erum að gera til annarra. Bæði hvað viðkemur tónlistinni og einnig hvað við- kemur heildrænni heilsumeðferð á snyrtistofunni.“ Laufey hefur haldið tryggð við Guerlain-vörumerkið allt frá því hún vann fyrir það úti í Bretlandi á sínum tíma. Hún rak einnig Guerlain-stofuna á Óðinsgötu í 10 ár. Þessi ljós- mynd er tekin af henni á snyrtistofunni Leila Boutique sem er til húsa í huggulegu húsi þeirra hjóna á Seltjarnarnesi. ,,Við værum aldrei í svona góðu sambandi ef ekki væri fyrir góða sjálfsrækt sem við erum bæði í og skynsamar ákvarðanir sem við höfum tekið á undanförnum árum, svo ekki sé minnst á góðan vin okkar, fjölskylduráðgjafann Kára Eyþórsson, sem leiðbeinir okkur óspart í lífsins ólgusjó,“ segir Friðrik sem telur það vera að færast í aukana að íslenskir karlmenn taki til í til- finningum sínum. „Þegar ég fór til Bretlands á sínum tíma, þegar ég var kall- aður út til að spila á gítar í kvikmyndinni Evítu sem Madonna lék í, þá héldu margir að ég væri hommi, því ég talaði svo mikið um tilfinningar mínar. Ætli það hafi ekki sýnt mér hvað íslensk- ir karlmenn eru miklu opnari með þessi mál en karlmenn í Bretlandi. Það var þó ekki eins og ég hefði valið að gera þetta, heldur var bara kominn tími á að skoða hlutina hjá mér.“ Mikilvægt að leyfa fullorðnu fólki að taka ábyrgð á sér Er hægt að ná jafn langt í tónlist og þú hefur gert án þess að vinna aðeins í sér og forgangsraða? „Nei ætli það. Ég er nú lítið fyrir að tala um eigin afrek þegar kemur að tónlistinni, en hef fengið stærri tækifæri en ég hefði nokkru sinni þorað að vonast eftir. Eins og þegar ég var feng- inn til að spila með bresku tónlistarkonunni Kate Bush á 22 tón- leikum árið 2014. Ég hætti að drekka fyrir fimm árum þegar ég kynntist Laufeyju, það var ein af þessum góðu ákvörðunum sem ég hef tekið í lífinu og tel ég að við værum aldrei saman í dag ef við hefðum ekki bæði stigið þetta góða skref í átt að heil- brigðari lífsstíl.“ Laufey tekur undir það og bætir við: „Ég hef farið í gegnum svo margt að þessu leyti. Verið í löngu hjónabandi, og skilið, verið í brengluðum samskiptum, andlegu ofbeldissambandi, og ætlað að bjarga mönnum og fleira sem konur geta lent í. Allt þetta leiddi til þess að ég þurfti að horfast í augu við mig sjálfa. Ég get hlegið að þessu núna, eftir að ég áttaði mig á því að ég gat ekki alltaf kennt öðr- um um það sem ég var að fara í gegnum. En ég er mjög forvitin um fólk og trúi alltaf hinu góða í öllum, en nú kann ég betur að vernda mig í alls konar aðstæðum og hef valið að vanda mig við að velja hverja ég umgengst daglega. Að vera afkomandi endalaust duglegra kvenna er þannig að maður hefur getað sett sig í alls kon- ar aðstæður og bara brett upp ermarnar. Það er eiginleiki sem ég hef að hluta til þurft að losa mig við. Þótt ég verði alltaf kjarkmikil og iðin. Það er líka bara mjög kærleiksríkt að leyfa öðru fullorðnu fólki að læra að taka ábyrgð á sér. Það sem ég elska sem dæmi við Friðrik er að hann er ekki meðvirkur með mér. Það er hægt að fara á dýptina með honum í samtölum og bæði erum við tilbúin að skoða okkar hliðar á málunum. Það er það eina sem virkar að mínu mati.“ Hvernig gengur ykkur að vinna í sama hús- inu? „Það hefur bara gengið virkilega vel. Við er- um heiðarleg við hvort annað og hreinskilin Laufey er á því að allir skyldu gefa sér einn dag í mánuði sem dekurdag á snyrtistofu þar sem farið er í meðferðir, fengið er nudd, fótsnyrting eða vax svo dæmi séu tekin. Hér er Laufey með stjörnumeðferð sem er vinsæl meðferð um þessar mundir í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég hef farið í gegnum svo margt að þessu leyti. Verið í löngu hjónabandi, og skilið, verið í brengluðum samskiptum, andlegu ofbeldissambandi, og ætlað að bjarga mönn- um og fleira sem kon- ur geta lent í. Allt þetta leiddi til þess að ég þurfti að horfast í augu við mig sjálfa.“ gið u 1 vík systrasamlagid.is Allar lífrænt vottaðar og beint frá býli BLACK SEED OLÍURNAR FRÁ VIRIDIAN FRAMÚRSKARANDI Systrasamla Óðinsgöt 101 Reykja VIÐGERÐAROLÍAN SÚ SÍGILDA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.