Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 10

Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 10
10 Breiðholtsblaðið APRÍL 2022 Fleiri hlaupa hjá Hjólakrafti Önnur hlaupaæfingin hjá Hjólakrafti og Leikni var haldin 31. mars sl. Helmingi fleiri mættu á þessa æfingu en í vikunni á undan viku eða 10 manns. Þetta er góður árangur segir Þorvaldur Daníelsson forstöðumaður Hjólakrafts sem hvetur sem flesta til þess að koma og prófa enda æfingarnar hugsaðar fyrir byrjendur. Hjólakraftur er félag sem heldur námskeið fyrir ungt fólk á öllum aldri. Fyrstu námskeiðin voru haldin sumarið 2012 af þeim Þorvaldi og Eiríki Árnasyni sjúkraþjálfara. Þá var Þorvaldur framkvæmdastjóri hjá stuðningsfélaginu Krafti og þaðan kemur í raun nafnið á félaginu. Hugmyndin var að hitta fyrir fólk sem var að tapa í baráttunni fyrir hinum ýmsu lífstílssjúkdómum. Með góðu samstarfi við Heilsuskólann á LSH urðu til hópar af krökkum sem langaði að taka þátt í að hjóla. „Hjólakraftur er fyrir alla. Helst langar okkur að hitta krakka á aldrinum 12 til 18 ára en erum einnig með hópa af ungu fólki og við skiptum hópunum eftir aldri. Í yngri hópnum eru krakkar fæddir 2000 til 2002 en í þeim eldri eru fólk fætt 1997 til 1999. Heldur þú að þú eigir samleið með Hjólakrafti. Hafðu þá samband við Þorvald eða Valda eins og hann er oft kallaður. Hann segist yfirleitt mjög snöggur að svara pósti og hann er með netfangið valdi@hjolakraftur.com og síma 848 8822 og er einnig á Facebook og senda honum skilaboð. Hlauparar hjá Hjólakrafti. Þorvaldur er í miðið. Myndin er tekin við Leiknishúsið í Breiðholti. Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík w w w. i t r. i s sýnum hvert öðru tillitssemi Gunnar Randversson gítar- og píanóleikari og tónlistarkennari hefur sent frá sér nýjan geisladisk. Nefnist hann vetur og er annar diskurinn sem hann sendir frá sér. Gunnar leikur ýmis þekkt eldri lög auk þess sem eitt frumsamið lag er þar að finna. Gunnar er ekki einn um hituna á þessum nýja diski. Guðmundur Björgvinsson útsetti lögin ásamt Gunnari, stjórnaði öllum upptökum og lék auk þess á nokkur hljóðfæri. Þá má geta þess að Lilja Eivor dóttir Gunnars syngur í nokkrum lögum. “Þetta eru einkum eldri jasslög og önnur tónlist sem ég hef valið til þess að flytja. Þetta eru lagasmíðar sem ég hef lengi haldið upp á – hlustað á og spilað.” segir Gunnar í spjalli við Breiðholsblaðið. Gunnar hefur kennt tónlist með aðstöðu í Breiðholtsskóla í nokkur ár en á áhugi hans á tónlist dýpri rætur. Hann segir hana hafa fylgt sér svo lengi sem hann muni efir sér. Gunnar er uppalinn í Ólafsfirði þar sem hann nam gítar- og píanóleik ungur að árum. Hann snéri sér síðan alfarið að píanónáminu og píanóleik um árabil en hefur nú á síðari árum tekið gítarinn fram og eflt kynni sín við hann að nýju. “Mér finnst hann um margt skemmtilegra hljóðfæri að fást við en það fer líka aðeins eftir því hvaða tónlist maður er að spila. Ég fann fljótt eftir að ég fór að spila á hann aftur hversu auðvelt er að semja tónlist á hann.” Þótt Gunnar hafi búið lengst af á höfuð- borgarsvæðinu og um tíma í Svíþjóð hefur hann alltaf haldið tryggð við heimahagana í Ólafsfirði. “Já – það er orðinn um hálfur fimmti áratugur síðan ég fór að Heiman en ég hef komið fleiri ári en hitt til Ólafsfjarðar ef Svíþjóðarárin eru undanskilin. Það er alltaf sérstakt að koma til gömlu heimahagana. Gott að sækja í ræturnar.” En er Gunnar ekkert smeykur við geisladiskinn þegar margir notfæra sér orðið streymisveitur til þess að hlusta á tónlist. Hann kveðst alltaf hafa haft mætur á honum. Hann er gott form og ég held að hann eigi eftir að ná sér aftur á strik. Við sjáum að gamli vinilinn er aftur kominn á stjá.” En hvar er hægt að nálgast diskinn Vetur. “Hann er fáránlegur í nokkru tónlistarbúðum. Tólf tónum, Smekkleysu og Lucky Record. Nei, ég hef engar áhyggjur af að hann nái ekki til fólks.” Eldri þekkt lög og frumsamin Gunnar Randversson tónlistarmaður. Nýr geisladiskur fá Gunnari Randvers Enginn bíll á nöglum eftir 15. apríl Nagladekk eru ekki leyfileg á götum borgarinnar eftir 15. apríl. Hlutfall negldra dekkja var talið í Reykjavík í mars 2022. Hlutfallið skiptist þannig að 40% ökutækja var á negldum dekkjum og 60% var á öðrum dekkjum. Hlutfall negldra dekkja er lægra en á sama tíma í fyrra og árið 2020. Hlutfallið fer því lækkandi en betur má ef duga skal, því góð vetrardekk duga oftast betur en naglar í Reykjavík. Auk þess eru slæm áhrif nagladekkja á loftgæði og gatnaslit staðreynd. Nagladekk eru ráðandi þáttur í svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. „Bíll á nöglum mengar allt að 40 sinnum meira en bíll sem ekki er á nöglum," sagði Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun í fyrirlestri í mars og: „Það er sinnum, ekki 40 prósent meira heldur 2000 prósent meira." Burt með naglana Staðreyndin er að nagladekk auka kostnað á viðhaldi gatna í Reykjavík með því að slíta malbik margfalt hraðar en önnur dekk, þau auka eldsneytiskostnað bifreiða, valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum með mengun. Af þeim sökum er mikilvægt að draga úr hlutfalli þeirra. Mjög mikilvægt er að skipta um dekk núna og fara yfir á góð sumardekk, það sparar líka eldsneyti.

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.