Morgunblaðið - 17.03.2022, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is
Viltu slást
í hópinn?
Íslenski áliðnaðurinn er með stærstu útflutningsgreinum
landsins og Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi.
Hjá okkur starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og
bakgrunn. Á hverju ári notum við endurnýjanlega raforku til
að framleiða um 320.000 tonn af áli fyrir erlenda markaði.
Framtíðin er spennandi í álframleiðslu á Íslandi, og mun
framþróun grænnar álframleiðslu hafa raunveruleg áhrif á
útblástur gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.
Við erum að leita að traustu ogmetnaðarfullu fólki
í föst störf í kerskála í álveri okkar á Grundartanga.
Unnið er á þrískiptum 8 tíma vöktum og heildar-
laun eru 617.000 kr. Störfin eru fjölbreytt og henta
öllum kynjum.
Almennar menntunar- og hæfnikröfur:
• 18 ára lágmarksaldur • Góð samskiptahæfni
• Mikil öryggisvitund og árvekni • Dugnaður og sjálfstæði
• Heiðarleiki og stundvísi • Bílpróf er skilyrði
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægju-
legt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Starfsfólki bjóðast
ferðir frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 27. mars. Umsóknir og upp-
lýsingar eru á www.nordural.is og í síma 430 1000. Öllum
umsóknum verður svarað og trúnaði heitið.