Morgunblaðið - 11.02.2022, Qupperneq 36
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að 12 vikna með-
ferð með ChitoCare beauty Hair, Skin & Nails geri húðina
sléttari, þéttari og rakari. Kollagenvaran er ein nýjasta
varan frá íslenska snyrtivörumerkinu ChitoCare sem
sérhæðir sig í lífvirkum húðvörum með mikla
virkni.
ChitoCare bauty Hair, Skin & Nails er tekið
inn í hylkjaformi. Í vörunni eru aðeins íslensk
innihaldsefni unnin af ChitoCare, en einnig kís-
ill frá Geosilica og íslenskir kalkþörungar.
Rannsóknin var unnin af evrópskri húðrann-
sóknarstofu sem sérhæfir sig í óháðum rann-
sóknum.
Raki í húðinni er einn af þeim lykilþáttum sem
koma í veg fyrir ótímabæra húðöldrun. Myndir sem
teknar eru með Dermoscope-húðrannsóknarmyndavél
sýna greinilega áhrif meðferðarinnar.
Sléttari, þéttari og
rakari húð
Um er að ræða húð-
meðferð í töfluformi.
Hér má sjá
augnsvæðið
fyrir meðferð.
Hér sést augn-
svæðið eftir 12
vikna meðferð.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
dags daglega. Vinkona mín sem er „skin
care“-áhrifavaldur er mjög ströng þegar
kemur að því að nota sólarvörn en ég er ekki
að kaupa það að ég þurfi að smyrja
sólarvörn á andlitið á hverjum
einasta degi í svartasta
skammdeginu – þegar eina
útiveran sem ég stunda
er að fara út úr húsi, inn
í bifreiðina, út úr bifreið
og aftur inn í hús. En
ég nota vörn ef ég er að
stunda mikla útiveru,
sér í lagi ef það er sól.“
Hvaða snyrtivara er
mest notuð í snyrtibuddunni
þinni?
„Ég er hrifin af Sensai
bronzing-gelinu, það gefur
manni smá svona „extra“
ferskleika í skammdeginu.
Svo er augabrúnablýantur
að koma sterkur inn. Ég er
tiltölulega nýlega byrjuð að
nota svoleiðis. Það virkar svolítið eins og að
setja á sig andlit.“
Opin fyrir alls konar snyrtivörum
Áttu þér uppáhaldsfarða?
„Ég fann einhvern æðislegan farða frá
Terry í Madison ilmhúsi fyrir um ári og ég er
mjög ánægð með hann. Hann er með hyal-
uronic-sýru og SPF 30. Ég nota hann samt
ekki mikið dags daglega, meira svona spari.“
Hvað með maskara?
„Ég er með frekar „sökkuð“ augnhár og
nota bara einhverja Maybellene-drullu. Í
bleikri pakkningu.“
Hvort ertu meira fyrir rauðan varalit eða
ljósan?
„Ég er meira fyrir ljósan, sem dæmi Vel-
vet Teddy frá MAC. Ég nota rauðan varalit
meira spari, en ég var að kaupa mér æðisleg-
an rauðan gloss sem er mjög fallegur.“
Hvaða hreinsvörur notarðu mest?
„Ég nota Hrein cleansing milk frá Sóley til
að fjarlægja farðann og fylgi því svo eftir
með Fersk cleansing foam einnig frá Sóley.
Sóley er mamma mín svo ég er mjög hlut-
dræg þegar kemur að húðvörum. Mér finnst
gaman að prófa alls konar en hennar vörur
eru að virka fullkomlega mig. Svo nota ég
Glóey-andlitsskrúbbinn um það bil einu sinni
í viku.“
E
ygló Hilmarsdóttir býr í gamla Vest-
urbænum ásamt Sigurði Unnari
Birgissyni unnusta sínum og þremur
dætrum. Um þessar mundir er verið
að sýna sketsaþættina Kanarí í Ríkissjón-
varpinu, sem hún leikur í og skrifar. Hún er
einnig í meistaranámi í ritlist í Háskóla Ís-
lands á milli þess sem hún skipuleggur líf
fjölskyldunnar. Hún hugsar vel um heilsuna.
