Morgunblaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
Umhverfis-, orku- loftslagsráðuneytið fer meðmálefni er
varða varnir og vöktun náttúruvár og uppbyggingu varnargarða
vegna ofanflóða. Leitað er eftir sérfræðingi til að hafa umsjón
meðmálaflokknum.
Starfssvið sérfræðingsins felur m.a. í sér umsjón með starfsemi
ofanflóðanefndar, en hlutverk hennar er m.a. að veita fé til
ofanflóðavarna. Hann sinnir jafnframt öðrummálaflokkum
og verkefnum á skrifstofunni.
Í ráðuneytinu starfar um 50 manna samhentur hópur á sex
skrifstofum. Ráðuneytið leggur áherslu á öfluga liðsheild,
góð samskipti og starfsanda.
Helstu verkefni:
• Umsjón með ofanflóðamálum og hættumati vegna
náttúruvár, þ.m.t. vegna vatnsflóða, sjávarflóða og eldgosa
• Starfsmaður ofanflóðanefndar, sem fer með stjórn ofanflóðasjóðs
• Umsjón með undirbúningi framkvæmda vegna uppbyggingu
varnargarða og eftirliti með þeim
• Þátttaka í vinnu vegna verkefna á sviði náttúruvár vegna
ofanflóðavarna
• Þátttaka í stefnumótun á málefnasviði skrifstofunnar
• Vinna við stjórnsýsluerindi og laga- og reglugerðarvinnu
• Samskipti við stjórnvöld, Alþingi og hagsmunaaðila
og alþjóðleg samskipti
• Þátttaka í vinnuhópum og nefndum á vegum ráðuneytisins
og Stjórnarráðsins
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði verkfræði með meistaragráðu
sem nýtist í starfi
• Haldbær þekking eða reynsla af stýringu byggingar-
framkvæmda eða af sambærilegum verkefnum er kostur
• Þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu
• Mjög góð almenn tölvuþekking og þekking og reynsla
af notkun Excel
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
• Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
og kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2022.
Sótt er um starfið á Starfatorgi – starfatorg.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinunn Fjóla Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í umhverfis-,
orku- og loftslagsráðuneytinu (steinunn.fjola.sigurdardottir@urn.is) eða í síma 545-8600.
Verkfræðingur á sviði ofanflóðamála
Yfirvélstjóri stjórnar og ber ábyrgð á vélgæslu
skipsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirvélstjóri sinnir og ber ábyrgð á eftirfarandi
verkefnum í samvinnu við skipstjóra og skipa-
eftirlitsmenn:
- Stjórnar og ber ábyrgð á vélgæslu skipsins og
sér um óaðfinnanlegan rekstur, meðferð og
viðhald á búnaði skipsins.
- Hefur umsjón með birgðarhaldi og daglegum
rekstri vélbúnaðar skipsins.
- Ber ábyrgð á verkaskiptingu og starfstilhögun
annarra vélstjóra/starfsmanna í vél.
- Ber ábyrgð á reglubundnum skoðunum, viðhaldi
og eftirliti á búnaði skipsins ásamt skráningu og
utanumhaldi.
- Ber ábyrgð á öryggismálum í vélarrými.
• Yfirvélstjóri skal sinna öðrum þeim störfum sem
falla undir verkssvið vélstjóra ásamt öðrum þeim
verkum sem skipstjóri felur honum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Hefur lokið viðurkenndu námi sem gefur að
lágmarki vélstjórnaréttindi VS I.
• Lokið öryggisfræðslunámskeiði frá Slysavarnar-
skóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum aðila.
• Starfsreynslu sem nýtist í starfið.
• Kostnaðarvitund og aðhald í rekstri.
• Geta tekið ákvarðanir skjótt og vel.
• Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2022. Sótt er um
starfið með því að senda tölvupóst með öllum
helstu upplýsingum, ásamt ferilskrá, á
info@fiskkaup.is.
Nánari upplýsingar um starfið veita skipstjórarnir
Helgi Aage Torfason og Pétur Karl Karlsson í síma
412-1174 eða í tölvupósti, helgi@fiskkaup.is og
petur@fiskkaup.is
Kristrún RE er línu- og netaskip sem gerð er út á
Grálúðunet yfir allt árið, róið er eftir skiptimanna-
kerfi.
YFIRVÉLSTJÓRI
Á KRISTRÚNU RE-177
Fiskkaup leitar eftir yfirvélstjóra til starfa á netaskipinu
Kristrúnu RE-177 sem gerð er út frá Reykjavík
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐGJÖF
RÁÐNINGAR
RANNSÓKNIR