Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Qupperneq 8
8 Breiðholtsblaðið APRÍL 2022
Síðustu ár hafa frístundaheimilin í Breiðholti staðið
fyrir leiklistarsýningu barna í fyrsta og öðrum bekk á
frístundaheimilum í Breiðholti. Í ár var hún haldin í hátíðarsal
Breiðholtsskóla föstudaginn 1. apríl.
Börnin höfðu síðustu vikur æft Ávaxtakörfuna og var verkið
flutt með pomp og prakt. Undirbúningur fyrir sýninguna fólst m.a.
í að æfa lögin, texta, búa til andlitsgrímur og mála þær. Börnin
fengu með sér heim boðsmiða fyrir foreldra og forráðamenn sína
og mættu fjölmargir áhorfendur á sýninguna.
Mikil eftirvænting var meðal barnanna og má með sanni segja
að þau hafi staðið sig afar vel. Gaman var að geta boðið foreldrum
og forráðamönnum á
sýninguna enda hefur það
ekki verið hægt síðustu tvö
ár vegna kórónuveirunnar.
Mörg barnanna voru að
taka sín fyrstu spor á sviði
og er aldrei að vita nema
að verkefni þessi kveiki á
einhverri leiklistarbakteríu.
Þessar myndir voru
teknar af sýningaratriðum
leiksýningarinnar.
Leiklistasýning
frístundaheimilanna
Hallsteinn Sigurðsson mynd
höggvari færði Seljahlíð heimili
aldraðra í Breiðholtið verkið
Mann og konu, steyptu í ál.
Frummynd verksins er frá 1968
og er í eigu Listasafns Íslands.
Hallsteinn er sjálfur fluttur í
Seljahlíð en stundar enn vinnu
sína og listsköpun og fer í vinnu
stofuna við Ystasel. Hann er
einn þeirra sem byggðu við þá
götu sem ætluð var listafólki og
hún er hönnuð sem sambland af
íbúðarhúsnæði og vinnustofu og
sá síðasti sem flytur úr götunni.
Hallsteinn er bróðursonur
Ásmundar Sveinssonar mynd
höggvara og í verkum hans má
víða finna skyldleika við agaðan
módernisma Sigurjóns Ólafssonar
frá því á sjöunda áratugnum. Hall
steinn hefur verið afkastamikill
í gegnum tíðina eins og sjá má
við heimili hans í Ystaselinu og í
höggmyndagarði hans í Gufunesi.
Jón Proppe listfræðingur skifaði
formála í sýningarskrá Hallsteins
árið 2006 og þar segir meðal annas.
„Verk Hallsteins Sigurðs sonar
eru nokkuð sér á parti í jurta
garði íslenskrar höggmyndalistar
þar sem þó er allfjölbreytt flóra.
Höggmyndir Hallsteins unnar í
málm eru opnar og léttar í efni og
formi. Það má segja að hann teikni
fram rýmið og hann notar gjarnan
til þess létta teina og málmplötur
sem hann sýður saman en hefur
eins mikið loft og innra rými og
hægt er. Formbyggingin er naum
og rétt nægileg til að ná tilgangi
sínum en að því leyti mætti kalla
verkin eins konar minimalisma, sér
í lagi verkin þar sem endurtekin
eða hnígandi form draga athygl
ina að rúmfræði byggingarinnar.
Hallsteinn er trúr sínum efnivið,
notar járn og stundum ál, en hins
vegar dregur hann ávallt úr vægi
efnisins, öfugt við það sem nú
tíðkast iðulega, og sækist frekar
eftir gegnsæi svo innri bygging
verkanna verði sýnileg. Þessi
áhersla á formbyggingu og léttleiki
verkanna valda því að þau virðast
hljóðlát samanborið við mikið af
höggmyndalist samtímans þar sem
lagt er upp úr því að fanga örugg
lega athygli áhorfandans.“
Færði Seljahlíð
verk að gjöf
Hallsteinn Sigurðsson
myndhöggvari.
Þessi stækkaða afsteypa af
verki Hallsteins Maður og kona
stendur neðan við Seltjarnarnes
kirkju. Hún var sett þar árið 1989.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Vissir þú að í Breiðholti eru starfræktir búsetukjarnar á vegum Reykjavíkurborgar þar sem veitt er þjónusta fyrir
fólk með fötlun?
Nú er opið fyrir umsóknir um sumarstarf á þessum stöðum. Um er að ræða frábært tækifæri til þess að eiga
skemmtilegt og þroskandi sumar.
Þungamiðja starfsins er að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs, stuðla að auknu sjálfstæði og
auka lífsgæði.
Ef þig langar í fjölbreytta vinnu þar sem þú getur haft bein jákvæð áhrif á líðan einstaklinga og á sama tíma
upplifað að þitt starf skiptir máli – þá er þetta starfið fyrir þig!
Við viljum fá fjölbreyttan hóp á öllum aldri til vinnu.
Hægt að sækja um starfið hér: https://jobs.50skills.com/reykjavik/is/13209
Senda má fyrirspurn á þetta netfang: Lara.Sigridur.Baldursdottir@reykjavik.is
eða hringja í Þjónustumiðstöð Breiðholts 4111300
litur CMYK 100 70 0 15