„Það er gaman að segja frá því að ég er á
netnámskeiði hjá Indíönu Nönnu Jóhanns-
dóttur sem heitir „Alvöru matur og gæða-
svefn“ sem gengur nákvæmlega út á það – að
borða og elda sér alvörumat úr góðum hrá-
efnum og huga að svefninum. Það er nefni-
lega magnað hvað þetta vinnur saman. Þetta
er frábært námskeið sem ég mæli með fyrir
alla. Nálgunin hennar Indíönu er svo heil-
steypt og hvetjandi. Það eru engin boð og
bönn, bara frábær nálgun og leiðir til þess að
lifa heilbrigðum lífsstíl.“
Spennandi að prófa að
vera önnur manneskja
Hvað er það við leiklistina sem heillar?
„Ég var einmitt að ræða þetta við vinkonu
mína sem er leikkona. Við vorum að spá í af
hverju maður fer út í þetta, hvort þetta sé
hégómi í manni, þráin eftir athygli. Ég held
að í grunninn sé það manneskjan sem er
heillandi. Leiklist er um manneskjuna. Það
er spennandi að prófa að vera önnur mann-
eskja, fá lánað líf einhvers annars, skapa per-
sónur. Að segja sögur og læra um sögur ann-
arra.
En svo er líka bara ógeðslega gaman að
leika. Að fá leyfi til þess að vera einhver allt
annar en maður er sjálfur, að fá leyfi til þess
að vera fullkomlega sturluð týpa. Þetta er
kannski bara einhver spennufíkn í grunninn.
Maður fær alveg adrenalín úr því að standa
fyrir framan fullt af fóki og reyna að fá það
til þess að trúa því að maður sé einhver ann-
ar, fá það til að hlæja, reita það til reiði,
reyna að fá það til að elska mann. Þetta er
kannski viss áhættuhegðun.“
Notar ekki sólarvörn í svartasta
skammdeginu
Hvernig hugarðu að húðinni núna?
„Það kemur mér ansi langt að borða hollan
og næringarríkan mat og þvo mér í framan.
Ég er líka ekkert að mála mig eitthvað of
mikið á hverjum degi. Ég nota ekki sólarvörn
Mikilvægt að við séum góð
hvert við annað
Er einhver vara sem þig
vantar til að geta hugsað betur
um húðina?
„Kannski bara einhvern
næs maska, en ég elska samt
SteinEY-maskann frá Sóley.“
Hvaða snyrtivöru hefur þú
alltaf notað?
„Ef við erum að tala um
bókstaflega þá er það nátt-
úrulega sjampó og
tannkrem.“
Hvað ættu allir að
gera?
„Ég vil bara hvetja
fólk til þess að horfa á
Kanarí á RÚV næstu
föstudagskvöld og að
koma svo á sýninguna
okkar Kanarí í Kjall-
aranum í Þjóðleikhús-
inu þegar það verður
aftur hægt! Og svo
bara minna fólk á að
vera góð við hvert annað.
Sérstaklega börn.“
„Þetta er kannski
bara einhver
spennufíkn“
Eygló Hilmarsdóttir, leikkona og handritshöfundur, kann mörg
góð ráð til að líta vel út þótt hún sé ekki að kaupa gildi þess að
smyrja sólarvörn á andlitið í svartasta skammdeginu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Eygló Hilmarsdóttir leikkona mál-
ar sig ekki dags daglega en kann
nokkur góð ráð til að halda húð-
inni góðri yfir veturinn.
Velvet Teddy-
varaliturinn frá
MAC er fallegur
ljós litur sem fer
mörgum vel.
Eygló dreymir um SteinEY-
maskann frá Sóley.
Sensai bronzing-gelið er
mikið notað í skamm-
deginu.
Hrein-hreinsimjólkin frá Sóley
er góð til að fjarlægja farða að
mati Eyglóar.
Eygló hefur verið á net-
námskeiði hjá Indíönu
Nönnu Jóhannsdóttur
sem heitir „Alvöru matur
og gæðasvefn“, þar sem
hún er meðal annars að
læra að borða og elda
mat úr góðu hráefni.
Ljósmynd/Colourbox