Rit Mógilsár - 01.01.2022, Blaðsíða 2
2 Rit Mógilsár Rit Mógilsár 3
Frostþol skógarplantna og frostþolsmælingar
– verklýsing á jónalekaaðferðinni
Rakel J. Jónsdóttir1
Rit Mógilsár Nr 46-2022 — www.skogur.is/mogilsarrit
Titill Frostþol skógarplantna og frostþolsmælingar – verklýsing á jónalekaaðferðinni
English title Frost tolerance of forest seedlings and methods for measuring frost tolerance – a description
of the Shoot Electrolyte Leakage (SEL) method
ISBN 2298-9994
Höfundur Rakel J. Jónsdóttir
Ábyrgðarmaður Edda S. Oddsdóttir
Ritnefnd Björn Traustason, Ólafur Eggertsson, Pétur Halldórsson
Textavinnsla og umbrot Pétur Halldórsson
Forsíðumynd Ræktunarhús í Sólskógum Kjarnaskógi: Rakel J. Jónsdóttir
Útgefandi Skógræktin, júlí 2022
Öll réttindi áskilin
Efnisyfirlit
SAMANTEKT/ABSTRACT 3
INNGANGUR 4
MYNDUN FROSTÞOLS 4
HVAÐ GERIST Í FRUMUNUM VIÐ FROSTÁLAG 5
VERKLÝSING JÓNALEKAPRÓFS 6
Undirbúningur sýna 6
Ferill frystingar 6
Mæling á leiðni 6
Útreikningar niðurstaðna 7
FRAMSETNING NIÐURSTAÐNA 7
RANNSÓKNIR AÐ BAKI JÓNALEKAAÐFERÐINNI 8
UM NIÐURSTÖÐUR JÓNALEKAPRÓFANA HÉRLENDIS 10
NIÐURLAG 11
ÞAKKIR 11
HEIMILDIR 12
VIÐAUKI 1 14
1 Skógræktin, Gömlu-Gróðrarstöðinni, is-600 Akureyri, rakel.jonsdottir@skogur.is
Samantekt
Yfirvetrun skógarplantna á frystigeymslum er al geng
á norðurhveli jarðar. Þessi geymsluaðferð verndar
gæði skógarplantna fyrir skaðlegum breyt ingum í
veðurfari yfir vetrartímann. Ef plönt um er hins vegar
pakkað inn á frysta án þess að hafa nægjanlegt
frostþol, hafa þær lítið geymsluþol til þess að lifa
af geymsluna. Fundist hefur sterkt samband á milli
þess frostþols sem plöntur ná á haustin og lifunar og
rótarvaxtar eftir geymslutímann. Árangur í skógrækt
byggist m.a. á gæðum skógarplantnanna sem eru
gróðursettar. Heilbrigðar, þróttmiklar plöntur eru lík-
legri til að komast á legg en þær sem laskaðar eru.
Því er nauð synlegt að framleiðendur hafi aðgengi að
áreiðanlegri aðferð til þess að meta frostþolið áður
en til pökkunar inn á frysta kemur. Jónalekaaðferðin
(SEL; Shoot Electrolyte Leakage), sem lýst er í þessu
riti, hefur verið notuð til að meta frostþol skógar-
plantna í framleiðslu í Skandinavíu um áratuga-
skeið og á Íslandi síðan 2004. Aðferðin er byggð á
rann sóknum á rauðgreni og skógarfuru en hefur
verið heimfærð yfir á aðrar tegundir. Rann sókn-
ir hafa leitt í ljós að ræktunarferlar innan gróðrar-
stöðva hafa úrslitaáhrif á það hvort skógar plöntur
ná góðu frostþoli á haustin. Þar spilar inn í sáningar-
tími, myrkvun, uppruni fræsins og kæling að hausti
til svo eitthvað sé nefnt. Niðurstöður ís lenskra jóna-
lekamælinga eru dregnar saman í grein inni og
fjallað um hvaða lærdóm megi draga af þeim.
Abstract
Title: Frost tolerance of forest seedlings and meth-
ods for measuring frost tolerance – a description of
the Shoot Electrolyte Leakage (SEL) method
Storage of forest seedlings in freezers is common
practise in the northern hemisphere. This storage
method protects the quality of forest seedlings from
harmful changes in weather during winter. If seed-
lings are stored in freezer, without sufficient frost
tolerance, their storability is low. A strong relation-
ship has been found between the frost tolerance of
conifer seedlings in autumn and survival and root
growth after the storage. Success in forestry is based
on e.g. quality of forest seedlings planted. Healthy,
vigorous seedlings are more likely to thrive than
damaged ones. It is therefore essential that nurs-
ery managers have access to a reliable method for
assessing frost tolerance before packing into the
freezers. The shoot electrolyte leakage method (SEL),
described in this paper, has been used to assess
frost tolerance of forest seedlings in Scandinavia for
decades and in Iceland since 2004. The method is
based on research on Norway spruce and Scots pine
but has also been applied to other species. Research
has shown that cultivation regimes in nurseries
have a decisive effect on whether forest seedlings
gain good frost tolerance in the autumn. To name a
few, factors like sowing time, short-day-treatment,
origin of the seed and chilling hours in the autumn
play an important role in the development of frost
tolerance. Results of Icelandic SEL measurements are
summarised in the article and discussed.